�?ögn er sama og samþykki...
�?að fer ekki fram hjá neinum sem er búsettur hér í Vestmannaeyjum, eða á hingað erindi, að það er í gildi yfirvinnubann á �??þjóðveginum�?? okkar. Vegurinn er lokaður á kvöldin og um helgar. Herjólfur siglir sem sagt bara eina ferð virka daga – liggur bundinn þess á milli.
Undirmenn á Herjólfi eru í fullum rétti í sinni kjarabaráttu – og Eimskipsmenn sem viðsemjendur þeirra í þeim samningum. En er eðlilegt að ekkert heyrist í okkur? Við sitjum uppi með mjög skerta þjónustu virka daga og alls enga þjónustu um helgar. Yrði það látið viðgangast ef kjaradeilur vegaeftirlitsmanna hefðu í för með sér að ekki mætti aka um Hellisheiði og �?rengsli á kvöldin og um helgar? Eða Holtavörðuheiði?
Af hverju þrýstum við ekki á það opinberlaga að menn semji – eða a.m.k. að búið verði þannig um hnútana að kjaradeilur af þessu tagi hafi ekki miklu meiri áhrif á afkomu og öryggi okkar Eyjamanna en landsmanna almennt? Athugasemd eins og höfð var eftir einum málsaðila í Eyjafréttum á miðvikudaginn: �??Er alveg sama þó við dinglum við þetta fram á sumar “, er vægast sagt mjög sérkennileg. �?g get ekki ímyndað mér annað en að Eimskipsmenn eða þeir undirmenn á Herjólfi sem standa í sinni lögmætu kjarabaráttu – nú eða við sem þurfum á samgöngum að halda – hugsi til þess með hryllingi ef þetta er raunveruleg afstaða einhvers sem ræður ferðinni í samningaviðræðunum.
En hvað getum við gert? Hvernig getum við komið því á framfæri hversu alvarlegt ástandið er? Samtakamáttur okkar er mikill og við eigum að standa saman um að koma öllum í skilning um að það er ekki í boða að �??dingla” við þetta fram á sumar. Málsaðlilar verða að semja. �?að að vera ósátt við skerta þjónustu Herjólfs – og láta í sér heyra vegna þess – er ekki það sama og að styðja ekki kjarabaráttu undirmanna. �?g styð baráttu þeirra fyrir bættum kjörum en ég get ekki samþykkt skerta þjónustu Herjólfs.
�?að er bara eitt til ráða fyrir Eimskip og áhöfn: SEMJIÐ!

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.