Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna

Í upphafi árs fjölluðu Eyjafréttir um eignfærðan lögfræðikostnað Vestmannaeyjabæjar sem vakti spurningar í kjölfar fyrirspurna blaðamanns. Misræmi milli ​afhen​dra gagna og upplýsinga úr opnu bókhaldi bæjarins nam um 20 milljónum króna í lögfræðikostnaði. Sá kostnaður hafði ekki verið gjaldfærður heldur eignfærður í bókum bæjarins. Síðar kom fram í samskiptum við bæinn að umræddur kostnaður tengdist […]

Opið hús hjá Krabbavörn

Krabbavörn Vestmannaeyja verður með opið hús kl. 19.00 miðvikudaginn 18. mars í Arnardrangi.  Við komum saman og um kl. 19.30 förum við með kerti út á Stakkó. Karlahópur Krabbavarnar hittist á miðvikudagskvöldum kl. 19.00 -21.00. Allir velkomnir, segir í tilkynningu frá félaginu. (meira…)

Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn

Hann var heldur betur lukkulegur tipparinn sem fékk 13 rétta á Enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag, en seðillinn skilaði honum 17.4 milljónum króna í vinning. Tipparinn var orðinn all verulega stressaður fyrir síðasta leikinn á getraunaseðlinum en það var viðureign West Ham og Man. City sem hófst klukkan átta á laugardagskvöldinu. „Ég áttaði mig á því […]

Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar

ithrottam

Í kæru sem lögð hefur verið fram til kærunefndar útboðsmála vegna útboðs Vestmannaeyjabæjar um rekstur heilsuræktar eru ekki aðeins gerðar athugasemdir við hæfiskröfur útboðsins. Í kærunni eru einnig rakin atriði sem kærendur telja varpa ljósi á hvernig staðið hafi verið að rekstri heilsuræktarinnar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja á meðan málið hefur verið til meðferðar. Þar er […]

Lönduðu fullfermi í Grindavík

Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu bæði fullfermi í Grindavík á föstudaginn eftir að hafa verið innan við þrjá sólarhringa að veiðum. Bæði skip voru með blandaðan afla, mest þorsk, ufsa, skarkola og ýsu. Rætt er við skipstjórana um veiðarnar á síðu Síldarvinnslunnar. Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, var ánægður með túrinn. „Við […]

Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan

Barnameinningardagar.

Í kringum sumardaginn fyrsta verður mikið um dýrðir víða á Suðurlandi þegar Barnamenningardagar Suðurlands fara fram dagana 22. til 26. apríl. Þótt löng hefð sé fyrir hátíðarhöldum á þessum tíma verður nú sérstök áhersla lögð á barnamenningu, þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá og skemmtilega viðburði fyrir börn og fjölskyldur um allt Suðurland. […]

Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar

Kæra hefur verið lögð fram til kærunefndar útboðsmála vegna útboðs Vestmannaeyjabæjar um rekstur heilsuræktar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Í kærunni er því haldið fram að lykilskilyrði útboðsins séu svo íþyngjandi að þau takmarki verulega samkeppni. Sérstaklega er deilt um kröfu um að bjóðendur hafi að lágmarki 1.000 milljónir króna í eigið fé og að minnsta kosti […]

Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  

radhustrod_ráðhús_merki_cr

Eyjafréttir óskuðu eftir upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ um lögfræðikostnað. Bærinn synjaði Eyjafréttum um nánari sundurliðun lögfræðikostnaðarins niður á hvaða mál eða verkefni kostnaðurinn tengdist með vísan til þess að slík samantekt myndi krefjast verulegrar handvirkrar vinnu.   Eyjafréttir óskuðu eftir sundurliðun lögfræðikostnaðar síðustu tveggja ára, meðal annars eftir upplýsingum um hvaða mál þjónustan tengdist, hvort um væri að ræða einstök verkefni eða reglubundna […]

Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús

Bæjarráð Vestmannaeyja tók fyrir á síðasta fundi sínum erindi frá Þresti B. Johnsen þar sem hann krafðist skaðabóta vegna framkvæmda við gatnagerð austan við Alþýðuhús. Þröstur telur að framkvæmdirnar hafi valdið rekstrarskaða. Í erindi sínu til bæjarráðs segir hann að aðgengi að húsinu hafi verið lokað beggja vegna í um tvo mánuði í sumar, haust […]

Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi

Í vikunni hefur verið unnið að svokölluðum I/O prófunum á búnaði við sundlaugina og hefur tekist að taka í notkun nær allan búnað kerfisins. Samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ kom hins vegar í ljós þegar hugbúnaðarsérfræðingur kom á verkstað að bæði mótorloki fyrir hitun og lokamótor voru rangir. Nú er beðið eftir réttum búnaði svo hægt […]

