HK vann ÍBV með 14 mörkum

HK vann mjög öruggan sigur á ÍBV, 36:22, í úrvalsdeild karla í handknattleik en leikurinn fór fór fram í Digranesi í dag.

HK er í öðru sæti deildarinnar með 17 stig og á leik til góða á toppliðið, Hauka, sem eru með 19 stig. ÍBV situr á botninum sem fyrr með 2 stig.

Jafnt var í byrjun, staðan 2:2 eftir nokkrar mínútur, en síðan skildu leiðir. HK komst í 7:3 og síðan 13:7 en staðan var 19:10 í hálfleik. Munurinn jókst smám saman og var 14 mörk þegar upp var staðið.

Ragnar Hjaltested skoraði 10 mörk fyrir HK og Ragnar Snær Njálsson 5 en Sergei Trotsenko gerði 12 mörk fyrir Eyjamenn sem misstu Sindra Haraldsson af velli með rautt spjald um miðjan síðari hálfleik.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.