Enska liðið Portsmouth skuldar ÍBV félögunum Hemma og David
14. september, 2013
Samkvæmt frétt á vefsíðu enska blaðsins The Sun hefur gamla félagslið þeirra félaga David James og Hermanns Hreiðarssonar ekki staðið við sitt varðandi launagreiðslur til þeirra sem og annarra liðsmanna þeirra. Samkvæmt frétt The Sun á Hermann inni hjá félaginu um 8 milljónir króna og David James um 28 milljónir króna.