Vestmannaeyjabær hefur ráðið Línu Katrínu Þórðardóttur í starf deildarstjóra launadeildar. Starfið var auglýst í maí og bárust alls fimm umsóknir. Lína Katrín kemur til starfans með reynslu af fjármálastjórnun, launa- og mannauðsmálum auk verkefnastjórnunar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bæjarins.
Þar segir ennfremur að Lína Katrín hafi lokið BA prófi í viðskiptafræðum og er viðurkenndur bókari að mennt. Hún hefur starfað undanfarin ár hjá Beluga Whale Sanctuary, Sealife Trust við fjármálastjórnun og mannauðs-, launa- og verkefnastjórnun. Hún hefur einnig reynslu af þjónustu við skrifstofustörf og móttöku. Lína Katrín hefur með starfsreynslu sinni verið í teymisvinnu verkefna og í farsælum samskiptum við ólíka hópa, opinberar stofnanir og aðra hagsmunaaðila.
Vestmannaeyjabær býður Línu Katrínu velkomna og hlakkar til samstarfsins, segir að endingu í tilkynningunni.