Bæjarráð samþykkir að selja hlut í Landsbankanum

Landsbankinn hefur nýtt heimild til að kaupa eigin hluti í bankanum og gaf hluthöfum kost á að selja hluti sína á tímabilinu 2.–13. mars 2026. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja. Bæjarráð ræddi stöðuna og samþykkti samhljóða að selja hlut sveitarfélagsins í bankanum, sem nemur 0,02%, fáist fyrir hann ásættanlegt verð. Sviðsstjóra stjórnsýslu- […]
Lokaumferðin: ÍBV fær topplið Vals í heimsókn

ÍBV tekur á móti toppliði Vals í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja í kvöld þegar lokaumferð Olísdeildar karla fer fram. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og fara allir leikir umferðarinnar fram á sama tíma. Valur er á toppi deildarinnar með 32 stig eftir 21 leik, með 16 sigra og fimm töp. ÍBV situr í fjórða sæti með 27 stig […]
„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“

Skip Vinnslustöðvarinnar hafa lokið loðnuveiðum vertíðarinnar eftir góðan endasprett og tæplega 18 þúsund tonna afla. Skipstjórinn á Gullberginu segir meira af loðnu hafa sést á miðunum í vetur en í langan tíma. Frá þessu er greint á vef Vinnslustöðvarinnar. Að sögn Sindra Viðarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs hjá Vinnslustöðinni, hefur vertíðin gengið vel. „Við erum búin að […]
Eyjalistinn boðar til félagsfundar

Eyjalistinn heldur félagsfund fimmtudaginn 12. mars klukkan 17 í Líknarsalnum við Faxastíg. Á fundinum verður tillaga uppstillinganefndar um framboðslista Eyjalistans fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 16. maí lögð fram til samþykktar. Allt félagsfólk er hvatt til að mæta og taka þátt í fundinum. Jafnframt er minnt á að þeir sem vilja skrá sig í félagið geta gert […]
Heimaey í dag

Það kennir ýmissa grasa í yfirferð Halldórs B. Halldórssonar um Heimaey í dag. Meðal annars fer hann með okkur rúnt um Íþróttamiðstöðina en þar stendur til að byggja við. Bæjaryfirvöld hafa óskað eftir tilboðum í svokallaða klefabyggingu. Um er að ræða tveggja hæða steinsteypta viðbyggingu við Íþróttamiðstöðina Vestmannaeyjum með léttbyggðu þaki. Á fyrstu hæð verði […]
Besta rekstrarafkoma í 15 ár

Rekstur Vestmannaeyjabæjar jákvæður um 781 milljón Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2025 var tekinn til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í dag. Ársreikningurinn sýnir glögglega sterka stöðu bæjarsjóðs, jákvæða rekstrarafkomu, góða eignastöðu og litlar skuldir. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Vestmannaeyjabæ. Heildarrekstrartekjur samstæðu Vestmannaeyjabæjar voru 10.730 m.kr. og rekstrargjöld 9.553 m.kr. Rekstrarafkoma samstæðunnar (A og B hluta) var jákvæð um rúmar 781 m.kr. sem er […]
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins verður bæði á sjúkrahúsinu og á Hraunbúðum. Þeir sem dveljast á þessum stöðum og geta ekki mætt á kjörstað geta því greitt atkvæði þar. Atkvæðagreiðsla á báðum stöðum fer fram á morgun, fimmtudag 12. mars. Á sjúkrahúsinu verður kosið kl. 12:30 en á Hraunbúðum kl. 14:15. Fulltrúar kjörstjórnar munu mæta á […]
Fundur bæjarstjórnar í beinni

Í dag klukkan 14:00, fer 1624. fundur bæjarstjórnar Vestmannaeyjar fram í Ráðhúsinu og verður fundinum streymt í beinni útsendingu. Á dagskrá fundarins eru meðal annars ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2025, sem tekinn verður til fyrri umræðu, auk umræðu um samgöngumál í Eyjum. Þá verður einnig fjallað um menningarstefnu Vestmannaeyjabæjar, sem lögð er fram til fyrri […]
Ykkar er valið

Prófkjör er mikilvæg og lýðræðisleg leið þar sem flokksbundnum Sjálfstæðismönnum gefst tækifæri til að velja þá einstaklinga sem þeir treysta best til að vera fulltrúar flokksins í komandi kosningum. Það er ekki sjálfgefið að þessi leið sé farin, en í Vestmannaeyjum hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið sá eini sem gefur bæjarbúum raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif […]
Að alast upp í Vestmannaeyjum

