Sunnudagurinn á Þjóðhátíð í máli og myndum

Sunnudagurinn á Þjóðhátíð var sannkallaður hátíðardagur í Herjólfsdal. Blíðskaparveður lék við gesti sem nutu fjölbreyttrar dagskrár og einstakrar stemningar frá degi og fram á nótt. Hápunktur kvöldsins var hinn árlegi brekkusöngur, sem að þessu sinni var í fyrsta sinn undir stjórn Ágústs Brynjarssonar. Gestir tóku vel undir sönginn áður en hin hefðbundnu blys voru tendruð […]
Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn

Síðasti dagur Þjóðhátíðar fór fram í blíðskaparveðri. Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði þó í ýmis horn að líta þegar leið á nóttina og gistu fimm einstaklingar fangageymslur. Tvær líkamsárásir voru tilkynntar og fimm fíkniefnamál komu upp. Þá var sparkað í lögreglumann við skyldustörf og sjúkraflutningamaður sleginn. Hátíðargestir eru nú farnir að halda frá Vestmannaeyjum. Lögreglan þakkar […]
Þjóðhátíð meðal þeirra best heppnuðu á síðari árum

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum lauk undir morgun eftir afar vel heppnaða hátíð. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnendum gæslumála bendir allt til þess að hún hafi verið meðal þeirra best heppnuðu á síðari árum. Hátíðin fór afar vel fram og einkenndist af virðingu, tillitssemi og vinsemd meðal gesta, að því er fram kemur í tilkynningu frá þjóðhátíðarnefnd. Um […]
Laugardagurinn á Þjóðhátíð í máli og myndum

Laugardagurinn á Þjóðhátíð var sannkallaður hátíðardagur í Herjólfsdal. Blíðskaparveður lék við gesti sem fjölmenntu í Dalinn og nutu fjölbreyttrar dagskrár frá degi og fram á nótt. Fjölskyldufólkið tók daginn snemma og þegar leið á kvöldið færðist aukinn kraftur í hátíðarhöldin. Fjöldi listamanna steig á stóra sviðið, stemningin magnaðist jafnt og þétt og flugeldasýningin setti svo […]
Sex gistu fangageymslur eftir annasama nótt

Talsverður fjöldi skemmti sér í Herjólfsdal í blíðskaparveðri í nótt og hafði lögreglan í Vestmannaeyjum í ýmis horn að líta. Sex einstaklingar gistu fangageymslur. Lögreglan hélt uppi öflugu fíkniefnaeftirliti og komu níu fíkniefnamál upp. Eitt þeirra er til rannsóknar vegna gruns um sölu fíkniefna. Þá voru tvær minniháttar líkamsárásir tilkynntar til lögreglu auk þess sem […]
Ein með öllu og Innipúkinn fengu sviðsljósið

Yfirferð á sjónvarpsfréttum RÚV síðustu daga vekur upp spurningar um forgangsröðun ríkismiðilsins um verslunarmannahelgina. Á meðan Ein með öllu á Akureyri og Innipúkinn í Reykjavík fengu ítrekaða og jákvæða umfjöllun um tónleika, mannlíf og hátíðarstemningu, var Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum nær ósýnileg – þar til eitthvað neikvætt gerist. Í vikunni sýndi RÚV stutta frétt um undirbúning […]
Dagskrá sunnudags á Þjóðhátíð

Sunnudagurinn markar lokadag Þjóðhátíðar og líkt og fyrri dagana verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fram á nótt. Barnadagskráin hefst um miðjan dag en um kvöldið tekur við úrslit Söngvakeppni barna, kvöldvaka og hinn margrómaði brekkusöngur undir stjórn Ágústs Þórs Brynjarssonar. Að honum loknum verða blysin tendruð áður en síðustu miðnæturtónleikarnir fara fram. 14:30 Barnadagskrá […]
Ágúst Þór brekkusöngvari Þjóðhátíðarinnar

Ágúst Þór Brynjarsson er 26 ára söngvari, lagahöfundur og tónlistarmaður frá Húsavík. Undanfarin ár hefur hann verið áberandi í íslensku tónlistarlífi, bæði sem trúbador og meðlimur í Stuðlabandinu, auk þess sem hann vakti athygli sem keppandi í Söngvakeppni RÚV. Í ár tekur hann að sér eitt stærsta verkefni ferilsins hingað til þegar hann stýrir brekkusöngnum […]
Alltaf stuð í Eyjum

Líf og fjör hefur verið í Vestmannaeyjum í dag enda Þjóðhátíð komin á fullt. Bærinn iðar af lífi, gestir njóta góða veðursins og hátíðarstemningin leynir sér ekki. Halldór B. Halldórsson var á ferðinni með myndavélina í dag og fangaði stemninguna í bænum og Herjólfsdal. Afraksturinn má sjá í myndbandinu hér að neðan. (meira…)
ÍBV tapaði Þjóðhátíðarleiknum gegn Fram

ÍBV og Fram mættust í fyrsta leik 17. umferðar Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í Þjóðhátíðarleik í dag, þar sem Fram hafði betur 1-2. Fyrri hálfleikur var frekar bragðdaufur og voru Eyjamenn í vandræðum með að skapa sér alvöru færi. Framarar komust yfir á 17. mínútu leiksins þegar Sigurður Arnar Magnússon varð fyrir því óláni […]
Þjóðhátíð fær fljúgandi start

