Tímamót – Stórafmæli og ráðstefna
Fimmtíu ára afmælisrit Eyjafrétta. Eyjafréttir/Eyjar.net: SSÖ

Á morgun, sunnudag minnast Eyjafréttir og Eyjar.net merkra tímamóta, annars vegar 50 ára afmælis Eyjafrétta og tíu ára afmælis Eyjar.net og hins vegar opnun sameiginlegrar fréttasíðu,  eyjafrettir/eyjar.net. Hefst með móttöku í Þekkingarsetri Vestmannaeyja kl. 13.00 á morgun, sunnudag og í kjölfar hennar er ráðstefna um stöðu héraðsfréttamiðla  og er Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra meðal fyrirlesara.

Aðrir fyrirlesarar eru Gunnar Gunnarsson – ritstjóri Austurfréttar og Austurgluggans, Kristján Már Unnarsson – Stöð 2, Guðmundur Sv. Hermannsson blaðamaður á Morgunblaðinu og fyrrum fréttastjóri, Sigríður Dögg Auðunsdóttir blaðamaður og formaður Blaðamannafélagsins og Valgeir Örn Ragnarsson varafréttastjóri RÚV.

Lilja Dögg fjallar um mikilvægi héraðsfréttamiðla fyrir lýðræðislega umræðu í landinu. Þörf á staðbundnum fréttamiðlum jafnt og miðla á landsvísu og heimsvísu. Gunnar, sem kannað hefur öðrum betur stöðu fréttamiðla úti á landi kallar fyrirlestur sinn: Íslenskir staðarmiðlar í dag og (vonandi) til framtíðar. Kristján Már spyr: Hvers vegna í ósköpunum ætti ég að hafa áhuga á fréttum frá Vestmannaeyjum? Hvaða erindi eiga þær til annarra en Eyjamanna? Guðmundur, kallar sitt erindi: Fréttaritarar og hlutverk þeirra í 150 ár. Sigríður Dögg ræðir mikilvægi blaðamennsku og öflugra fréttamiðla og Valgeir Örn fjallar um RÚV og svæðismiðla. Hlutverk RÚV í fréttaflutningi á landsbyggðinni og hvort grundvöllur sé fyrir samstarfi við svæðismiðlana. 

Ráðstefnan er einstakt tækifæri fyrir þá sem áhuga hafa á fjölmiðlum, hlutverki þeirra og tímamótanna sem fjölmiðlar um allan heim standa frammi fyrir. Tímamóta sem hafa þrengt að fréttamiðlun en fela líka í sér tækifæri.

Móttakan og ráðstefnan er öllum opin.

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.