Niðurstaða útboðs vegna uppbyggingar og reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð

Þann 18. febrúar 2026 var sérleyfi vegna uppbyggingar og reksturs heilsuræktar í Vestmannaeyjum auglýst formlega, að undangengnum rúmlega sex mánaða undirbúningi. Áhugasömum aðilum var veittur frestur til að skila tilboðum til 23. mars 2026. Um er að ræða umfangsmikið verkefni sem krefst ítarlegrar lagalegrar greiningar, fjárhagslegra útreikninga og vandaðrar gagnaöflunar. Samkvæmt skilmálum valferlisins höfðu áhugasamir […]
Fjölmiðlafrumvarp afgreitt úr ríkisstjórn: Tók breytingum eftir samráð

Stuðningskerfi við einkarekna fjölmiðla verður fest í sessi til fimm ára samkvæmt frumvarpi sem Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, kynnti á fundi ríkisstjórnar á þriðjudag. Samþykkti ríkistjórnin að frumvarpið yrði lagt fyrir Alþingi. Gert er ráð fyrir að þær lagabreytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu styrki lýðræði í landinu og stuðli að vönduðum […]
Kostnaður við NSL-4 sprengir áætlanir – kominn í 3 milljarða

Kostnaður við almannavarnarlögnina NSL-4 í Vestmannaeyjum hefur hækkað verulega og er nú áætlaður um 3 milljarðar króna, nær tvöfalt meira en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs í gær þar sem farið var yfir drög að erindi til innviðaráðuneytisins. Heiðar Ásberg Atlason lögmaður kynnti stöðu verkefnisins. Í viljayfirlýsingu frá […]
Óstöðugir flutningar valda vandræðum í Eyjum

Vinnslustöðin hf. segir alvarlega stöðu vera komin upp í flutningsmálum til og frá Vestmannaeyjum og að truflanir undanfarnar vikur hafi haft veruleg áhrif á rekstur fyrirtækisins. Í umfjöllun á vefsíðu fyrirtækisins kemur fram að tafir, ófyrirsjáanleiki og röskun á flutningum hafi meðal annars haft áhrif á hráefnisöflun, framleiðslu og afhendingar til viðskiptavina. Fyrirtækið er nýkomið […]
Arnar Pétursson valdi leikmannahóp fyrir lokaleiki undankeppni EM

Eyjamaðurinn Arnar Pétursson, þjálfari íslenska A-landsliðs kvenna í handbolta, tilkynnti fyrr í dag landsliðshóp sinn fyrir tvo síðustu leiki Íslands í undankeppni Evrópumótsins sem fara fram í byrjun apríl. Ísland mætir þá Færeyjum ytra 8. apríl og Portúgal á Ásvöllum 12. apríl. Þessir leikir munu ráða því hvort að Ísland verði með á EM í […]
Ófært í Þorlákshöfn – Herjólfur bíður átekta fyrir utan höfnina – uppfært

Ófært er sem stendur í Þorlákshöfn vegna veðurs og sjógangs, og hefur það haft áhrif á áætlun Herjólfs í dag. Herjólfur lagði af stað frá Vestmannaeyjum klukkan 9:00 í morgun með stefnuna á Þorlákshöfn. Samkvæmt áætlun átti skipið að halda til baka klukkan 12:00, en ljóst er að töluverð seinkun verður á ferðum það sem […]
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn

Vestmannaey VE landaði fullfermi í Þorlákshöfn á þriðjudag og Bergey VE landaði þar fullfermi á mánudag. Bergey landaði síðan góðum karfaafla í gær, að því er segir í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Þar er jafnframt rætt við skipstjórana. Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, var mjög sáttur við veiðina en ósáttur við veðurlagið. „Við vorum […]
Úrslitakvöld Vöruhúsdeildarinnar á laugardaginn

Sigurvegari Vöruhúsdeildarinnar 2026 verður krýndur laugardaginn 28. mars upp í Höll þegar úrslitakvöld Pílufélags Vestmannaeyja fer fram. Viðburðurinn verður sögulegur fyrir umfang sitt en leikirnir verða spilaðir uppá stóra sviðinu og varpa myndavélar nærmyndum af spjaldi og leikmönnum uppá sýningartjöldin. Einnig verða leikirnir í beinni á YouTube rás Pílufélagsins. Það er því óhætt að segja […]
Hagnaður Ísfélagsins 2,8 milljarðar króna

Ísfélag hf. hagnaðist um 2,8 milljarða króna árið 2025 og jukust tekjur félagsins í 27,4 milljarða króna, samkvæmt nýbirtu ársuppgjöri. Rekstrarhagnaður nam 7,9 milljörðum króna og EBITDA var 10,1 milljarður króna, sem endurspeglar sterka afkomu félagsins á árinu. Aukningin skýrist meðal annars af háu verði á helstu afurðum, góðum makrílveiðum og sterkum rekstri frystitogarans Sólbergs. […]
Minning: Einar Birgir Sigurjónsson

Góður vinur og samstarfsmaður kvaddur með þakklæti og hlýjum huga. Ég var ekki búinn að standa margar vaktir í lögreglunni þegar tengdafaðir minn, Sigurgeir Kristjánsson, fyrrverandi lögregluvarðstjóri kom í heimsókn til okkar Bubbu og spurði hvernig mér líkaði starfið í lögreglunni og með hvaða mönnum ég ynni. Þegar ég nefndi það að fyrstu vaktirnar hefðu […]
Vinna allt að 100 tonn á dag

