Kindasögur í Einarsstofu á sunnudaginn
„Íslenska sauðkindin er harðger, úrræðagóð og ævintýragjörn, það vita allir sem hana þekkja,“ segir Guðjón Ragnar Jónasson, menntaskólakennari sem ásamt Aðalsteini Eyþórssyni skrifar bókina Kindasögur sem hann kynnir í Einarsstofu á sunnudaginn. „Í þessari bók eru rifjaðar upp sögur af íslenskum kindum að fornu og nýju, afrekum þeirra, uppátækjum og viðureignum við óblíða náttúru og […]
Jói Listó sýnir á sér nýja hlið í Einarsstofu

Jóhann Jónsson, Jói Listó hefur ekki verið mikið að flagga ljósmyndum sínum þó hann hafi tekið myndir í áratugi. Hann er þekktur fyrir frábærar vatnslitamyndir, hefur myndskreytt leiðbeiningabækur fyrir sjómenn, teiknað frímerki og gert skúlptúra svo eitthvað sé nefnt. Þetta sáum við á frábærri yfirlitssýningu á verkum hans í Einarsstofu fyrr á þessu ári en […]
Loksins – Loksins – Lokastef Safnahelgar á sunnudaginn

Um helgina má segja að sé lokadagur Safnahelgar sem hófst þann 9. nóvember sl. og átti að ná yfir tvær helgar en stundum eru náttúruöflin að stríða okkur Eyjafólki. Ekki alltaf byr þegar von er á gestum eða að við ætlum að bregða undir okkur betri fætinum. Sú var einmitt reyndin laugardaginn 9. nóvember þegar við […]
Katarzyna, Svabbi Steingríms og Jói Listó í Einarsstofu
Nú er komið að tólftu sýningunni í sýningarröðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt. Þau þrjú sem sýna að þessu sinni eru Katarzyna Żukow-Tapioles, Jói Listó og Svavar Steingrímsson. Varð ekki fyrir vonbrigðum Katarzyna, sem er frá Póllandi hefur búið hér síðan í mars sl. og verður gaman að sjá hennar sjónarhorn á Vestmannaeyjar og lífið […]
Tæplega 200 manns mættu á tónleika og til messu
Það var húsfyllir í Landakirkju í gær þar sem lokatónn afmælishátíðar Vestmannaeyjabæjar var sleginn. Dagskráin hófst á tónleikum með landsþekktu listafólki, stórtenórnum Gissuri Páli, söngkonunni Heru Björk og gítarleikarnum Birni Thor. Í kjölfarið sameinuðust kristnir söfnuðir í Vestmannaeyjum í messu, þar sem þau Gissur Páll, Hera Björk og Björn komu fram ásamt Kór Landakirkju og Lofgjörðarsveit Hvítasunnukirkjunnar. Tónlistarfólkið hélt svo í kjölfarið […]
Bræðurnir Egill og Heiðar í 11. Ljósopinu
Þegar Stefán Jónasson, í 100 ára afmælisnefnd Vestmannaeyjabæjar kom með þá uppástungu að fá ljósmyndara í bænum til að sýna myndir sínar á tjaldi í Einarsstofu óraði engan fyrir umfanginu. Reiknað var með kannski þremur eða fjórum laugardögum og kannski tíu ljósmyndurum. Reyndin varð önnur og erum við að sigla í elleftu sýninguna á morgun […]
Lokatónn á glæsilegri afmælishátíð

„Við erum mjög ánægðir með að afmælisnefndin vilji ljúka formlegri afmælisdagskrá með þessum hætti og það gleður okkur að kirkjan taki þátt í afmælisfögnuðinum,“ sagði Viðar Stefánsson, prestur Landakirkju um sameiginlega messu kristinna safnaða og tónleika með landsþekktu listafólki í Landakirkju á sunnudaginn. „Kirkjan hefur svo sannarlega átt sinn sess í sögu Vestmannaeyja og á […]
Bræður mætast í Einarsstofu
Það var létt yfir fólki sem mætti í Einarsstofu á föstudaginn var, þar sem Jói Myndó, Bói Pálma og Halldór Sveins sýndu myndir sínar. Ólíkar sýningar en allar athyglisverðar og skemmtilegar. Í fótspor þeirra feta engir aukvisar þar sem eru bræðurnir Heiðar og Egill Egilssynir sem hafa myndað frá barnæsku og eru enn að. Þetta verður […]
Einstæðir tónleikar og sameiginleg messa í Landakirkju

Á sunnudaginn næsta, 24. nóvember nk. verður einstæður viðburður í Landakirkju þegar kristnir söfnuðir í Vestmannaeyjum sameinast í messu í Landakirkju. Á undan verða tónleikar með landsþekktu listafólki. Það tekur einnig þátt í messunni ásamt kórum safnaðanna. Á eftir verður samkomugestum boðið í hátíðarkaffi í Safnaðarheimilinu. Dagskráin hefst stundvíslega kl. 13:00 með tónleikum þar sem fram […]
Bræðurnir Egill og Heiðar sýna í Einarsstofu
Nú er komið að elleftu sýningunni í sýningarröðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt. Það eru bræðurnir Heiðar og Egill Egilssynir sem sýna í Einarsstofu og nú verða þær á gamla tímanum, klukkan 13.00 á laugardaginn. Þeir bræður byrjuðu ungir að taka myndir og lögðust í siglingar um flest heimsins höf ungir að árum. Það verður […]
Kjör eldri borgara og frítekjuuppbót

