3 stór mál tekinn fyrir á morgun

Á bæjarstjórnarfundi á morgun verða tekinn fyrir 3 mjög stór mál fyrir Vestmannaeyjar og þau innihalda meðal annars; nýtt útivistarsvæði, knattspyrnuhús og lækkun á leiksskólargjöldum. Hægt er að lesa tillögurnar í heild sinni hér að neðan.1. Mál

Bæjarstjórn samþykkir að fela umhverfis og framkvæmdasviði að leita hagkvæmustu leiða til að byggja nýtt útivistarsvæði við íþróttamiðstöð með það fyrir augum að hægt verði að taka slíka aðstöðu í gagnið 1. júní árið vorið 2008. Tillögum og kostnaðaráætlun skal skila til bæjarráðs eigi síðar en 15. desember og skulu þær taka mið af skýrslu starfshóps MTV dagsettri 28. des 2004. Eins og þar kemur fram skal horft til þess að framkvæmdin endurspegli náttúru og menningu Vestmannaeyja og gagnist sérstaklega börnum og barnafjölskyldum og verði eftirsótt af heimafólki jafnt sem ferðamönnum.

 

2. mál

“Bæjarstjórn samþykkir að fela umhverfis og framkvæmdasviði að leita hagkvæmustu leiða til að byggja knattspyrnuhús í Vestmannaeyjum með það fyrir augum að það verði tekið í gagnið árið 2008. Í samræmi við skýrslu MTV dagsettri 28. ágúst ber að reisa húsið vestan við Týsheimilið og nýta aðstöðu sem þar er svo sem salerni og sturtur. Bæjarstjórn telur enn fremur að í samræmi við skýrsluna skuli horft til byggingar sambærilegri við þá sem verið er að byggja í Grindavík hvað varðar aðstöðu, stærð og efnisval (varanlegt efni) en kostnaður vegna þess húss er um 210 milljónir.

Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að taka upp viðræður við Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf. um möguleika á byggingu knattspyrnuhússins, þar sem Vestmannaeyjabær verði leigutaki og bera slíkt tilboð saman við aðrar leiðir við fjármögnun. Samhliða því verði gengið til samninga við ÍBV – íþróttafélag um rekstur hússins og þátttöku félagsins í húsaleigukostnaði ásamt öðrum rekstrarkostnaði.”

 

3. mál

Leikskólagjöld og þjónusta Vetmannaeyjabæjar

Bæjarstjórn fagnar og tekur heilshugar undir þær breytingar á gjaldskrá leikskóla sem samþykktar hafa verið í skólamálaráði. Þar kemur fram að grunngjald gjaldskrár lækkar um 18,3% og fer Vestmannayjabær þar með úr því að vera með dýrustu þjónustu á landinu og niður fyrir landsmeðaltal. Þá tekur bæjarstjórn undir þá ályktun skólamálaráðs að þessi lækkun leikskólagjalda er fyrst og fremst möguleg vegna þeirra hagræðinga í rekstri málaflokksins sem náðst hafa á árinu. Starfsfólk leikskólana og fjölskyldu- og fræðslusviðs hefur staðið sig með miklum sóma í þeim aðgerðum sem náðst hafa í hagræðingu.

Markmið Vestmannaeyjabæar mun áfram verða að stuðla að bættum haga barna og barnafjölskylda í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.