Tæplega 2.000 farþegar nýttu áætlunarflugið
Norlandair vill flug allt árið milli lands og Eyja
Farþegaflugvél Norlandair á Vestmannaeyjaflugvelli. Eyjafrettir/Eyjar.net: TMS
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Tæplega 2.000 farþegar ferðuðust með áætlunarflugi milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur á tímabilinu frá 1. desember 2025 til 29. maí 2026. Á sama tíma var nýting sæta um 65%, samkvæmt upplýsingum frá Norlandair.

Alls ferðuðust 1.926 farþegar með fluginu á tímabilinu. Nýting á sætaframboði var um 66% á leiðinni frá Reykjavík til Vestmannaeyja og um 63% í gagnstæða átt. Áætlunarflugið var upphaflega samið til þriggja mánaða en var síðan framlengt ítrekað með stuttum fyrirvara vegna samgönguvandans sem skapaðist í kjölfar erfiðleika í Landeyjahöfn og bilunar í Herjólfi.

Að sögn Guðbjarts Ellerts Jónssonar, fjármálastjóra Norlandair, kann sú óvissa sem ríkti um framhald flugsins að hafa haft áhrif á nýtinguna.

„Óvissa um flugsamgöngur eftir samningstímann á örugglega sinn þátt í að nýtingarhlutfall er ekki hærra. Þess ber þó að geta að nýtingin er engu að síður góð, sérstaklega í ljósi þess að tíðni flugs var aukin verulega undir lokin,“ segir Guðbjartur.

Mest aðsókn um páska og við stærri viðburði

Samkvæmt upplýsingum frá Norlandair voru sveiflur í nýtingu milli mánaða fremur litlar. Þó varð nokkur aukning í apríl og var eftirspurn greinilega meiri í kringum páska og þegar stærri viðburðir voru haldnir í Vestmannaeyjum.

Undanfarnar vikur hefur verið flogið tvisvar á dag alla daga vikunnar. Guðbjartur segir athyglisvert að aukin tíðni hafi ekki dregið úr meðalsætanýtingu á tímabilinu, þótt hann bendi á að aðstæður hafi verið óvenjulegar þar sem Landeyjahöfn var lokuð og Herjólfur ekki í fullum afköstum.

Telja að flug eigi að vera allt árið

Norlandair telur að reglulegt áætlunarflug til Vestmannaeyja eigi að vera hluti af samgöngukerfinu til framtíðar.

„Það er mat félagsins að reglulegt áætlunarflug ætti að vera til staðar að minnsta kosti hálft árið, en eðlilegt er að flugáætlun til Vestmannaeyja sé á ársgrundvelli. Þá jafnvel með meiri tíðni yfir vetrarmánuðina,“ segir Guðbjartur.

Hann bendir á að flugið nýtist meðal annars þeim sem þurfa að sækja læknis- og meðferðarþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og að Vestmannaeyjar séu sérstaklega viðkvæmar þegar kemur að samgöngum.

Að mati Norlandair er núverandi flugvélakostur almennt nægjanlegur fyrir leiðina. Fremur ætti að bregðast við aukinni eftirspurn með fleiri ferðum þegar þörf krefur en að nota stærri vélar sem séu mun dýrari í rekstri.

Nýjustu fréttir

Tæplega 2.000 farþegar nýttu áætlunarflugið
Rakel býður upp á Reikiheilun í Eyjum
ÍBV sækir Þrótt heim í dag
Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Standa þarf vörð um hafrannsóknir
Stórseiðahús reist á aðeins tíu mánuðum
Hafró leggur til minni þorskkvóta en mikla aukningu í loðnu
Leiðin liggur á Eyjuna fögru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.