Eyjamaðurinn Jón Einarsson heldur úti bráðskemmtilegri Fésbókarsíðu þar sem hann segir frá ferðalögum og öðru sem á daga hans drífur. Hér lítur hann til uppeldisáranna í Vestmannaeyjum og lætur myndir sem hann fann á netinu fylgja með. Gefum Jóni orðið: Ég ólst upp í austurbæ Vestmannaeyja á þeim tíma þegar krakkar voru mest úti allan […]
Fluttu hús í heilu lagi

Óvenjulegt sjónarspil mætti vegfarendum í dag þegar heilt hús var flutt frá Miðstræti og upp á Nýja hraun þar sem það verður við nýja steypustöð sem þar rís. Flutningurinn vakti talsverða athygli, enda ekki á hverjum degi sem hús eru færð í heilu lagi um götur bæjarins. Aðgerðin gekk vel að sögn fréttaritara Eyjafrétta og […]
Sjávarafurðir: Ágætis aukning í febrúar

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam rúmlega 30 milljörðum króna í febrúar. Það er um 13% aukning í krónum talið frá sama mánuði í fyrra. Þar sem gengi krónunnar var að jafnaði um 4% sterkara nú í febrúar en fyrir ári, er aukningin nokkuð meiri í erlendri mynt, eða um 18%. Þetta má greina í fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar […]
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn

Ísfisktogarinn Gullver NS landaði á Seyðisfirði í gær og Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE eru að landa í Þorlákshöfn í dag. Rætt er stuttlega við skipstjórana á vef Síldarvinnslunnar þar sem farið er yfir upplýsingar um aflabrögð og veður. Þórhallur Jónsson, skipstjóri á Gullver, sagði að túrinn hefði verið heldur þreytandi vegna veðurfarsins. „Við […]
Gildin sem móta okkur

Laugardaginn 7. mars fengu allir þeir sem eru í framboði fyrir komandi prófkjör Sjálfstæðisflokksins 3–5 mínútur til að kynna sig fyrir fullum sal í Ásgarði. Það var frábær fundur og mér fannst samframboðsmenn mínir allir standa sig mjög vel. Það var greinilegt að þar er saman komið öflugt fólk sem vill leggja sitt af mörkum […]
Til Sjálfstæðismanna

Ég verð að viðurkenna að það er skrítið að vera í prófkjöri og reyna að ná sæti á lista með vinum sínum, þú ferð út fyrir þægindaramman. Eitt af hlutverkum okkar í pólitík er að upplýsa fólk um stöðuna þó að það sé ekki alltaf vinsælt að segja frá þar sem upplýsingarnar geta leitt til […]
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á síðasta fundi sínum breytingar á skipan í ráðum og nefndum bæjarins samkvæmt 42. grein bæjarmálasamþykktar. Þrír fulltrúar láta af störfum í nefndum bæjarins, en þeir hafa nýverið tilkynnt að þeir hafi gengið til liðs við Miðflokkinn. Sonja Andrésdóttir hættir sem varamaður í fjölskyldu- og tómstundaráði. Í hennar stað kemur Páll Magnússon. […]
Eyjamenn sækja Fram heim

ÍBV sækir Fram heim í Lambhagahöllina í kvöld í 21. umferð Olísdeildar karla í handbolta. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og má búast við hörkuleik þar sem bæði lið berjast um góðar stöður fyrir lokaumferð deildarinnar. ÍBV situr sem stendur í fimmta sæti deildarinnar með 25 stig eftir 20 leiki, jafnt Aftureldingu að stigum. Fram er […]
Á rauðu ljósi í Reykjavík

Einn af uppáhalds útvarpsmönnunum mínum, Ívar Guðmundsson á Bylgjunni, var með athyglisverða pælingu í liðnum Sturluð staðreynd í vetur, en þar kom fram að samkvæmt útreikningum væri meðal biðtími höfuðborgarbúa á rauðu ljósi ca. 6 mánuðir á ári og ég fór að velta þessu fyrir mér í samhengi við ferð okkar hjóna snemma hausts til […]
Draumurinn rættist á 100 ára afmæli – Taflfélag Vestmannaeyja Íslandsmeistari

Taflfélag Vestmannaeyja varð í dag Íslandsmeistari í úrvalsdeild Íslandsmóts skákfélaga eftir sigur á Skákdeild Breiðabliks í lokaumferð mótsins. Titillinn kemur á einstaklega skemmtilegum tíma því félagið fagnar 100 ára afmæli sínu á þessu ári. Eyjamenn fóru inn í lokaumferðina í harðri baráttu um efsta sætið eftir dramatískan sigur kvöldið áður. Í dag tókst liðinu síðan […]
Andlát: Einar Birgir Sigurjónsson

(meira…)