Þeir viðskiptavinir Íslandsbanka sem nýttu sér tilboð í Vildarþjónustu bankans við kaup á miðum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum geta sótt þá í útibúum Íslandsbanka dagana 15. til 24. júlí. Þetta á einnig við um þá sem keyptu miða af www.dalurinn.is og völdu að sækja hann í útibúum Íslandsbanka. Framvísa verður kvittun af www.dalurinn.is og skilríkjum. Ósóttir miðar verða sendir til ÍBV.