ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Kópavogsvelli

ÍBV og Breiðablik mættust í 16. umferð Bestu deildar karla á Kópavogsvelli í kvöld. Leikurinn endaði með 1-0 sigri heimamanna. Eyjamenn byrjuðu leikinn af krafti og voru með yfirhöndina í upphafi leiks. Viggó Valgeirsson var nálægt því að koma ÍBV yfir eftir hálftíma leik þegar hann átti skalla í stöngina. Blikar unnu sig vel inn […]
Golfkerran tók stefnuna fram af Hamrinum

Hjóna- og paramót Golfklúbbs Vestmannaeyja, Golfsögu og Verdi Travel fór fram um helgina og tókst með miklum ágætum, þrátt fyrir að veðrið hafi sett strik í reikninginn í upphafi. Bjarni Ólafur Guðmundsson segir stemninguna hafa verið góða og þátttakendur farið sátta frá Eyjum. „Mótið fór aðeins þyngra af stað en flestir höfðu gert ráð fyrir. Veðurspárnar […]
Af miðunum í þjóðhátíðarstuð

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE hélt til veiða sunnudaginn 19. júlí sl. að afloknu tæplega þriggja vikna stoppi. Heimasíða Síldarvinnslunnar sló á þráðinn til Egils Guðna Guðnasonar skipstjóra og spurði hvernig hefði gengið. „Við byrjuðum í ýsu á Broadway og lönduðum rúmlega fimmtíu tonnum í Eyjum á miðvikudag. Síðan var farið í Skerjadýpið í þeim tilgangi að […]
Er betra að vita en halda?

Ákvörðun sem tekin er í myrkri eða óvissu er sjaldnast gæfurík. Þegar við erum stödd á krossgötum í lífinu, hvort sem það varðar fjármál heimilisins, menntun barna okkar eða rekstur fyrirtækja, reynum við ævinlega að afla okkur eins mikilla upplýsinga og mögulegt er. Enginn skrifar undir kaupsamning á fasteign án þess að skoða ástand hennar, […]
ÍBV sækir Breiðablik heim í kvöld

ÍBV mætir Breiðabliki á Eikarvellinum í Kópavogi í Bestu deild karla í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 18:00. Eyjamenn eru í áttunda sæti deildarinnar með 16 stig eftir 15 leiki. Breiðablik situr í fjórða sæti með 26 stig og hefur því tíu stiga forskot á ÍBV. Liðin hafa bæði leikið einum leik færra en […]
Reyktur lax frá Laxey til styrktar ÍBV handbolta

Vegna mikillar eftirspurnar ætlar handknattleiksdeild ÍBV að bjóða aftur til sölu reyktan lax frá Laxey. „Samloka eða brauðterta með reyktum laxi í hvíta tjaldinu – þurfum við að segja eitthvað meira?“ segir í tilkynningu deildarinnar. Laxinn kostar 6.000 krónur kílóið og fer salan fram í krónni hjá Sigurjóni Ingvars og félögum á Skipasandi á morgun, […]
Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ

Það var óvenju mikið líf í Vestmannaeyjabæ snemma í morgun þegar farþegar tveggja skemmtiferðaskipa tóku að streyma í land. Á níunda tímanum var þegar hafin ferjun farþega frá skipunum, sem lágu í Klettsvík annars vegar og hitt var rétt fyrir utan klettsnefið. Þaðan héldu ferðamenn ýmist fótgangandi af stað til að kynna sér bæinn eða […]
Um 8000 farþegar með tíu skemmtiferðaskipum

„Þessa vikuna komu til Vestmannaeyjahafnar tíu skemmtiferðaskip með samtals um 8.000 farþega,“ segir í færslu á Facebook-síðu Vestmannaeyjahafnar. Í gær voru tvö skemmtiferðaskip í höfn í Eyjum. „Mikil vinna fylgir svona viku, bæði fyrir starfsmenn hafnarinnar og ferðaþjónustuna, og er ekki hægt annað en að hrósa öllum sem komu að þessu,“ segir í færslunni. Starfsmenn hafnarinnar […]
Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum

Skemmtiferðaskipið Insignia er í Vestmannaeyjum í dag, laugardaginn 25. júlí. Skipið kom í morgun og samkvæmt áætlun heldur það aftur úr höfn síðdegis. Það liggur í Friðarhöfn við kantinn framan við Vinnslustöðina. Veðrið leikur við heimamenn og gesti í Eyjum í dag. Sól og hlýindi eru í bænum og margt fólk á ferli. Farþegar skemmtiferðaskipanna setja […]
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð

Fyrstu marktæku vísbendingarnar um veðrið yfir Þjóðhátíðarhelgina eru jákvæðar. Flestar langtímaspár gera nú ráð fyrir fremur hægum vindi, 10–13 stiga hita og að mestu þurru veðri í Vestmannaeyjum. Enn er þó nokkur óvissa, einkum um úrkomu þegar líður á helgina. Sex dagar eru í Þjóðhátíð og má segja að megindrættirnir séu farnir að skýrast. Helstu […]
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski

