Hvítu tjöldin – Baksturinn kemur fjölskyldunni í Þjóðhátíðargírinn

Hjá Hrafnhildi Helgadóttur og Jóhanni Þorvaldssyni, Jóa, er undirbúningurinn samofinn Þjóðhátíðarstemningunni. Þar á hver sinn þátt í að koma öllu í stand. „Það er náttúrlega skyldumæting hjá Jóa í undirbúninginn í Dalnum. Súpan hjá Hrafnhildi hefur alltaf verið fastur liður á föstudeginum á pallinum. Baksturinn hjá okkur fjölskyldunni vikuna fyrir hátíðina er stór partur af […]
Aldrei neitt sem toppar þessa helgi

Á þjóðhátíðinni eiga allir sínar hefðir, uppáhaldslög og minningar sem gera hátíðina einstaka. Við heyrðum í nokkrum Eyjamönnum og fengum þau til að svara nokkrum spurningum um þjóðhátíðina, tilhlökkunina, uppáhaldshefðirnar og það sem má ekki vanta í tjaldið. Nafn: Svava Kristín Grétarsdóttir. Fjölskylda: Ég á eina dóttur, Andreu Kristnýju Gretars. Hvernig leggst Þjóðhátíðin í þig? […]
Ískaldur bjór og mikill hlátur, þá er allt fullkomið

Á þjóðhátíðinni eiga allir sínar hefðir, uppáhaldslög og minningar sem gera hátíðina einstaka. Við heyrðum í nokkrum Eyjamönnum og fengum þau til að svara nokkrum spurningum um þjóðhátíðina, tilhlökkunina, uppáhaldshefðirnar og það sem má ekki vanta í tjaldið. Nafn: Sigurður Bragason Fjölskylda: Giftur Elísu Sigurðardóttur og saman eigum við 2 stelpur, Lilju og Emilíu. Hvernig leggst þjóðhátíðin í þig? Bara eins og allar hinar, ég er bara mjög peppaður. Það verður að viðurkennast að maður þráir eina svona bongóblíðu hátíð. Síðustu 2 hafa verið vel litaðar af veðri. Eigum við ekki skilið að fá eina mjög góða? Hversu oft hefur þú farið á þjóðhátíð? Misst af einni (1983) þannig að þær eru orðnar 48. Hvað stendur upp úr á hverju ári? Hjá mér er það að sjálfsögðu brennan. Ég […]
HSU með sólarhringsviðbúnað yfir Þjóðhátíð

Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum verður með öflugan viðbúnað allan sólarhringinn yfir Þjóðhátíðarhelgina. Bráðamóttaka heilsugæslunnar verður opin allan sólarhringinn og verður starfsfólk HSU vel merkt. Þá verða sjúkraflutningar með aukinn viðbúnað vegna hátíðarinnar. Hjúkrunarfræðingar verða jafnframt með viðveru í sjúkraskýlinu í Herjólfsdal frá klukkan 20 á kvöldin til klukkan 8 að morgni. „Njótið Þjóðhátíðarinnar, passið vel […]
Tveir gistu fangageymslur eftir húkkaraballið

Hið árlega húkkaraball fór fram í blíðskaparveðri í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Að sögn lögreglu var nóttin fremur róleg og góður bragur á skemmtanahaldinu. Tveir gistu þó fangageymslur vegna ölvunar. Lögreglan verður sem fyrr með mikinn viðbúnað yfir Þjóðhátíð og mun leggja sérstaka áherslu á að koma í veg fyrir vopnaburð hátíðargesta. Tekið verður hart á […]
Hver Þjóðhátíð hefur sinn sjarma

Á þjóðhátíðinni eiga allir sínar hefðir, uppáhaldslög og minningar sem gera hátíðina einstaka. Við heyrðum í nokkrum Eyjamönnum og fengum þau til að svara nokkrum spurningum um þjóðhátíðina, tilhlökkunina, uppáhaldshefðirnar og það sem má ekki vanta í tjaldið. Nafn: Lilja Dröfn Kristinsdóttir Fjölskylda: Ég kem úr Ás-ættinni. Móðir mín heitir Magnea Richardsdóttir og faðir minn, […]
Hvítu tjöldin – Undirbúningur hefst strax að hátíð lokinni