Fyrsta kvöld Þjóðhátíðar fór vel fram og var Herjólfsdalur fullur af lífsglöðum hátíðargestum, að því er fram kemur í tilkynningu frá þjóðhátíðarnefnd. Dagskráin á stóra sviðinu náði hámarki þegar Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör buðu upp á kraftmikla syrpu af vinsælustu lögum sínum. Þau enduðu síðan á að frumflytja þjóðhátíðarlagið í ár, Flugelda. Brennan var […]
Sex fíkniefnamál og einn ölvunarakstur

Setning Þjóðhátíðar fór fram í blíðskaparveðri í Herjólfsdal í gær. Við setningu Þjóðhátíðar blessaði Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, hátíðina. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum fór hátíðin vel af stað og virðast gestir komnir til þess að skemmta sér og öðrum. Lögreglan heldur sem fyrr úti öflugu fíkniefnaeftirliti á Þjóðhátíð. Sex minniháttar fíkniefnamál komu upp […]
Enn bíðum við eftir Þjóðhátíð í fréttatíma RÚV

Fyrir fjórum árum skrifaði ég pistil eftir að hafa orðið fyrir sárum vonbrigðum með að setning Þjóðhátíðar skyldi ekki fá pláss í fréttatíma RÚV. Í gærkvöldi rifjaðist sá pistill óneitanlega upp. Í Herjólfsdal fór fram fjölmenn og hátíðleg setningarathöfn í einstöku veðri þar sem Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, flutti hugvekju. Þúsundir hátíðargesta mættu í […]
Þjóðhátíðarleikur á Hásteinsvelli í dag – Fram mætir í heimsókn

ÍBV tekur á móti Fram á Hásteinsvelli í fyrsta leik 17. umferðar Bestu deild karla í dag. Flautað verður til leiks klukkan 14:00. Eyjamenn eru í áttunda sæti deildarinnar með 16 stig eftir 16 leiki. Fram situr í þriðja sæti með 34 stig og hefur því nokkuð mikið forskot á ÍBV. Leikurinn skiptir Eyjamenn miklu […]
Dagskrá laugardags á Þjóðhátíð

Eftir vel heppnaðann föstudag Þjóðhátíðar tekur laugardagurinn við með viðburðaríkri dagskrá. Fjölskylduskemmtun setur svip sinn á daginn en þegar líður á kvöldið færist fjörið yfir á Brekkusvið þar sem tónlistarfólkið stígur á svið. Að venju verður flugeldasýningin á miðnætti einn af hápunktum dagsins áður en miðnæturtónleikarnir halda stemningunni áfram langt fram á nótt. 14:30 Barnadagskrá […]
Hvítu tjöldin – Skinkuhornin hafa fylgt Þjóðhátíðinni frá árdaga

Undirbúningurinn hjá fjölskyldu Drífu Þallar er að hennar sögn nokkuð hefðbundinn. „Bakstur, mála súlur ef þess þarf, kanna stöðuna á húsgögnunum og svona,“ segir hún. Fjölskyldan er aðeins á sínu þriðja ári með eigið tjald en áður var hún með Gáfumannafélaginu. Því segir Drífa að sérstakar hefðir í nýja tjaldinu eigi eflaust enn eftir að […]
Föstudagskvöldið í Dalnum í máli og myndum

Fjölmenni var í Herjólfsdal í gærkvöldi þegar fyrsta kvöldvaka Þjóðhátíðar fór fram í góðri stemningu. Mucky Muck, Daniil og Hipsumhaps stigu á svið og héldu uppi fjörinu áður en kom að frumflutningi þjóðhátíðarlagsins í ár. Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör fluttu lagið við góðar undirtektir hátíðargesta. Hápunktur kvöldsins var síðan þegar kveikt var í brennunni […]
Doctor Victor snýr aftur á stóra sviðið

Victor Guðmundsson, betur þekktur sem Doctor Victor, hefur verið fastagestur á Þjóðhátíð í rúman áratug. Hann átti sér lengi þann draum að spila á stóra sviðinu í Herjólfsdal og hefur nú þegar látið þann draum rætast. Í ár snýr hann aftur á sviðið með nýtt efni í farteskinu. Eftir að hafa flutt til Eyja fyrir […]
Frá Dauðagámnum í Hvíta tjaldið

Magnús Bragason flutti hátíðarræðu Þjóðhátíðar við setningu hátíðarinnar í Herjólfsdal. Í ræðu sinni fjallaði hann um samheldni Eyjamanna, ómetanlegt framlag sjálfboðaliða og þann einstaka galdur sem felst í því að Þjóðhátíð fylgir fólki í gegnum lífið. Magnús rifjaði jafnframt upp skemmtilegar minningar frá hátíðum liðinna ára og sagði það ekki eingöngu fæðingarstaðinn sem geri fólk […]
Mikið fjölmenni við setningu Þjóðhátíðar

Mikið fjölmenni kom saman í Herjólfsdal í blíðskaparveðri í dag þegar Þjóðhátíð 2026 var formlega sett. Hörður Orri Grettisson, formaður ÍBV, setti hátíðina og gerði áratugalangar hefðir og þrotlausa vinnu sjálfboðaliða íþróttafélaganna Þórs og Týs að umtalsefni. Sagði hann sjálfboðaliðana hafa lagt grunninn að þeirri Þjóðhátíð ÍBV sem landsmenn þekkja í dag. Færði hann þeim […]