Fermingarbörn safna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar í dag

Í dag, miðvikudaginn 2.nóvember, munu fermingarbörn ganga í hús hér í Eyjum kl. 17.00- 19.00, og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í Eþíópíu.

Krakkarnir hafa fengið fræðslu um hjálparstarf á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar og fengið að kynnast aðstæðum sem fólkið í Eþíópíu býr við.  Með þessu verkefni erum við minnt á sameiginlega ábyrgð allra á því að öllum séu gefin tækifæri á að lifa mannsæmandi lífi, því öll getum við lagt eitthvað af mörkum til að bæta heiminn.

Börn í fermingarfræðslu hafa í meira en tuttugu ár lagt sitt af mörkum til hjálparstarfs með því að ganga í hús með bauk Hjálparstarfs kirkjunnar. Framlag fermingarbarna er afar mikilvægt en í fyrra söfnuðu fermingarbörn á landinu öllu rúmum 8 milljónum króna með þessum hætti.

Nýjustu fréttir

Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.