Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Áttundi þáttur af seríunni verður sýndur um helgina.
Laugardaginn 25. apríl nk. kl. 11.00-12.00 verður sýndur áttundi þáttur af Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma í Sagnheimum.

 

Í þættinum koma vð sögu Eyjabændur við heyskap austur á Kirkjubæjum og Gerðistúnum, veiðimenn í úteyjum og réttardagur í Elliðaey. Einnig Þjóðhátíðarmyndir frá 1953 og um 1970. Fjölbreyttar lifandi myndir frá fjölmennu 40 ára afmæli Íþrótttafélagsins Þór 1953 og  árshátíð Lúðrasveitar Vestmannaeyja í stóra salnum að Hótel HB og líklega frá áramótadansleik  í Samkomuhúsinu – gamla stóra salnum, allt á svipuðum tíma. Þá bregður fyrir mannslífi og umsvifum norðan og sunnan Strandvegar á  vetrarvertíð. Í þættinum er mikið af mannamyndum sem gefa  lifandi – og kyrrmyndum aukið gildi.

Á undan þessum átta þáttum hefur ávallt verið boðið upp á efni sem tengist atburðum í Eyjum. Að þessu sinni verða kallaðar fram kyrrmyndir sem veita frekari upplýsingar í þremur tilvikum þar sem haldið er áfram að fylla út í myndina.

Eins og á fyrri sýningum stýrir Arnar Sigurmundsson umræðum. Gunnar Júlíusson grafískur hönnuður útbjó myndefnið til sýningar.
Sýningin er styrk af Uppbyggingasjóði SASS.  Þessar sýningar í Sagnheimum hafa verið mjög vel sóttar. Þrjú stór sjónvörp eru á staðnum, sem gerir upplifunina enn betri.

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar í lykilhlutverki á 100 ára afmæli Landhelgisæslunnar
Þjónustuþegum í lengdri viðveru fjölgar um helming
Frá gamla hrauninu að framkvæmdum við Íþróttamiðstöðina
Stuðningsmaður KFS vinnur 700 þúsund
Vestmannaeyja-Þór ruddi brautina fyrir Landhelgisgæslu Íslands
Klara Káradóttir framlengir við ÍBV
Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa
Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.