Jóna Hrönn - Einstakir gestgjafar
�?g er á akstri nálægt hafnarsvæðinu í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgi. Fyrir framan mig á götunni er glæsilegur Pajero jeppi sem skyndilega hemlar. �?t kemur Guðni �?lafsson skipstjóri og gengur rakleitt að ungum manni sem liggur sofandi upp við húsvegg búinn að fá sér einum of mikið.
�?g sé höfðingjann strjúka vanga piltsins og tala til hans áður en hann reisir hann upp og hjálpar honum upp í bílinn. Síðar um daginn hitti ég Guðna inni í Herjólfsdal, segi honum að ég hafi séð til hans og spyr hvort þarna hafi verið einhver honum tengdur. Nei, Jóna mín, ég veit nú raunar ekki hvað pilturinn heitir, en hann var illa staddur og ég fór með hann heim á Brimhólabraut.
Gerða mín skellti í hann kjötsúpu og svo lagði hann sig örlitla stund áður en ég keyrði hann aftur inn í Dal. �?á var hann aftur orðinn býsna glaður blessaður. �?etta gerðist fyrir 21 ári. �?á var ég prestur í Eyjum og tók m.a. þátt í neyðarvakt gagnvart ofbeldi á þjóðhátíð hverja verslunarmannahelgi.
Á svona hátíð birtist allt litróf mannlífsins í sinni sterkustu mynd. Fjölskyldur sameinast, ástin blómstrar, vináttubönd styrkjast. En svo eru líka hinar dökku hliðar stjórnleysis. Í Eyjum hafa menn alla tíð lagt sig fram í öryggismálum þjóðhátíðargesta.
�?g er afar stolt af forvarnaverkefninu Bleika fílnum þar sem allir geta verið aðilar að þeim skilaboðum að við líðum ekki kynferðisofbeldi í íslensku samfélagi. En besta gæsluliðið í Dalnum eru síðan Eyjamenn sjálfir í hvítu tjöldunum með sinni einstöku gestrisni og ástúð. �?eim fylgir gleði, skemmtilegar hefðir og vökul augu, eins og augun hans Guðna �?lafssonar.
Guð blessi minningu hans. Gleðilega �?jóðhátíð.
�?essi grein séra Jónu Hrannar Bolladóttur, fyrrum prests í Eyjum birtist á visir.is.

Nýjustu fréttir

Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári
Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Skólastarf að hefjast á ný í FÍV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.