Umferðin tók vel við sér í júní
Baldur hefur frá 8. júní siglt með Herjólfi og aukið flutningsgetu milli lands og Vestmannaeyja á meðan unnið er að viðgerð á rafmótor Herjólfs. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Farþegaflutningar með Herjólfi jukust í júní 2026 samanborið við sama mánuð í fyrra en alls voru fluttir um 76 þúsund farþegar, sem er tæplega 5% aukning frá júní í fyrra. Bílaflutningar jukust einnig en alls voru fluttir um 18.600 bílar, eða 10,4% fleiri en í júní á síðasta ári. Siglt var með tveimur skipum hluta mánaðarins vegna bilunar í rafmótor Herjólfs en Baldur hóf siglingar 8. júní.

Erfið byrjun ársins setur tölurnar í samhengi

Að sögn framkvæmdastjóra Herjólfs, Ólafs Jóhanns Borgþórssonar, þarf þó að skoða tölurnar í samhengi við erfiða byrjun ársins.

„Þótt júnímánuður hafi verið góður voru fyrstu fimm mánuðir ársins mjög erfiðir þar sem Landeyjahöfn var lokuð mun lengur en við eigum að venjast. Við hófum ekki sjö ferða áætlun um Landeyjahöfn fyrr en 18. maí, sem er síðar en nokkru sinni síðan höfnin var tekin í notkun. Af þeim sökum eru farþegaflutningar það sem af er ári enn um 60 þúsund farþegum færri en á sama tíma í fyrra. Það var því ánægjulegt að sjá umferðina taka svona vel við sér í júní þegar aðstæður voru loksins orðnar eðlilegri,“ segir Ólafur.

Þrátt fyrir bilun í rafmótor Herjólfs segir hann að tekist hafi að halda uppi góðri þjónustu.

„Frá 8. júní höfum við siglt með Herjólfi og Baldri. Það hefur aukið flutningsgetuna og gert okkur kleift að anna umferðinni á annasömustu dögunum. Það skýrir meðal annars aukninguna í bílaflutningum milli ára.“

Vel bókað um Goslokahelgina

Fram undan er Goslokahelgin og segir Ólafur bókunarstöðuna vera góða. „Það er vel bókað bæði á fimmtudag og föstudag, auk þess sem mikið er bókað í frá Eyjum á sunnudeginum. Við siglum allt að tólf ferðir á dag með Herjólfi og Baldri yfir helgina.“

Ólafur minnir jafnframt á að þótt uppselt sé fyrir bíla sé yfirleitt alltaf laust fyrir farþega. „Bílastæðin við Landeyjahöfn eru gjaldfrjáls og því er engin ástæða til að hætta við ferðina þótt ekki fáist pláss fyrir bílinn. Fólk þarf þó að passa sig á kríunni sem getur verið ansi ákveðin við Landeyjahöfn.“

Aðspurður segir Ólafur að vel gangi með viðgerð rafmótors Herjólfs. „Verkefnið tafðist um nokkrar vikur vegna seinkunar á afhendingu koparvírs sem nauðsynlegur var til verksins, en sú hindrun er nú að baki. Nú miðar verkinu vel áfram og við vonumst til að viðgerðinni ljúki um miðjan júlí.“

Að lokum hvetur Ólafur fólk til að heimsækja Vestmannaeyjar í sumar. „Það er vel hægt að taka undir þá speki að Vestmannaeyjar séu alltaf góð hugmynd.“

Nýjustu fréttir

Umferðin tók vel við sér í júní
Heldur flatur Heimaklettur og fleiri fletir í Pálsstofu á Goslokahátið
Samfélag í sókn þarf samgöngur sem duga
Ábyrgð í verki: Vestmannaeyjabær styður við verðbólgumarkmiðið
Bæjarstjórn fundar í dag – samgöngur, lögreglumál og vinnuskólinn á dagskrá
Framtak Björgunarfélags Vestmannaeyja lagði grunn að Landhelgisgæslu Íslands
Ísfélagið kemur að nýrri lausn til að verjast laxalúsinni
Goslok: dagskrá fimmtudags
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.