Góð veiði og góður fiskur

Á vef Síldarvinnslunnar kemur fram að Vestmannaeyjaskipin Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu bæði fullfermi í Neskaupstað sl. sunnudag. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjórana. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að túrinn hefði gengið vel og blíðuveður hefði verið á miðunum. „Við vorum mest á Gerpisflakinu en komum við á Skrúðsgrunni og Tangaflaki. Aflinn var mest ýsa og dálítill þorskur og þetta var hinn fallegasti fiskur,“ segir Birgir Þór.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, tekur undir með Birgi Þór og segir að vel hafi aflast. „Aflinn hjá okkur var mest ýsa og veiðin var ágæt í túrnum. Við veiddum að mestu á Gula teppinu og á Gerpisflaki. Við þurftum einfaldlega ekki að fara víða, þetta var býsna þægilegt og fiskurinn var með ágætum. Án efa verður haldið áfram hérna fyrir austan um sinn,“ segir Jón.

Þegar rætt var við skipstjórana í gær voru bæði skip að veiðum á Glettinganesflaki.

Nýjustu fréttir

Eyþór treystir verklagi bæjarins – aðrir oddvitar vísa til trúnaðar
Vísindin að baki Kveikjum neistann 
Grettir tekur við af Herði hjá Þekkingarsetrinu
Guðný Geirsdóttir leggur hanskana á hilluna
Heimaeyjargosið í nýrri glæpasögu Margrétar S. Höskuldsdóttur
Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.