Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, segir það léttir að vera komnir áfram í Evrópudeildinni en liðið vann 1-0 sigur á HB í kvöld. Eiður segir liðið stefna enn hærra en leikurinn var ekkert sem kom honum á óvart. „Þeir komu mér ekkert á óvart, þegar þeir fengu boltann héldu þeir honum vel aftast og við unnum út frá því, annars reyndu þeir bara að beita skyndisóknum eins og búast var við.
“