ÍBV sækir Hauka heim

ÍBV sækir Hauka heim í dag í 19. umferð Olísdeildar kvenna þegar flautað verður til leiks í Kuehne+Nagel höllinni klukkan 13:00. Eyjakonur eru í harðri toppbaráttu í deildinni og geta með sigri haldið áfram að setja pressu á topplið Vals. ÍBV situr sem stendur í öðru sæti deildarinnar með 30 stig, tveimur stigum á eftir […]

Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Eythor_hardar_opf

Uppfært: kl. 01.50 Lokatölur liggja nú fyrir í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum þar sem raðað var á framboðslista flokksins fyrir komandi kosningar. Samkvæmt niðurstöðunum hafnaði Eyþór Harðarson í efsta sæti listans. Á kjörskrá voru 1.672 og greiddu 1.178 atkvæði sem jafngildir 70,5% kjörsókn. Af þeim voru 36 atkvæði auð eða ógild. Endanleg niðurstaða í efstu […]

Gleðilegan kjördag

Gleðilegan kjördag, kæru vinir. Í dag fer fram í Ásgarði prófkjör Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum. Kjörstaður er opinn frá kl. 14:00 til 22:00. Ég er einn af þeim 14 einstaklingum sem bjóða sig fram í prófkjörinu og sækist eftir 3. sæti. Allir frambjóðendurnir eru frábært fólk sem hefur ákveðið að gefa af tíma sínum og krafti […]

Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst

Þann 5. mars síðastliðinn kláruðust síðustu leikir fjórðu og lokaumferðar Vöruhúsdeildarinnar. Ágúst Gísli gerði sér lítið fyrir og vann alla sína leiki í umferðinni og endar því efstur í Vöruhúsdeildinni þetta árið. Fast á hæla hans kom Garðar B. Sigurjónsson, en Garðar hafði fram að þessu gert sig heimakæran á toppi 1. deildarinnar. Í 2. […]

Fyrir þig en ekki sjálfa sig

Ýmsar manngerðir finnast í pólitík. Sumar hverjar birtast eins og páskaskraut rétt fyrir prófkjör, alveg glansandi glaðar en hverfa um leið og kosningakaffið kólnar. Aðrar skipta um ham eftir veðri og láta ekki sjá sig fyrr en vindar blása þeim í vil. Þá eru það þær sem með eintómu handapati hræra í loftinu einu saman […]

Athugasemd

Eyjafréttir birta í dag það sem kallað er ‘’fréttaskýring’’ eftir Tryggva Má Sæmundsson um drög að ársreikningi Vestmannaeyjabæjar fyrir 2025.  Helstu kennitölur úr ársreikningnum eru birtar eftir fyrri umræðu en reikningurinn sjálfur á að vera meðhöndlaður sem trúnaðarmál þangað til eftir síðari umræðu þar sem hann getur tekið breytingum milli umræðna. Á þessu hefur greinilega […]

Dísa leiðir Eyjalistann

Uppstillingarnefnd Eyjalistans hefur nú lokið störfum og var tillaga að framboðslista kynnt og lögð fram til samþykktar á fjölmennum félagsfundi seinnipartinn í dag. Stjórn Eyjalistans tilkynnir hér með að listinn var samþykktur samhljóða og mikil ánægja var á meðal félagsfólks með listann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá framboðinu. Arna Huld Sigurðardóttir, formaður kom fram […]

Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan

„Loðnan er fremsta víglína japanskrar fiskneyslu,“ segir japanski innkaupastjórinn Tsuyoshi Kashima sem heimsótti Vestmannaeyjar nýlega. Í umfjöllun á vef Vinnslustöðvarinnar er fjallað um heimsókn hans og Hiroshi Okayama, sölustjóra hjá Okada Suisan. Fjallað er um mikilvægi loðnunnar fyrir japanska matarmenningu. Lesa má umfjöllunina hér að neðan. Áhugaverð umræða átti sér stað þegar tveir japanskir samstarfsaðilar […]

Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd

Eyjafréttir birtu fréttatilkynningu Vestmannaeyjabæjar í gær þar sem kom fram að bærinn hafi skilað bestu rekstrarniðurstöðu í 15 ár. Eyjafréttir hafa nú undir höndum eintak af ársreikningnum og okkar greining á honum gefur tilefni til að gera athugasemd við það hvernig bærinn ákvað að kynna rekstrarniðurstöðuna án þess að birta ársreikninginn og gefa þannig fjölmiðlum tækifæri til að greina sjálfstætt fjárhagsniðurstöðurnar.  Helstu niðurstöður Eyjafrétta:  Rekstur A hluta stendur í stað  Bótagreiðsla vegna tjóns […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.