Vortónleikar Skólalúðrasveitarinnar haldnir á miðvikudag
Miðvikudaginn 28.apríl verða vortónleikar Skólalúðrasveitarinnar í Vestmannaeyjum haldnir í bæjarleikhúsinu. Tónleikarnir hefjast kl.20:00 og má þar hlýða á yngri og eldri deild sveitarinnar flytja nokkur lög. Lúðrasveitarstarf í Vestmannaeyjum er með líflegasta móti og komast önnur bæjarfélög á Íslandi varla með tærnar þar sem við höfum hælana í þeim efnum. Því má að stóru leyti þakka þann stuðning og áhuga sem bæjarbúar hafa sýnt þessu starfi. Um leið og við þökkum þann góða stuðning, hvetjum við sem flesta til að koma í bæjarleikhúsið og njóta tónlistarflutnings framtíðarhljóðfæraleikara Eyjanna. Aðgangseyrir er 500 kr. sem rennur í ferðasjóð sveitarinnar.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.