Þótt loðnuvertíðin sé að baki er engu að síður mikið að gera í fiskvinnslu Vinnslustöðvarinnar. Nú er vetrarvertíðin í fullum gangi og mikið af afla berst að landi. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Vinnslustöðvarinnar. Þar segir jafnframt að kapp sé lagt á að framleiða sem mest af saltfiski á þessum tíma, þorski sem er […]
Þögn bæjarfulltrúa vekur spurningar

Í morgun birtu Eyjafréttir svör bæjarfulltrúa um umdeilt útboð Vestmannaeyjabæjar vegna reksturs heilsuræktar í Íþróttamiðstöðinni. Fjórir af níu bæjarfulltrúum sáu þó ástæðu til að senda svar til fjölmiðilsins. Þrír af þeim fjórum vísuðu einfaldlega á ráðgjafafyrirtækið Consensa. Það fyrirtæki hefur hins vegar haft fyrirspurnir Eyjafrétta til meðferðar í fleiri vikur án þess að svara þeim. […]
Herjólfur breytir áætlun á morgun

Vegna slæmrar veðurspár á morgun hefur Herjólfur ohf. ákveðið að breyta siglingaáætlun sinni. Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun þar sem búast má við hvössum suðaustanáttum, mikilli úrkomu og erfiðum akstursskilyrðum. Veðurstofa Íslands spáir suðaustan 20–28 m/s með vindhviðum staðbundið yfir 40 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu eða slyddu, slæmu skyggni og […]
Fundur bæjarstjórnar í beinni

Í dag klukkan 14:00, fer 1625. fundur bæjarstjórnar Vestmannaeyja fram í Ráðhúsinu og verður fundinum streymt í beinni útsendingu hér að neðan. Á dagskrá er meðal annars ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2025, sem nú fer til seinni umræðu, auk áframhaldandi umræðu um samgöngumál í Eyjum. Þá verður einnig fjallað um menningarstefnu Vestmannaeyjabæjar og undirbúning sveitarstjórnarkosninga […]
Appelsínugul viðvörun: Suðaustan rok og stórhríð

Klukkan 5 í fyrramálið tekur gildi gul viðvörun á landinu öllu. Því til viðbótar hefur verið gefin út appelsínugul viðvörun á vegna veðurs á Höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa og Miðhálendi. Á Suðurlandi tekur sú appelsínugula gildi klukkan 7.00 í fyrramálið og gildir hún til kl. 13.00. Suðaustan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s. Einnig […]
Vestmannaeyjar skila milljörðum – en fá hvað í staðinn?

Það er ákveðin þreyta farin að setjast í umræðuna í Vestmannaeyjum. Ekki vegna þess að við höfum sagt of mikið, heldur vegna þess að við þurfum sífellt að minna á það sama. Við þurfum að minna á að samgöngur eru ekki lúxus. Við þurfum að minna á að innviðir eru ekki aukaatriði. Og við þurfum, […]
Bæjarfulltrúar tjá sig ekki um útboð heilsuræktar

Bæjarfulltrúar í Vestmannaeyjum hafa ekki tekið efnislega afstöðu til spurninga Eyjafrétta um útboð sveitarfélagsins vegna reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Minnihlutafulltrúi gagnrýnir hins vegar að útboðsskilyrði hafi ekki verið lögð fyrir bæjarráð áður en útboðið var auglýst og segir hæfiskröfur útiloka marga mögulega bjóðendur. Vísa til þess að útboð sé í gangi Þrír bæjarfulltrúar sem […]
Úrslitakeppnin af stað – ÍBV tekur á móti KA

ÍBV og KA mætast í fyrsta leik úrslitakeppni Olís deildar karla í handbolta í kvöld. Leikurinn fer fram í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og hefst klukkan 18:00. Það er mikið undir strax í fyrsta leik og ljóst að Eyjamenn ætla að byrja einvígið af krafti. Handknattleiksdeild ÍBV hefur kallað eftir öflugum stuðningi og hvetur Eyjamenn til að […]
Marsralli um það bil að ljúka

Leiðöngrum í stofnmælingu botnfiska – svokallað marsrall – á Íslandsmiðum er um það bil að ljúka um þessar mundir, en Árni Friðriksson er í síðustu togunum úti fyrir Norðurlandi, sjá hér. Fjögur skip tóku þátt í verkefninu, togararnir Breki og Þórunn Sveinsdóttir og rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Þórunn Þórðardóttir. Um borð í þessum fjórum skipum unnu ríflega […]
Gul viðvörun fyrir allt landið

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir landið allt nk. fimmtudag milli kl. 05:00 og 18:00, vegna suðaustan hríðarbyls. Í viðvörunarorðum segir: Suðaustan 15-23 m/s með snjókomu og hríð, fyrst suðvestantil. Suðvestan 8-13 og skúrir suðvestantil um hádegi. Búast má við talsverðri eða mikilli snjókomu og skafrenningi með lélegu skyggni. Samgöngutruflanir eru líklegar, lokanir á […]