Viltu spyrja heilbrigðisráðherra út í lokun skurðstofunnar?
29. ágúst, 2013
Það sýður á mörgum Eyjamönnum eftir að tilkynnt var um lokun skurðstofu Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja, ef marka má viðbrögð við fréttinni um lokunina. Nú gefst íbúum Vestmannaeyja tækifæri til að spyrja Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra beint hvort hann ætli að láta þetta viðgangast. Kristján Þór verður í á beinni línu á DV.is klukkan 13:00.