Eyjakonur sækja Grindavík/Njarðvík heim

Eyjakonur mæta Grindavík/Njarðvík á JBÓ-vellinum í kvöld þegar 14. umferð Bestu deildar kvenna hefst. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 og mikið er undir í baráttunni um efri hluta deildarinnar. ÍBV situr í 4. sæti deildarinnar með 21 stig eftir 13 leiki, en Grindavík/Njarðvík er í 5. sæti með 16 stig. Með sigri geta Eyjakonur […]
Ný almannavarnalögn gjörbreytir öryggi Vestmannaeyja

Þegar ný vatnslögn milli Landeyjasands og Vestmannaeyja verður tekin í notkun síðar á árinu verða tímamót í öryggi samfélagsins. Þá verða Vestmannaeyjar með tvær sjálfstæðar vatnsleiðslur frá landi og þar með varaleið ef önnur þeirra bilar. Lagning leiðslunnar hófst í vikunni og á miðvikudagskvöld tókst að koma enda hennar í land á Landeyjasandi […]
Makrílvertíðin að hefjast

Makrílvertíðin er að hefjast og hjá Ísfélaginu leggja uppsjávarskipin Heimaey og Sigurður úr höfn í kvöld til veiða. Þótt makrílkvótinn sé ekki stór bíða umfangsmikil verkefni í haust með veiðum á norsk-íslenskri síld, íslenskri síld og vonandi loðnu. Hjá Vinnslustöðinni verður hins vegar ekki farið á makrílveiðar í ár vegna framkvæmda í uppsjávarvinnslunni, en þar […]
Friðrik hleypur fyrir Guðbjörgu Sillu

Hlauparinn Friðrik Benediktsson tekst á við sannkallað þrekvirki næstkomandi laugardag þegar hann tekur þátt í Race Across Scotland 215 mílna utanvegahlaup þvert yfir Skotland. Friðrik hleypur fyrir Guðbjörgu Sillu Viðarsdóttur og rennur allur ágóði áheitasöfnunarinnar til hennar og fjölskyldu hennar. Hlaupastyrkur Minningarsjóðs Gunnars Karls Haraldssonar er í ár tileinkaður Guðbjörgu Sillu, 17 ára Eyjastelpu sem […]
Sara Björk heldur á vit nýrra ævintýra á Akureyri

Útskrift 10. bekkinga markar tímamót í lífi margra ungmenna. Við fengum að heyra í nokkrum útskriftarnemum úr Grunnskóla Vestmannaeyja sem líta til baka á grunnskólaárin og segja frá því sem stendur upp úr, auk þess sem þau segja frá því sem tekur við í haust. Sara Björk Bjarnadóttir er ein þeirra nemenda sem kvaddi Grunnskóla […]
Aflaheimildir til strandveiða auknar um 964 tonn

Innviðaráðherra hefur á ný aukið aflaheimildir til strandveiða á yfirstandandi strandveiðitímabili með breytingu á reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla. Með breytingunni er aflamark þorsks til strandveiða aukið um 964 tonn, úr 13.350 tonnum í 14.314 tonn. Með þessu nemur heildarafli sem úthlutað verður til strandveiða upp úr sjó 15.664 tonnum árið 2026. Þetta […]
Andlát: Kristinn Viðar Pálsson

(meira…)
Endi nýju vatnsleiðslunnar kominn í land

Mikilvægum áfanga í lagningu nýrrar vatnsleiðslu milli lands og Vestmannaeyja var náð í kvöld þegar endi leiðslunnar var dreginn upp í fjöru á Landeyjasandi eftir að sterkur straumur hafði tafið verkið. Mikill straumur tafði framkvæmdina í gær en um klukkan tíu í kvöld tókst að koma enda nýju vatnsleiðslunnar milli Vestmannaeyja og lands upp í […]
147 komu á heilsugæsluna og í sjúkraskýlið

Um 95 einstaklingar leituðu á heilsugæsluna í Vestmannaeyjum um Þjóðhátíðarhelgina og 52 í sjúkraskýlið í Herjólfsdal. Heilbrigðisstofnun Suðurlands var með aukinn viðbúnað og heilsugæslan opin allan sólarhringinn. Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum stóð vaktina yfir Þjóðhátíð og tryggði öryggi gesta og íbúa með öflugri mönnun og góðu samstarfi við aðra viðbragðsaðila. Ólíkt venjulegum helgum, þegar […]
Einstakt sjónarspil yfir Vestmannaeyjum eftir viku

Vestmannaeyingar fá tækifæri til að upplifa eitt magnaðasta sjónarspil náttúrunnar miðvikudaginn 12. ágúst, þegar nær almyrkvi á sólu verður sýnilegur yfir Eyjum. Þótt Vestmannaeyjar verði rétt utan þess svæðis þar sem alsólmyrkvi sést verður myrkvinn engu að síður afar áhrifamikill. Tunglið mun hylja um 99,4 prósent af sólarskífunni, þannig að dagsbirtan dofnar verulega og á hámarki […]
Nýja vatnslögnin á leið til Eyja

