Loðnuvertíð í hámarki

Loðnuvertíðin er nú hafin af fullum krafti og berast fregnir af góðri veiði hjá uppsjávarskipum. Nokkur skip hafa þegar komið með myndarlegan afla til lands og fleiri eru ýmist við löndun eða á leið í höfn, sem gefur til kynna kröftuga byrjun á vertíðinni. Samkvæmt upplýsingum frá Eyþóri Harðarsyni, útgerðarstjóra Ísfélagsins, kláraði Suðurey löndun í […]
Dýpi í Landeyjahöfn ekki nægilegt nema við bestu aðstæður

Dýpi í Landeyjahöfn er enn ekki orðið nægilegt til siglinga til og frá höfninni nema við bestu aðstæður, samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi ohf. Þar segir jafnframt að tilkynning um siglingar Herjólfs seinnipart dags verði gefin út fyrir klukkan 15:00, en fyrsta ferð dagsins var til Þorlákshafnar. Eyjafréttir hafa jafnframt heimildir fyrir því að dýpkunarskipið Álfsnes […]
Aðalfundadagur sjálfstæðisfélaganna í Eyjum

Áður boðaðir aðalfundir sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum verða haldnir í Ásgarði, félagsheimili Sjálfstæðismanna í dag, fimmtudaginn 12. febrúar. Aðalfundur Eyverja verður haldinn kl. 17:00. Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Vestmannaeyja verður kl. 20:00 og aðalfundur Fulltrúaráðs verður kl. 21:00. Á dagskrá fundanna eru venjuleg aðalfundarstörf, segir í tilkynningu frá stjórnum Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum. (meira…)
Herjólfur til Þorlákshafnar

Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar fyrri part dags í dag vegna aðstæðna og dýpis í Landeyjahöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipafélaginu. Þar segir jafnframt að brottför sé frá Vestmannaeyjum er klukkan 07:00 og brottför frá Þorlákshöfn klukkan 10:45. Tilkynning um siglingar seinni part dags verður gefin út fyrir klukkan 15:00. Farþegar eru minntir […]
ÍBV fær Aftureldingu í heimsókn

ÍBV tekur á móti Aftureldingu í 18. umferð Olísdeild karla í kvöld klukkan 19:30 í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Viðureignin gæti reynst afar mikilvæg í baráttunni um efri sæti deildarinnar en aðeins tvö stig skilja liðin að fyrir leikinn. Afturelding situr í þriðja sæti með 23 stig á meðan ÍBV er í sjötta sæti með 21 stig og getur […]
Upphitun sem lofar sannkallaðri Þjóðhátíðarveislu

Telja má niður í stærsta partý ársins þegar Þjóðhátíðarupphitun 2026 fer fram – tónleikar sem ætlaðir eru til að kveikja í brekkusöngsandanum og hita landsmenn rækilega upp fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Með Stuðlabandið í fararbroddi og fjölbreyttan hóp vinsælla listamanna á sviði verður boðið upp á lög sem hafa markað Þjóðhátíð þessarar aldar, ásamt ómissandi sígildum smellum. Hér […]
Fullfermi á báðum togurum

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE eru að gera það gott. Bergey landaði tæplega 50 tonnum í Eyjum á laugardag og er aftur að landa þar fullfermi í dag. Vestmannaey landaði einnig fullfermi í Þorlákshöfn á mánudagskvöld. Rætt er við við skipstjórana á vefsíðu Síldarvinnslunnar í dag. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, var sáttur við […]
Dýpkun tefst í Landeyjahöfn – uppfært

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar í stað Landeyjahafnar í dag vegna ófullnægjandi dýpis í síðarnefndu höfninni. Vegagerðin er ósátt með að ekki sé verið að dýpka í dag, en áætlað er að um 20 þúsund rúmmetra þurfi enn að fjarlægja og gæti verkið tekið allt að fjóra daga við hagstæð skilyrði. Óvissa er um siglingar Herjólfs […]
Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag fimm samninga með Willum Þór Þórssyni, forseta ÍSÍ, Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, formanni UMFÍ, og Þórði Árna Hjaltested, formanni Íþróttasambands fatlaðra, sem saman leggja grunninn að uppbyggingu íþróttastarfs á árinu. Í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu segir að áhersla sé á að bæta og jafna tækifæri fólks til […]
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar

Sjótækni ehf. á Tálknafirði átti lægsta tilboðið í viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar á árunum 2026 til 2029 þegar tilboð voru opnuð í dag, 10. febrúar. Tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á tæpa 1,19 milljarða króna og er það umtalsvert undir kostnaðaráætlun verkkaupa. Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í verkið, en gert er ráð fyrir að dýpka þurfi á bilinu […]
Loðnan berst til Eyja