Kjör eldri borgara eiga margt sameiginlegt með kjörum öryrkja, en í þessari grein fjalla ég um kjör eldri borgara. En þessir hópar eiga það sannarlega skilið að fjallað sé um kjör þeirra og við finnum leiðir til að bæta lífsgæði þeirra og afkomu. Á ekkert að gera? Það eru ekki margir dagarnir sem ég er […]
Jói Myndó lofar skemmtilegri sýningu
Jóhannes Helgi Jensson, Jói Myndó er yngstur ljósmyndaranna sem taka þátt í sýningaröðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt sem verður í tíunda skiptið í Einarsstofu á föstudaginn klukkan 17.00. Með honum eru Halldór Sveinsson lögregluvarðstjóri og Sigmar (Bói) Pálmason. Hann byrjaði fyrir alvöru að taka myndir árið 2017 en hefur þegar vakið mikla athygli og […]
Bói Pálma, Halldór Sveins og Jói Myndó í Einarsstofu
Það er öflug þrenning sem mætir með myndir sínar í Einarsstofu kl. 17.00 á föstudaginn. Þeir eru Halldór Sveinsson, lögregluvarðstjóri, Jói Myndó og Sigmar Pálmason betur þekktur sem Bói Pálma. Sýningin er hluti af Safnahelgi og sýningarröðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt og er sú níunda í röðinni. Halldór hefur í mörg ár tekið myndir af […]
Tækifæri fyrir ný framtíðarstörf
Þegar fjórða iðnbyltingin er að ryðja sér til rúms í sjávarútvegi með aukinni framleiðni, verðmætasköpun og betri afkomu, fækkar störfum í greininni. Það er því verkefni atvinnulífsins að mæta þeirri þörf með nýjum störfum. Vestmannaeyingar eins og önnur sveitarfélög kalla eftir nýjum opinberum störfum og störfum án staðsetningar. Mikilvægast er að skapa störf, sem eru […]
Ekki láta ræna þig gleðinni

Ein góð vinkona mín notar svo oft orðin ,,Ég læt ekki ræna mig gleðinni“ og ég hreint út sagt elska þessi orð því þau eru mér svo góð áminning í dagsins önn um að það er ég sem stjórna mínum viðbrögðum við því sem lífið er alltaf að henda í mig, og okkur öll. Á hverjum einasta […]
Drottinn leiðir bataferlið

Helgi Rasmussen Tórzhamar, tónlistarmaður og háseti á Herjólfi segist alltaf hafa verið með myndavéladellu og byrjaði snemma að taka myndir. Eyddi líka tímanum í að skoða myndir annarra en það var ekki fyrr en 2012 sem hann tekur til við að taka myndir fyrir alvöru. Þá urðu mikil tímamót í lífi hans. Helgi sýnir myndir á […]
Jóna Heiða og Friðrik Björgvins sýna á laugardaginn

Nú er komið að sjöundu sýningunni í röðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt og þá geysast þau Jóna Heiða Sigurlásdóttir og Friðrik Björgvinsson fram og sýna okkur lítið brot af þeim myndum sem þau hafa tekið í gegnum árin. Eins og áður byrjar sýningin kl.13. í Einarsstofu og stendur í einn til einn og hálfan […]
Jóna Heiða sýnir í Einarsstofu
„Ljósmyndun er eitt af því sem ég nota í myndlistinni. Ég er að skrá það sem ég er að skoða og rannsaka úti í náttúrunni. Flóruna okkar, dýralífið og svo alla þessa heillandi náttúru sem umlykur okkur hér í Vestmannaeyjum,“ segir Jóna Heiða Sigurlásdóttir, myndlistarkona og kennari sem sýnir ljósmyndir sínar í Einarsstofu klukkan 13.00 […]
Guðmundur Gísla og Pétur Steingríms sýna í Einarsstofu
Nú er komið að sjöundu sýningunni í sýningaröðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt og nú geysast fram á völlinn þeir Pétur Steingrímsson og Guðmundur Gíslason. Báðir hafa þeir tekið myndir lengi og fáum við að sjá árangurinn í Einarsstofu klukkan 13.00 á laugardaginn. Pétur man fyrst eftir sér með myndavél í Douglas Dakota flugvél, Þristi […]
Þarf stundum að hafa fyrir hlutunum í ljósmyndun
Hann lét ekki mikið fara fyrir sér á Hásteinsvelli þegar hann byrjaði að taka myndir af meistaraflokki kvenna ÍBV í leik. En engan skal vanmeta. Okkar maður var vel tækjum búinn og einbeittur í því sem hann var að gera. Seinna þegar myndir hans komu fyrir augu almennings á fésbókinni sást að þar var enginn […]