Gleðilega Þjóðhátíð

Á morgun er setning Þjóðhátíðar. Hátíðin okkar í Herjólfsdal er upplifun sem á sér enga hliðstæðu og það er alltaf jafn gaman að sjá Heimaey bókstaflega fyllast af fólki sem kemur saman til að gleðjast og gleðja aðra. Við Eyjamenn hefjum undirbúninginn löngu fyrir hátíðina. Margt er í föstum skorðum og sumar hefðir hafa lifað […]
Búslóðaflutningar leyfðir í Herjólfsdal í dag

Í dag, fimmtudag hefjast búslóðaflutningar í hvítu tjöldin í Herjólfsdal. Súlur voru reistar í gær á fráteknum stæðum og í dag má flytja innanstokksmuni inn í Herjólfsdal. Flutningarnir fara fram á tveimur tímabilum yfir daginn og halda síðan áfram á morgun, föstudag,. Í dag verða búslóðaflutningar á eftirfarandi tímum: 11:30–15:00 17:30–20:00 Á morgun, föstudag, verður […]
Þjóðhátíð í aðalhlutverki í nýjum Eyjafréttum

Nýtt 36 síðna tölublað Eyjafrétta kom út í morgun. Blaðið er að stórum hluta helgað Þjóðhátíð, fólkinu sem kemur að undirbúningi hennar, hefðunum og sögunum sem gera hátíðina einstaka. Páll Magnússon er í ítarlegu viðtali þar sem hann ræðir meðal annars stöðu Vestmannaeyja, samgöngurnar, ástina á ÍBV, minningar frá Þjóðhátíð og ævintýrin í Bjarnarey. Hann […]
Hvítu tjöldin farin að setja svip á Dalinn – myndir

Undirbúningur fyrir Þjóðhátíð náði enn einum stórum áfanga í kvöld þegar þjóðhátíðargestir flykktust í Herjólfsdal til að setja niður súlur fyrir hvítu tjöldin. Mikið líf var í Dalnum þegar tjaldsúlunum var komið fyrir á úthlutuðum lóðum. Hvítu tjöldin eru órjúfanlegur hluti af Þjóðhátíð og þegar súlurnar rísa er óhætt að segja að hátíðarstemningin sé farin […]
ÍBV náði jafntefli gegn toppliði FH með marki í blálokin

ÍBV og FH mættust í 14. umferð Bestu deildar kvenna á Hásteinsvelli í kvöld þar sem niðurstaða leiksins var 2-2 jafntefli. FH konur voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik og voru með tveggja marka forystu í hálfleik. Hrönn Haraldsdóttir skoraði fyrra mark gestanna á 33. mínútu þegar hún skoraði eftir fyrirgjöf frá Hafrúnu Birnu Helgadóttur. […]
Gosarnir á stífum æfingum fyrir Þjóðhátíð

Hljómsveitin Gosarnir frá Vestmannaeyjum hafa verið við stífar æfingar fyrir Þjóðhátíð síðustu daga, en þeir munu koma fram á sunndagskvöldinu á Þjóðhátíð ásamt góðum gestum. Undirbúningur fór meðal annars fram í Reykjavík í gær þar sem þeir æfðu með stórskotaliði Íslands í poppi og er óhætt að segja að dagskráin sé glæsileg. Pálmi Gunn, Jón […]
Anton Frans, Morgan Goði og Sigurmundur Gísli hefja leik á EM í Serbíu í dag með u-18

Anton Frans Sigurðsson, Morgan Goði Garner og Sigurmundur Gísli Unnarsson, leikmenn ÍBV, hefja leik á Evrópumótinu í Serbíu í dag, með u-18 ára landsliði Íslands í handbolta. Ísland er í riðli með Svartfjallalandi, Ungverjalandi og Sviss. Hér að neðan má sjá leiki liðsins í riðlakeppninni. Miðvikudagur 29. Júlí kl. 12:30: Ísland – Svartfjallaland Fimmtudagur 30. […]
ON sér um rekstur hleðslustöðva en bærinn á áfram innviðina

Vestmannaeyjabær á áfram hleðslustöðvar og aðra innviði sem komið var upp með styrk úr Orkusjóði árið 2020. ON hefur hins vegar tekið að sér rekstur stöðvanna og notendur greiða nú fyrir raforkuna. Þetta kemur fram í svörum Brynjars Ólafssonar, framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar, við fyrirspurn Eyjafrétta. Árið 2020 fékk Vestmannaeyjabær styrk til uppbyggingar innviða […]
Einsi Kaldi áfram með skólamatinn – óvissa um kostnað foreldra

Einsi Kaldi veisluþjónusta mun áfram sjá um skólamáltíðir í Vestmannaeyjum. Óvissa ríkir hins vegar um greiðsluþátttöku ríkisins frá næstu áramótum. Vestmannaeyjabær hefur samþykkt tilboð Einsa Kalda veisluþjónustu ehf. í skólamáltíðir. Eins og fram kemur í tilkynningu sveitarfélagsins mun fyrirtækið því áfram annast skólamatinn, líkt og það hefur gert frá árinu 2012. Tilboð Einsa Kalda var […]
Toppliðið mætir ÍBV á Hásteinsvelli

ÍBV tekur á móti toppliði FH í Bestu deild kvenna í knattspyrnu á Hásteinsvelli í dag. Flautað verður til leiks klukkan 18.00. FH hefur farið vel af stað í sumar og trónir á toppi deildarinnar með 29 stig eftir 12 leiki. Hafnarfjarðarliðið hefur unnið níu leiki, gert tvö jafntefli og aðeins tapað einum. Þá hefur […]
Allt að verða klárt fyrir Þjóðhátíð

