Framtíðarsýn – tökum samtalið

Undanfarin misseri hefur verið lífleg umræða um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Vestmannaeyjum. Það er fagnaðarefni, enda er hér um að ræða eitt af stóru hagsmunamálum samfélagsins. Það er mikilvægt að slík uppbygging sé unnin með langtímahugsun. Ákvarðanir sem teknar eru í dag munu hafa áhrif á starfsemi og nýtingu mannvirkja til áratuga. Þess vegna telur ÍBV […]

Landsbankinn og N1 bætast í hluthafahóp Eyjaganga

Undirbúningur að gerð jarðganga milli lands og Vestmannaeyja hefur tekið stórt skref fram á við með innkomu nýrra hluthafa. Landsbankinn og N1 eru á meðal þeirra aðila sem nýlega hafa bæst í hluthafahóp Eyjaganga ehf., en allir nýir hluthafar hafa þegar greitt fyrir hlut sinn í félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir jafnframt […]

Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar

Þórunn Sveinsdóttir VE 401 hefur nú lagt úr höfn í Vestmannaeyjum áleiðis til Færeyja, þar sem skipið verður afhent nýjum eigendum, Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði. Greint er frá þessu á vef Vinnslustöðvarinnar í dag. Fréttina má lesa hér að neðan. Það voru stór tímamót í útgerðarsögu Vestmannaeyja í dag, sunnudaginn 22. mars 2026, þegar Þórunn Sveinsdóttir […]

Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi

Vestmannaeyjadeild Rauða krossins var með opið hús í Arnardrangi í dag í tilefni af 85 ára afmæli deildarinnar. Fjöldi gesta lagði leið sína á staðinn, þar sem boðið var upp á veitingar og kynningu á starfsemi félagsins. Afmælið markar mikilvæg tímamót í sögu félags sem hefur lengi verið órjúfanlegur hluti af samfélaginu í Eyjum. Í […]

Gul viðvörun – Austanhríð

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Suðurland, Austfirði og Suðausturland á morgun, mánudag. Á Suðurlandi tekur viðvörunin gildi kl. 12:00 og gildir til kl. 17:00. Í viðvörunarorðum fyrir Suðurland segir: Austan 15-23 m/s og snjókoma eða skafrenningur, sums staðar slydda eða rigning, með vindvhiður að 35-40 m/s undir Eyjafjöllum. Varsamt ferðaveður. Veðurhorfur á […]

34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra

Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja fékk nýverið kynningu á stöðu fjárhagsaðstoðar fyrir árið 2025 frá deildarstjóra velferðarmála og sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs. Alls nam fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins um 34,8 milljónum króna á árinu. Upphæðin skiptist í styrki, framfærslulán og stuðning við börn og unglinga. Í kynningunni kom fram að Vestmannaeyjabær leggi ríka áherslu á að styðja einstaklinga […]

85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag

Það verður bæði hlýlegt andrúmsloft í Arnardrangi á morgun, sunnudag þegar Vestmannaeyjadeild Rauða krossins fagnar 85 ára afmæli sínu með opnu húsi frá klukkan 14 til 16. Eyjamenn eru hvattir til að mæta, þiggja kaffi og veitingar og kynna sér starf sem hefur í áratugi verið órjúfanlegur og mikilvægur hluti af samfélaginu. Rauði Krossinn var […]

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 

Eyþór Harðarson hafnaði í efsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum með 715 atkvæði, eða tæp 63% gildra atkvæða. Hann segir niðurstöðuna skýr skilaboð frá flokksmönnum og horfir nú til sveitarstjórnarkosninganna í vor.  Aðspurður um hvort hann sé ánægður með niðurstöðurnar í prófkjörinu segir Eyþór:  „Ég get ekki annað en verið ánægður með niðurstöðuna hvað mig varðar […]

Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 

Arndís María Kjartansdóttir er nýr oddviti Eyjalistans. Hún er menntaður framhaldsskólakennari, er löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali og stundar jafnframt meistaranám í jákvæðri sálfræði. Eyjafréttir ræddu við Arndísi um ákvörðun hennar að stíga fram í oddvitasætið, helstu áherslur í bæjarmálum og hvernig reynsla hennar úr menntakerfinu og fasteignageiranum gæti nýst í sveitarstjórnarmálum.  Arndís eða Dísa eins og hún […]

Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 

Trausti Hjaltason, sem hafnaði í öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, segir þátttöku flokksmanna í prófkjörinu hafa verið með eindæmum góða. Um 1.200 manns greiddu atkvæði í prófkjörinu, sem hann segir sýna bæði mikinn áhuga og sterkt lýðræðislegt samtal innan flokksins.  Öflugur hópur   „Ég er fyrst og fremst ótrúlega ánægður með þátttöku flokksmanna í […]

Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri

Hafrannsóknastofnun leggur til að humarveiðar verði áfram bannaðar árið 2026, en að ráðist verði í sérstakar könnunarveiðar til að afla betri gagna um ástand stofnsins. Tillagan byggir á varúðarsjónarmiðum og óvissu í mælingum, þar sem misræmi er á milli vísitölu humarholna og niðurstaðna úr togleiðöngrum. Með könnunarveiðum er ætlunin að fá skýrari mynd af aflabrögðum […]

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið

Í kvöld kynnti Miðflokkurinn í Vestmannaeyjum listauppstillingu sína fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Jón Þór Guðjónsson leiðir listann. Í öðru sæti er Sæunn Magnúsdóttir, sem jafnframt er bæjarstjóraefni flokksins. Jóhann Ingi Óskarsson skipar þriðja sætið, Sonja Andrésdóttir er í fjórða sæti og Guðni Hjörleifsson í því fimmta. Listinn í heild sinni er þannig skipaður: Jón Þór Guðjónsson […]

Fyrri ferð föstudags felld niður

Tekin hefur verið ákvörðun um að fella niður fyrri ferðir morgundagsins vegna veðurs og sjólags sem áætlaðar voru kl. 07:00 frá Vestmannaeyjum og kl. 10:45 frá Þorlákshöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Farþegar sem áttu bókað eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína. Ákvörðun […]

Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028

Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson hefur framlengt samning sinn við írska knattspyrnusambandið og verður hann áfram landsliðsþjálfari til ársins 2028. Greint var frá þessu í tilkynningu frá sambandinu í dag, þar sem fram kemur að Heimir hafi skrifað undir nýjan samning sem nær út lok Evrópumótsins 2028. Heimir staðfesti sjálfur tíðindin á blaðamannafundi í dag, en þar kom […]

Vatn loksins farið að renna í laugina

Undirbúningur við sundlaugina í Vestmannaeyjum gengur vel og styttist nú í að hægt verði að prófa nýjan búnað. Þetta kemur fram á vefsíðu bæjaryfirvalda. Þar segir jafnframt að fulltrúi frá verkfræðistofunni Eflu sé væntanlegur í dag til að ljúka síðustu verkþáttum verkefnisins. Ennfremur segir að vatn sé nú farið að renna í laugina og ef […]

Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld

Eyjalistinn hefur kynnt framboðslista sinn fyrir komandi kosningar í Vestmannaeyjum. Tillaga uppstillingarnefndar var lögð fram á félagsfundi í síðustu viku þar sem listinn var samþykktur samhljóða. Arndís María Kjartansdóttir leiðir listann. Í næstu sætum eru Anton Örn Björnsson, Erlingur Guðbjörnsson, Hildur Rún Róbertsdóttir og Jessý Friðbjarnadóttir.  Fram kom í tilkynningu að Arna Huld Sigurðardóttir, formaður Eyjalistans, hafi þakkað uppstillingarnefnd fyrir störf hennar og þær ábendingar sem bárust í ferlinu. Hún þakkaði einnig núverandi bæjarfulltrúum listans, Njáli Ragnarssyni og Helgu Jóhönnu Harðardóttur, fyrir störf þeirra á kjörtímabilinu, en þau gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi […]

Norlandair með lægsta tilboð í flug til Eyja

Flug Ernir Farthegar Jan 2024 Tms Lagf

Tvö tilboð bárust í útboð Vegagerðarinnar um áætlunarflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja fyrir tímabilið 2026–2029. Norlandair reyndist með lægsta tilboðið. Tilboð félagsins nam 136,3 milljónum króna, en Icelandair bauð 146,3 milljónir króna. Áætlaður verktakakostnaður Vegagerðarinnar var 121,9 milljónir króna. Samningurinn er til þriggja ára, frá 1. september 2026 til 30. nóvember 2029, með möguleika á framlengingu, […]

„Hörkufiskirí”

Eyjarnar 20250826 081915

Vestmannaey VE og Bergey VE hafa verið að fiska afar vel að undanförnu. Hafa bæði skip landað þrisvar sinnum fullfermi á innan við viku. Þau lönduðu í Þorlákshöfn í gær og voru skipstjórarnir ánægðir með aflabrögðin, að því er segir í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að um sannkallað […]

Gular viðvaranir í öllum landshlutum

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir á öllum spásvæðum landsins. Á Suðurlandi tekur viðvörunin gildi í nótt kl. 01:00 og gildir til kl. 08:00 á laugardagsmorgun. Í viðvörunarorðum fyrir landshlutann segir: Suðvestan 15-23 m/s með dimmum éljum og slæmu skyggni. Líkur á versnandi færð, einkum á fjallvegum. Varasamt ferðaveður. Einnig má búast má við […]

Boranir hefjast í apríl

Eyjagöng ehf. hafa gert samning við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um framkvæmd kjarnaborana sem liður í áframhaldandi könnun á fýsileika fastrar vegtengingar milli lands og Vestmannaeyja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Markmið rannsóknanna er að afla ítarlegra upplýsinga um jarðfræðilegar aðstæður á fyrirhugaðri leið. Boranirnar munu fara fram á tveimur stöðum, annars vegar […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.