Lagning nýju vatnslagnarinnar milli Landeyjasands og Vestmannaeyja hófst í gærkvöldi þegar lagningarskipið Seven Navica lét úr höfn í Vestmannaeyjum um klukkan 19.00. Skömmu síðar fór björgunarbáturinn Þór til móts við skipið. Hlutverk áhafnar Þórs er að koma enda leiðslunnar í land og sjá um frágang hennar þegar lagningu lýkur. Þrátt fyrir að ekki hafi enn […]
Birkir meðal öflugustu stjórnenda undir fertugu

Birkir Ágústsson, sonur Iðunnar og Gústa, hefur á undanförnum árum verið í fararbroddi við uppbyggingu Sjónvarps Símans Premium og þróun miðla- og markaðsstarfs Símans. Hann er kvæntur Ásu Guðrúnu og saman eiga þau þrjú börn. Nýverið var Birkir valinn á 40/40 lista Góðra samskipta, þar sem árlega eru heiðraðir 40 stjórnendur undir fertugu sem þykja […]
Samfélagið má ekki afskrifa tossana

„Ég var með 1,5 í meðaleinkunn þegar ég kláraði tíunda bekk,“ segir Sigurjón Ingvarsson, byggingastjóri og einn helsti drifkrafturinn að uppbyggingu verknáms við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. Frásögn hans er ein margra sem vaki hafa athygli í nýjasta blaði Eyjafrétta. Sigurjón segir frá lífshlaupi sínu sinni og litlum áhuga á námi á yngri árum. Hann komst […]
Áform um 120 herbergja hótel í Hásteinsgryfju

Bæjarráð Vestmannaeyja vill að skoðuð verði gerð viljayfirlýsingar vegna áforma um uppbyggingu 120 herbergja hótels í Hásteinsgryfju. Stjórnsýslu bæjarins hefur verið falið að vinna málið áfram. Þröstur B. Johnsen hefur óskað eftir að fá úthlutað landi í Hásteinsgryfju fyrir uppbyggingu 120 herbergja hótels. Umhverfis- og skipulagsráð vísaði erindinu til bæjarráðs þar sem lóðin sem um […]
ÍBV fær Aron Lucas á láni frá Selfossi

Knattspyrnudeild ÍBV hefur fengið Aron Lucas Vokes á láni frá Selfossi út þetta tímabil. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum. Aron Lucas er fæddur árið 2004 og lék upp alla yngri flokka Selfoss. Þá á hann að baka 75 meistaraflokksleiki með Selfossi og hefur skorað í þeim 17 mörk. ,,Við hjá ÍBV teljum Aron falla […]
Anton Frans, Morgan Goði og Sigurmundur Gísli komnir áfram í 8-liða úrslit EM með u-18 ára landsliðinu

Eyjastrákarnir, Anton Frans Sigurðsson, Morgan Goði Garner og Sigurmundur Gísli Unnarsson eru komnir áfram í 8-liða úrslit með u-18 ára landsliði Íslands, á Evrópumótinu í handbolta sem fer fram í Serbíu. Strákarnir hafa unnið alla leiki sína á mótinu til þessa. Strákarnir unnu þrjá leiki sannfærandi í riðlakeppninni og tóku með sér tvö stig í […]
ÍBV semur við markmann frá Serbíu

Knattspyrnudeild ÍBV hefur samið við serbneska markmanninn Ivan Vidrih. Hann hefur nú þegar fengið félagsskipti og má vera í leikmannahópi ÍBV þegar þeir spila gegn Víking Reykjavík á sunnudaginn. Fótbolti.net greindi frá. Vidrih sem er 21 árs kemur frá FK Buducnost sem leikur í þriðju efstu deild í Serbíu. Hann er uppalinn í Partizan og […]
HSU vinnur að úrbótaáætlun en svarar ekki spurningum um mönnun

Heilbrigðisstofnun Suðurlands segist taka niðurstöðum úttektar embættis landlæknis á Hraunbúðum alvarlega og að umbætur séu þegar hafnar. Stofnunin svarar hins vegar ekki einstökum spurningum Eyjafrétta um meðal annars mönnun, úrvinnslu atvika, lyfjaferlið og starfsmannaveltu. HSU vinnur nú að úrbótaáætlun vegna þeirra athugasemda sem fram koma í nýlegri úttekt embættis landlæknis á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Díana […]
Glæsileg skipakoma til Eyja

Það er alltaf tignarleg sjón þegar skip siglir inn til Vestmannaeyja með Heimaklett og hafnarmynnið í bakgrunni. Halldór B. Halldórsson var á ferðinni með myndavélina í gær, mánudaginn 3. ágúst, og fangaði þessa glæsilegu skipakomu til Eyja. Myndbandið má sjá hér að neðan. (meira…)
Vestmannaeyjar hluti af því hver maður er

Páll Magnússon, fjölmiðlamaður og fráfarandi forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja eftir fjögurra ára setu er viðmælandi í stóru viðtali við Ómar Garðarsson í síðasta blaði Eyjafrétta. Í viðtalinu fer Páll um víðan völl. Ræðir sterka stöðu Vestmannaeyja og framtíðarsýn fyrir samfélagið, samgöngumálin, uppbyggingu atvinnulífsins og árin í bæjarstjórn. En ekki síður rifjar hann upp persónulegar sögur úr […]