Framkvæmdir við endurbyggingu innvigtunar- og löndunarkerfis Vinnslustöðvarinnar hafa tafist og ljóst varð að tækjabúnaðurinn yrði ekki tilbúinn fyrir makrílvertíðina. Fyrirtækið ákvað því að skipta 3.000 tonnum af makrílheimildum fyrir liðlega 1.400 tonn af þorski. Skiptin hafa neikvæð áhrif á útgerð, vinnslu og þjónustuaðila í Vestmannaeyjum en auknar þorskheimildir skapa jafnframt möguleika á meiri saltfiskvinnslu. Sigurgeir […]
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli

Kvennaliði ÍBV mistókst að tryggja sér sæti í bikarúrslitum Mjólkurbikars kvenna, eftir 1-0 tap í undanúrslitum gegn Þrótti Reykjavík, á Avis vellinum í Laugardalnum í kvöld. Lítið var um opin færi í fyrri hálfleik en Þróttur var þó aðeins sterkara liðið. Allison Grace Lowrey fékk besta færi ÍBV í upphafi leiks en skot hennar fór […]
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax

Samráðs- og upplýsingafundur Laxeyjar var haldinn í seiðastöð fyrirtækisins við Strandveg á þriðjudag. Alls sóttu 36 íbúar fundinn, þar sem farið var yfir starfsemi fyrirtækisins, stöðu uppbyggingar, sjálfbærni, fiskheilbrigði og samfélagsleg áhrif. Óskar Jósúason, upplýsingafulltrúi Laxeyjar, segir umræðurnar hafa verið opnar og málefnalegar. „Fundurinn tókst mjög vel og við erum ánægð með þátttökuna. Alls mættu […]
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns

Úrval lesefnis fyrir unga lesendur hefur aukist á Bókasafni Vestmannaeyja með tilkomu nýrra léttlestrarbóka frá vestmannaeyska fyrirtækinu Út fyrir bókina. Fyrirtækið sérhæfir sig í gerð lesefnis, lesskilningsverkefna og stærðfræðiverkefna fyrir byrjendur. Höfundar námsefnisins eru Unnur Líf Ingadóttir Imsland og Snjólaug Árnadóttir, grunnskólakennarar með áralanga starfsreynslu sem starfa sem umsjónarkennarar á yngsta stigi. Þær hófu árið […]
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða

Sjúkraliðafélag Íslands stendur þétt við bakið á félagsmanni sínum sem var handtekinn og fékk réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Hraunbúðum. Félagið segir reynsluna geta haft djúpstæð áhrif á heilsu, fjölskyldulíf, starfsferil og mannorð viðkomandi. Sjúkraliðafélag Íslands krefst þess að réttaröryggi heilbrigðisstarfsfólks verði betur tryggt þegar alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu eru rannsökuð. Þetta kemur fram í […]
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út

Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV fyrir árið 2026 er komin út. Í blaðinu má meðal annars sjá viðtöl við fyrirliðann Alex Frey Hilmarsson, Eddu Dögg Sindradóttur leikmann kvennaliðsins, Jón Ólaf Daníelsson, þjálfara kvennaliðsins og Örn Hilmarsson, stjórnarmann í knattspyrnudeild. Ritstjóri blaðsins er Örn Hilmisson. Knattspyrnudeild ÍBV þakkar öllum styrktaraðilum og stuðningsmönnum fyrir stuðninginn innan sem utan vallar. […]
Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum

Vestmannaeyjabær hafði hvorki fengið úttektarskýrslu embættis landlæknis um Hraunbúðir í hendur né vitneskju um úttektina sem skýrslan byggir á. Þá hafði Heilbrigðisstofnun Suðurlands ekki haft samband við bæinn vegna niðurstaðna hennar. Þetta kemur fram í svari Írisar Róbertsdóttur bæjarstjóra við fyrirspurn Eyjafrétta. Sjá fyrri frétt um málið: Fagmönnun langt undir lágmarki á Hraunbúðum Bærinn eingöngu […]
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!

Stórvinningshöfum í Lottóappinu fjölgar enn. Sá nýjasti bættist í hópinn á þriðjudagskvöldið þegar 2. vinningur í EuroJackpot, að upphæð 45,4 milljónir króna, gekk út til spilara á höfuðborgarsvæðinu, að því er segir í tilkynningu frá Íslenskri Getspá. Þar segir jafnframt að vinningsmiðann hafi hann keypt í appinu. Vinningshafinn, sem er á fertugsaldri, opnaði appið stuttu […]
Omar Sowe fær tveggja leikja bann

Omar Sowe, leikmaður karlaliðs ÍBV í fótbolta, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann eftir að hafa fengið að líta rauða spjaldið í leik ÍBV og KA í 15. umferð Bestu deildar karla. Omar var rekinn af velli á 77. mínútu leiksins fyrir að reka höfuðið í Birgi Baldvinsson, leikmanns KA, þegar Eyjamenn voru við […]
Háski og félagar senda frá sér þjóðhátíðarlagið „Væntanlega“

Nýtt þjóðhátíðarlag Háska, Lil Curly og Curly FM, ,,Væntanlega“, hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum upp á síðkastið, en lagið hefur farið eins og eldur í sinu á miðlinum TikTok þar sem notendur hafa birt myndbönd við grípandi lagið. Háski og félgar bætist því í hóp þeirra tónlistarmanna sem hafa samið og gefið út þjóðhátíðarlög […]