Í tilefni af Goslokahátíðinni voru tekin stutt viðtöl við börn á aldrinum fimm og sex ára á Víkinni Hamarsskóla um Heimaeyjargosið og minningar sem hafa borist milli kynslóða. Markmiðið var að fá innsýn í hvað yngsta kynslóðin veit um eldgosið og hvernig hún sér fyrir sér atburðina sem mótuðu sögu Vestmannaeyja.
Nafn: Mía Mekkín Valgeirsdóttir.
Aldur: 6 ára.
Hefur þú farið á Goslokahátíð? Ég held ekki. Ég veit ekki hvað það er.
Hvað veistu um eldgosið sem var einu sinni í Vestmannaeyjum? Ég hef heyrt eina sögu sem var í bók. Það var um stelpu sem að týndist í eldgosinu og svo fann hún mömmu og pabba. Ég held hún fann þau, eða ekki. Ég man það ekki alveg.
Hefur einhver í fjölskyldunni þinni sagt þér sögur frá gosinu? Já pabbi minn.
Hvernig heldurðu að það hafi verið að búa í Eyjum þegar gosið byrjaði? Skrýtið. Þegar ég var nýfædd þá kom eldgos, það var skrýtið.
Hvað myndiru gera ef það kæmi eldgos? Þá myndi ég segja ,,mamma það er eldgos, komum í bílinn í Herjólf.”
Hefurðu séð hús sem fóru undir ösku? Já ég hef séð nokkrar myndir og keyrt framhjá húsum. Þau voru gömul.