Ufsinn til vinnslu hjá Vísi í Grindavík
Vestmannaey VE og Bergur VE við bryggju í Eyjum.

Bæði Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu í Vestmannaeyjum á þriðjudag. Þetta kemur fram í fétt á vef Síldarvinnslunnar. Skipin voru með fullfermi. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að afli skipsins hafi verið blandaður, mest af ufsa en síðan einnig skarkoli, þorskur og ýsa. „ Þða var sæmilegt veður mest allan túrinn en þó var bölvuð bræla í rúman sólarhring. Það var veitt í Sláturhúsinu og á Öræfagrunni og síðan endað í þorski á Víkinni. Það eru tíðindi að nú fer ufsinn til vinnslu hjá Vísi í Grindavík en það er í fyrsta sinn sem afli frá okkur fer þangað, enda er Vísir formlega orðinn dótturfélag Síldarvinnslunnar,“ segir Jón.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, segir að afli skipsins hafi verið mjög blandaður. „Þetta var karfi, ýsa, ufsi og þorskur, en mest af karfa og ýsu. Veitt var í Hornafjarðardýpinu og Breiðamerkurdýpi og síðan var dregið vestureftir í bölvaðri brælu. Um tíma var veðurhæðin um 30 metrar. Ég geri ráð fyrir að næst verði haldið austurfyrir land. Veðurspáin er einfaldlega þannig og síðan er ekki sérlega mikill fiskur við suðurströndina um þessar mundir og það kemur ekki á óvart,“ segir Egill Guðni.

Skipin munu bæði halda til veiða á ný í kvöld.

Nýjustu fréttir

Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.