Húkkaraball

Auðvitað er bara til eitt Húkkaraball og það er í Eyjum. Ég man þegar ég spilaði í fyrsta skipti á Húkkaraballi. Þetta var árið 1982 með hljómsveit sem hét Tappi Tíkarrass. Þetta var nú dáldið undarleg ráðning þar sem við vorum ekki beinlínis ballhljómsveit.Við spiluðum eingöngu frumsamið efni og flest lögin voru óþekkt. Ég man að við náðum einu lagi á vinsældarlista í einhverjum útvarpsþætti á gömlu Gufunni sem var þá eina starfandi útvarpsstöðin hér á landi eins og elstu menn muna. Ég man að viðbrögð okkar við þessum óvæntu vinsældum voru þau að við hættum að spila lagið opinberlega um tíma eða spiluðum það í einhverri brenglaðri útgáfu. Við áttum okkur nokkurs konar aukasjálf sem var pönksveitin Vigga Viðutan. Sú sveit var skipuð meðlimum sveitarinnar fyrir utan Björk sem fékk hvíld rétt á meðan við hinir skiptumst á hljóðfærum og spiluðum nokkur frumsamin lög og ég söng. Þar á meðal var gjarnan þetta vinsæla lag, sem hét Ilty ebni, á efnisskránni. Þetta band kom einmitt fram é umræddu Húkkaraballi. Annars man ég ekki mikið eftir þessu nema að það átti að lemja mig þarna útí Eyjum. Ég var því dauðfeginn að komast lifandi heim daginn eftir.

Síðan þetta var hef ég margoft spilað í Eyjum bæði á Þjóðhátíð og almennum dansleikjum oftast með SSSÓL. Það er alltaf skemmtilegt og Vestmannaeyingar kunna svo sannarlega að skemmta sér. Þar er alltaf gaman að koma. Ég hef aldrei lent í útistöðum við neinn þarna eftir Tappaferðina enda Eyjamenn löngu hættir að berja aðkomumenn nema einn ónefndur hefur reyndar misst stjórn á hnefa en ég held að það hafi nú bara verið tæknileg mistök.

http://jakobsmagg.blog.is/blog/jakobsmagg/

 

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.