Ísland kláraði undankeppnina með sigri

Eftir að hafa tapað fyrsta leiknum illa í undankeppni EM 2008 vann Ísland alla sína leiki sem eftir voru í riðlinum, nú síðast gegn Hvíta Rússlandi í morgun.

Ísland vann eins marks sigur á Hvíta Rússlandi, 31-30. Staðan í hálfleik var 19-15, Hvítrússum í hag.

Rakel Dögg Bragadóttir skoraði sigurmark leiksins þegar ein og hálf mínúta var til leiksloka. Íslenska vörnin stóð sína pligt allt til leiksloka og braust út mikill fögnuður þegar sigur íslenska liðsins varð ljós.

Mörk Íslands:

Rakel Dögg Bragadóttir 11/5
Guðbjörg Guðmannsdóttir 8
Sara Sigurðardóttir 3
Auður Jónsdóttir 2
Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir 2
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 2
Rut Jónsdóttir 1
Þórey Rósa Stefánsdóttir 1
Arna Sif Pálsdóttir 1

Ísland er nú með átta stig eftir fjóra sigurleiki en Hvíta Rússland lýkur keppni með sjö stig. Litháen mun væntanlega standa uppi sem sigurvegari riðilsins með níu stig ef liðið vinnur sigur á Bosníu í dag.

Annað sætið í riðlinum er þó tryggt hjá íslenska liðinu.

Heimild: handbolti.is .

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.