Uppvaskið
Eyþór Harðarson

Þegar ég var 10 ára og öll fjölskyldan við matarborðið, þá var innri spenna í okkur systkinum. Spennan snerist um það hver yrði beðinn að vaska upp. Þegar mamma spurði hvort einhver myndi bjóða sig fram í uppvaskið, þá þögnuðu systurnar á núll einni. Ég horfði á þær stara í borðið og þögnin var æpandi, og síðan á mömmu sem sá engar líkur á framboði systranna.  Ég rétti upp hendina og sagðist glaður vaska upp, þó það tæki 45 mínútur fyrir mig að leysa verkefnið. Venjulega tók það mömmu eða aðra í fjölskyldunni 10 mínútur að vaska upp, en ég var bara ekkert svo góður í því þar sem ég var ekki í mikilli æfingu í uppvaski. Loksins þarf kóngabarnið eitthvað að gera á heimilinu, heyrðist frá systrunum léttar í bragði eftir spennufallið. Þið ættuð að skammast ykkar sagði mamma við stelpurnar – hann bauð sig þó fram þó hann sé ekki besti uppvaskarinn.

Nú áratugum síðar bíð ég mig fram í uppvaskið fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Vestmannaeyjum. Ég átta mig á því að það eru til margir góðir uppvaskarar, en fáir hafa áhuga á uppvaski nú til dags. Kannski eru ætandi efni í sápunum sem fælir fólk frá þessu ?

Eyþór Harðarson
Býð mig fram í 1.sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í komandi prófkjöri 26.mars.

Nýjustu fréttir

Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu
Eyjaliðin í eldlínunni í dag
Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.