Hjá fjölskyldu Þóru Gísladóttur er undirbúningurinn fyrir Þjóðhátíð orðinn að umfangsmiklu fjölskylduverkefni og hefst í raun strax að lokinni hátíð árið áður. „Undirbúningurinn er eiginlega þrískiptur. Strax eftir Þjóðhátíðina förum við í að skrá hvað vantaði eða hvað þarf að panta fyrir næstu hátíð. Síðan förum við að huga að þema fyrir tjaldið og pöntum […]
Húkkaraballið – myndir

Húkkaraballið fór fram með pompi og prakt í gærkvöldi og var óhætt að segja að þar hafi verið líf og fjör. Fjöldi fólks mætti til að hita upp fyrir Þjóðhátíðina og var stemningin með besta móti. Húkkaraballið hefur um árabil markað upphaf Þjóðhátíðarinnar og skapað einstaka stemningu í bænum áður en dagskráin í Herjólfsdal hefst […]
Samveran í Dalnum stendur upp úr

Á þjóðhátíðinni eiga allir sínar hefðir, uppáhaldslög og minningar sem gera hátíðina einstaka. Við heyrðum í nokkrum Eyjamönnum og fengum þau til að svara nokkrum spurningum um þjóðhátíðina, tilhlökkunina, uppáhaldshefðirnar og það sem má ekki vanta í tjaldið. Nafn: Bjarni Rúnar Einarsson. Fjölskylda: Unnustan Arna Hrund og börnin Einar Bent, Myrra Rún og Björt. Hvernig leggst Þjóðhátíðin í þig? Nokkuð vel. Mér finnst alveg kominn tími á betra veður en hefur verið undanfarin ár. Hversu oft hefur þú farið á Þjóðhátíð? Ég held að þessi verði sú fertugasta. Hvað stendur upp úr á hverju ári? Fyrst og fremst samveran með fjölskyldu og vinum. Annars finnst mér brennan og brekkusöngurinn oftast standa upp úr. Uppáhalds Þjóðhátíðarhefðin? Tjöldunin. Svo er skyldumæting á setninguna og ég elska að fá heita súpu uppi í tjaldi þegar komið er úr brekkunni á kvöldin. Hvert er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið? Þau eru nú mörg mjög góð, en þau sem […]
Birgitta Haukdal spennt að mæta í dalinn í kvöld

Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör sameina krafta sína í Þjóðhátíðarlaginu Flugeldar, þar sem þau blanda saman ólíkum tónlistarheimum í ferskri nálgun á hina rótgrónu hefð. Í viðtali við Eyjafréttir segir Birgitta frá því hvernig samstarfið varð til, hvað kom henni mest á óvart í sköpunarferlinu og hvers vegna Þjóðhátíð á sérstakan stað í hjarta hennar. […]
Skiptitaskan mikilvæg þessa hátíðina

Á þjóðhátíðinni eiga allir sínar hefðir, uppáhaldslög og minningar sem gera hátíðina einstaka. Við heyrðum í nokkrum Eyjamönnum og fengum þau til að svara nokkrum spurningum um þjóðhátíðina, tilhlökkunina, uppáhaldshefðirnar og það sem má ekki vanta í tjaldið. Nafn: Ólöf María Stefánsdóttir Fjölskylda: Daði Magnússon og Dagur Daðason. Hvernig leggst þjóðhátíðin í þig? Mjög vel! […]
Vígslukvöld í Herjólfsdal — myndir og myndbönd

Hefð er fyrir því að ýmis mannvirki í Herjólfsdal séu vígð á fimmtudagskvöldinu fyrir Þjóðhátíð og engin breyting varð þar á í gærkvöldi. Góð stemning ríkti í Dalnum þegar gestir komu saman við Mylluna og Vitann hjá félögum í VKB. Við Mylluna fór Jóhann Pétursson að venju með hnitmiðaða vígsluræðu við góðar undirtektir viðstaddra. Vígslan […]
Bærinn leggur út 461 milljón á meðan beðið er svara

