Tvö fíkniefnamál komu upp í liðinni viku eftir að lögreglan framkvæmdi húsleit á tveimur stöðum. Í þessum tveimur húsleitum fundust um 4-5 gr. af maríjúana en leitirnar fóru annars vegar fram í heimahúsi og hins vegar í atvinnuhúsnæði. Málin eru í rannsókn. Einn ökumaður var stöðvaður um liðna helgi vegna gruns um ölvun við akstur. Ökumaðurinn neitaði sök og var vistaður í fangageymslu á meðan á rannsókn málsins stóð yfir. Málið telst að mestu upplýst.