Fyrsta loðna ársins hefur borist Vinnslustöðinni og er vinnsla komin á fullt. Veiðarnar hafa farið vel af stað og lofa fyrstu farmar vertíðarinnar góðu, að sögn Sindra Viðarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs. Frá þessu er greint á vef Vinnslustöðvarinnar – vsv.is. „Gullberg fór út á föstudagskvöld og var komið á miðin á laugardag. Við hófum vinnslu strax […]
Nær sjötíu manns á þorrablóti Vinnslustöðvarinnar

Endurfundir, góðar minningar og sterk hefð settu svip sinn á þorrablót Vinnslustöðvarinnar í liðinni viku þegar fyrrverandi starfsmenn og makar þeirra komu saman. Fram kemur í frétt á vefsíðu Vinnslustöðvarinnar að góð mæting hafi verið og nutu nær sjötíu gestir þess að hittast á ný, rifja upp liðna tíð og eiga saman ánægjulega kvöldstund. Sérstakan […]
Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum um heimgreiðslur

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt tillögur fræðsluráðs um breytingar á reglum um heimgreiðslur til foreldra barna sem ekki hafa fengið leikskólapláss. Tillögurnar voru áður teknar fyrir á fundi fræðsluráðs 15. janúar og verður framvegis fylgst með áhrifum breytinganna, samkvæmt minnisblaði framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs. Heimgreiðslur eru ætlaðar til að bregðast við umframeftirspurn eftir leikskólaplássum, en tekjutenging […]
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins verður 13. mars

Ákveðið hefur verið að prófkjör Sjálfstæðisflokksins, vegna uppstillingar á lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í maí, verði haldið föstudaginn 13. mars nk. Kjörstaður verður í Ásgarði og þar mun utankjörfundaratkvæðagreiðsla einnig fara fram dagana fyrir prófkjörsdaginn. Opnunartími verður auglýsur sérstaklega þegar nær dregur. Þeir sem áhuga hafa á að taka virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins og hafa […]
Bifreið hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg

Töluvert tjón varð á bifreið þegar hún hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg fyrr í dag. Bílnum var ekið vestur götuna þegar ökumaður missti stjórn með þeim afleiðingum að hann fór út af akbrautinni og endaði á girðingunni. Að sögn Stefáns Jónssonar, yfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni í Vestmannaeyjum, urðu engin slys á fólki, en bifreiðin er mikið […]
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug

(meira…)
Siglt á flóði til Landeyjahafnar

Herjólfur getur nú siglt á flóði og við góðar aðstæður til Landeyjahafnar. Í tilkynningu frá skipafélaginu segir að ferjan sigli til Landeyjahafnar seinnipartinn í dag samkvæmt eftirfarandi áætlun. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 19:30 (Áður ferð kl. 16:00) og 21:30. Brottför frá Landeyjahöfn kl. 20.30 (Áður ferð kl. 19:45) og kl. 22:30. Á morgun, mánudag siglir […]
Svona hefð og svona stund styrkir samfélagið

Thelma Björk Gísladóttir, aðstoðarskólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum, flutti hátíðarræðu við afhendingu Fréttapýramídanna í Eldheimum. Þar lagði hún áherslu á mikilvægi þess að staldra við, sýna þakklæti og gera sýnileg þau framlög sem styrkja samfélagið til lengri tíma. Ræðu sína hóf Thelma á orðinu „takk“ og minnti á að viðurkenning og þakklæti skipti máli, bæði fyrir […]
Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt samhljóða að setja 2. og 3. hæð fasteignarinnar að Ægisgötu 2 í söluferli. Á fundi ráðsins fór Brynjar Ólafsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs yfir verðmat sem unnið var fyrir eignina. Húsnæðisnefnd sveitarfélagsins hafði áður lagt til að þessir hlutar fasteignarinnar yrðu seldir. Fram kemur í fundargerð að skila þurfi inn tilboðum […]
Eyjaliðin í eldlínunni í dag

Áfram heldur keppnin í Olísdeildunum í handbolta í dag þegar bæði lið ÍBV verða í eldlínunni. Karlalið ÍBV sækir Hauka heim í toppslag á meðan kvennaliðið heldur norður til Akureyrar þar sem KA/Þór bíður. Erfiður útileikur hjá körlunum Karlalið ÍBV situr í sjötta sæti Olísdeildarinnar með 19 stig eftir 16 leiki og hefur verið á […]