Það var líf og fjör í Herjólfsdal á sunnudaginn þegar Óskar Pétur, ljósmyndari Eyjafrétta, tók hring um Dalinn og fylgdist með undirbúningi Þjóðhátíðar. Þar var fjölmennt enda lokaspretturinn hafinn og ótal handtök eftir áður en hátíðin verður sett. Víða mátti sjá kunnugleg andlit úr Þjóðhátíðarslagnum, fólk sem mætir ár eftir ár og leggur hönd á […]
Matarþjónusta eldri borgara færist í Vöruhúsið

Vestmannaeyjabær hefur lokið lögbundnu útboði á matarþjónustu fyrir eldri borgara. Samkvæmt reglum um opinber innkaup var sveitarfélaginu skylt að bjóða þjónustuna út þegar gildandi samningur rann sitt skeið. Þetta kemur fram í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar. Við útboðið barst eitt tilboð, frá Vöruhúsinu, sem uppfyllti skilyrði útboðsgagna og var því samþykkt. Vöruhúsið mun því annast […]
Nýja vatnsleiðslan tilbúin til flutnings til Eyja

Framleiðslu nýju almannavarnavatnsleiðslunnar NSL-4 er lokið og undirbúningur hafinn að flutningi hennar til Vestmannaeyja. Frá þessu greina bæjaryfirvöld á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar. Þar segir að framleiðandinn, NOV hafi afhent leiðsluna og tók fyrirtækið Subsea 7, sem annast flutning og útlagningu hennar, við endastykki leiðslunnar á mánudag. Vel hefur gengið að spóla leiðslunni inn á tromlu og […]
Súlurnar fara upp á morgun

Á morgun, miðvikudaginn 29. júlí, verður ekið með súlur inn í Herjólfsdal fyrir fráteknar lóðir í hvítu tjöldunum. Aksturinn fer fram í áföngum eftir staðsetningu lóða og verður dalurinn lokaður almennri umferð utan auglýstra tíma. 17:00 Lóð nr. 1-8, hægri og vinstriReimslóð, Þórsgata, Týsgata, Ástarbraut, Veltusund og Klettar 17:45 Lóð nr. 1-8, hægri og vinstriSkvísusund, […]
Óska eftir að friðun Blátinds verði aflétt

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að óska formlega eftir því við Minjastofnun Íslands að friðun Blátinds VE 21 verði aflétt. Markmiðið er að heimilt verði að farga bátnum í samræmi við gildandi lög og reglur. Blátindur var eina málið á dagskrá ráðsins á fundi þess í gær. Á fyrri fundi hafði hafnarstjóra verið falið […]
Elís Þór leikur ekkert með ÍBV í vetur – Sleit krossband í leik með u-20 landsliðinu

Elís Þór Aðalsteinsson, leikmaður ÍBV í handbolta, mun ekkert leika með ÍBV í Olís deild karla á komandi tímabili, þar sem hann er með slitið krossband í hné. Elís staðfesti þetta í samtali við handkastið. Hann varð fyrir því óláni að slíta krossband í leik íslenska u-20 ára landsliðsins gegn Danmörku, á Evrópumótinu fyrr í […]
Fjórði flokkur karla frá ÍBV tók þátt í Rey Cup

Fótboltamótið Rey Cup fór fram í Laugardalnum dagana 22. – 26. júlí. Rey Cup er alþjóðlegt fótboltamót sem er haldið ár hvert fyrir 4. og 3. flokk karla og kvenna. ÍBV sendi þrjú lið til leiks í ár í 4. flokki karla, alls 36 stráka. Þar sem nokkrir strákar misstu af mótinu sökum þess að […]
Miðasala á Þjóðhátíð fór á fullt skrið í gær

Undirbúningur fyrir Þjóðhátíð hefur fyrir nokkru náð hámarki í Vestmannaeyjum og síðustu dagarnir fram að hátíðinni fara í lokahnykkinn við að gera Herjólfsdal tilbúinn fyrir þá þúsundir gesta sem leggja leið sína til Eyja, Þetta segir í tilkynningu frá þjóðhátíðarnefnd. Haft er eftir Jónasi Guðbirni Jónssyni, formanni þjóðhátíðarnefndar að undirbúningurinn hafi gengið mjög vel og […]
Undirbúningur Þjóðhátíðar að ná hámarki

Það færist sífellt meira líf yfir Herjólfsdal enda aðeins örfáir dagar þar til Þjóðhátíð verður sett. Undirbúningurinn er nú að ná hámarki og fjölmargar hendur vinna að því að gera Dalinn tilbúinn fyrir eina stærstu ferðahelgi ársins. Halldór B. Halldórsson skellti sér í Herjólfsdal í dag og myndaði það sem fyrir augu bar. Eins og […]
Fjórði flokkur kvenna frá ÍBV tók þátt í Rey Cup

Fótboltamótið Rey Cup fór fram í Laugardalnum dagana 22. – 26. júlí. Rey Cup er alþjóðlegt fótboltamót sem er haldið ár hvert fyrir 4. og 3. flokk karla og kvenna. ÍBV sendi eitt lið í 4. flokki kvenna, alls 15 stelpur. Liðið fór sem A-lið og spilaði í efsta styrkleikaflokki. Í riðlakeppninni unnu þær lið […]