Vaktin í samstarf við Eyjasýn

�?�?g hef unnið blaðið mest heima hjá mér en með stækkandi fjölskyldu hef ég verið að líta í kringum mig eftir aðstöðu,�? sagði Jóhann Ingi í samtali við Fréttir. �?Í framhaldi af því fórum við Gísli að velta fyrir okkur hvort flötur væri á samstarfi í einhverri mynd og niðurstaðan er að Eyjasýn kaupir Vaktina og mig með. Næsta blað verður því gefið út af Eyjasýn en ég á ekki von á breytingum á Vaktinni. �?g verð áfram ritstjóri og ég sé ekki annað en að Fréttir og Vaktin haldi sínum áherslum. Samstarfið verður að sjálfsögðu eitthvað en það verður bara til að létta okkur störfin. Annars hlakka ég bara til því það er alltaf gaman að breyta til og nú verð ég innan um fólk sem er að vinna á sama vettvangi og ég.�?

Gísli sagði þetta mjög eðlilegt skref í starfsemi Eyjasýnar. �?Við erum alhliða fjölmiðlafyrirtæki. Vaktin hefur verið gefin út á allt öðrum forsendum en Fréttir, er dreift í hvert hús með Póstinum á meðan Fréttir eru áskriftarblað. �?g sé ekki fyrir mér miklar breytingar, blöðin eru með sinn hvorn ritstjórann, �?mar Garðarsson á Fréttum og Jóhann Inga á Vaktinni. Vaktin er prentuð í Eyrúnu og ég býst ekki við öðru en að svo verði áfram því við höfum ekki færi á að bæta við okkur prentun. Að öðru leyti lít ég á þetta sem spennandi verkefni og áskorun,�? sagði Gísli.

Nýjustu fréttir

Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.