Vestmannaeyjabær greiðir 461,4 milljónir króna til NOV vegna kaupa á almannavarnarlögninni NSL-4. Greiðslan verður fjármögnuð með handbæru fé bæjarins, en áætlaður heildarkostnaður við verkefnið er um þrír milljarðar króna. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna kaupanna. Ekki hafði verið gert ráð fyrir greiðslunni í fjárheimildum ársins þar sem bæjarstjórn telur […]
Fjölskyldufjör á sjó í blíðunni

Þegar loksins kemur alvöru sumarveður í Eyjum er um að gera að nýta það. Það gerði Óskar Pétur, ljósmyndari Eyjafrétta, á sunnudaginn þegar hann skellti sér í siglingu með fjölskyldunni á sæþotu og hraðbát, í boði Guðmundar Pálssonar múrarameistara. Með í för voru dóttir hans, Valgerður Erla, og Brynjólfur Ásgeir, maður hennar, ásamt barnabörnunum Kára Kristni, Malín […]
Dagskrá föstudags á Þjóðhátíð

Þjóðhátíðin hefst á morugn með formlegri setningu, en að henni lokinni tekur við barnadagskrá á Tjarnarsviði áður en kvöldvakan og tónleikarnir hefjast. Hápunktar kvöldsins verða án efa frumflutningur Þjóðhátíðarlagsins og brennan á Fjósakletti. Dagskráin er fjölbreytt og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. 14:30 Setningar Þjóðhátíðar – Þjóðhátíð sett: Hörður Orri Grettisson, […]
Þvílíkt útsýni yfir hátíðarbúinn Herjólfsdal

Hvað er betra en Þjóðhátíð í góðu veðri? Að því spyr Halldór B. Halldórsson kvikmyndagerðarmaður í nýjasta myndbandi sínu, sem hann tók í blíðunni í morgun. Í myndbandinu flýgur Halldór dróna sínum yfir Herjólfsdal, sem nú er kominn í sannkallaðan hátíðarbúning. Fjöldi fólks hefur lagt hönd á plóg undanfarna daga við að koma Dalnum í […]
Þjóðhátíð skiptir sköpum fyrir fjölskyldur í samfélaginu

Undirbúningur fyrir Þjóðhátíð er á fullu og þessa dagana færist sífellt meira líf yfir Herjólfsdal. Fjöldi fólks leggur hönd á plóg við að gera Dalinn kláran fyrir stærstu helgi ársins í Vestmannaeyjum. Þar fara saman ótal verkefni, stór og smá, sem þarf að leysa áður en fyrstu gestirnir mæta. Ellert Scheving Pálsson, framkvæmdastjóri ÍBV og […]
Vilmar ráðinn framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV

Vilmar Þór Bjarnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV. Hann tekur við af Þorláki Sigurbirni Sigurjónssyni, sem hefur sinnt starfinu um nokkurt skeið. Vilmar Þór er öllum hnútum kunnugur hjá ÍBV en hann starfaði sem framkvæmdastjóri deildarinnar á árunum 2019-2023. Í tilkynningu ÍBV segir: ,,Á sama tíma og handknattleiksráð vill þakka Þorláki fyrir sín störf […]
Guðbjörg Helgadóttir er Eyjamaðurinn

Það eru ófáar vinnustundirnar sem liggja að baki því að gera Þjóðhátíð að þeirri hátíð sem heimamenn þekkja og elska. Áður en fyrstu gestirnir mæta í Herjólfsdal hafa fjölmargir aðilar og sjálfboðaliðar lagt á sig mikla vinnu við undirbúninginn, oft án þess að fá mikið sviðsljós. Eyjamaður mánaðarins að þessu sinni er Guðbjörg Helgadóttir, en […]
París er ódýrari – Kannski ef þú býrð í Reykjavík

Það bregst varla. Á hverju sumri birtist einhver úttekt sem á að sýna fram á að ódýrara sé að skella sér til útlanda en á Þjóðhátíð. Í ár eru það París, Mílanó og Gdansk sem eiga að vera hagkvæmari kostur en Herjólfsdalur. Það má vel vera. Ef þú býrð í Reykjavík. Það er nefnilega dálítið sérkennilegt […]