Staða daggæslumála rædd

Á síðasta fundi fræðsluráðs á mánudaginn var voru daggæslumál rædd. Tvær nýjar dagmömmur hafa sótt um og samþykkti ráðið að þær myndu hefja störf. Staða daggæslumála var einnig rædd og bókaði ráðið eftirfarandi; Staða daggæslumála hefur breyst mjög til hins betra með tilkomu tveggja nýrra daggæsluforeldra. Börnum, sem bíða eftir plássi hjá dagforeldrum, mun því […]

Opnunartími skemmtistaða styttur

Á fundi bæjarráðs á mánudaginn var samþykkt að stytta opnunartíma veitinga- og skemmtistaða í Vestmannaeyjum um klukkustund um helgar en breyting þessi tekur gildi frá og með 1. september 2015. Í bókuninni segir; Bæjarráð hefur tekið til endurskoðunar reglur um opnunartíma veitinga og skemmtistaða í Vestmannaeyjum. Í framhaldi af því samþykkir bæjarráð að reglurnar verði […]

Nýtt skip Vinnslustöðvarinnar í heimahöfn

�?riðjudaginn 28. júlí næst komandi kemur nýtt skip Vinnslustöðvarinnar til Eyja. Skipið hefur hlotið nafnið Ísleifur VE. 63. Við þetta tilefni verður skipið opið almenningi til sýnis frá kl. 16.30 til 19.00. vsv.is (meira…)

Ásmundur Arnarsson tekur við ÍBV

Knattspyrnuráð karla ÍBV og Ásmundur Arnarsson hafa náð samkomulagi um að Ásmundur taki við meistaraflokksliði karla ÍBV og stýri því út leiktíðina í fjarveru Jóhannesar �?órs Harðarssonar, sem hefur fengið leyfi frá störfum út leiktíðina af persónulegum ástæðum. En þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldin var í dag. Ásmundur, eða Ási, er lærður sjúkraþjálfari […]

Uppgræðsla í hlíðum Eldfells er brýn

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs á mánudaginn lá fyrir samantekt um stöðu uppgræðslu á foksvæðum og stöðu umhverfismála. Var samantektin gerð að beiðni Stefáns �?. Jónassonar bæjarfulltrúa Vestmannaeyja listans. Var hún unnin af �?lafi Snorrasyni, framkvæmdastjóra. �?ar kemur fram áætlanir umhverfis-og framkvæmdasviðs um aðgerðir og áætlanir í umhverfismálum Ráðið þakkaði �?lafi kynninguna lá fyrir �?ar […]

Jón Vídalín VE sigldi á Kap VE í höfninni í Eyjum

Um klukkan hálf tíu í morgun varð það óhapp í höfninni í Vestmannaeyjum að ísfisktogarinn Jón Vídalín VE bakkaði á uppsjávarskipið Kap VE þar sem skipið lá við bryggjuna á Eiðinu framan við Net. Nokkrar skemmdir urðu á skipunum sem bæði eru í eigu Vinnslustöðvarinnar. Samkvæmt upplýsingum Eyjafrétta var Jón Vídalín að bakka í höfninni […]

Magnaðar myndir og myndband úr �?rídröngum

Nú standa yfir lagfæringar á vitanum í �?rídröngum en Vegagerðin er að taka vitann í gegn. Í dag fóru sex málarar og tveir rafvirkjar út með þyrluflugmönnunum Gísla Matthíasi Gíslasyni og Jóni Kjartani Björnssyni sem var flugstjórinn í dag en báðir vinna þeir hjá Norðurflugi. Málararnir urðu eftir og ætla að mála og fríska upp […]

Tryggvi til Njarðvíkur

Tryggvi Guðmundsson er á leið til Njarðvíkur og mun spila með liðinu til loka tímabilsins. �?etta kemur fram á Fótbolta.net. Tryggvi var fyrr í sumar sagt upp störfum sem aðstoðarþjálfari ÍBV eftir að hafa mætt á æfingu undir áhrifum áfengis. Samhliða því spilaði hann með KFS í 3. deildinni og gerði áfram eftir að hann […]

Guðbjörg og �?skar láta gott af sér leiða

Hjónin Guðbjörg Guðmannsdóttir og �?skar Jósúason eru að hlaupa 100 km á 10 dögum eða 10 km á dag og leggja til hliðar 1.000 kr pr. hlaupara fyrir hverja 10 km sem þau hlaupa. Heildarupphæðin munu þau gefa í gott málefni líkt og þau gerðu í fyrra, þegar þau styrktu krabbameinsfélagið í Vestmannaeyjum skrifar Hjalti […]

Verðandi sjómaður í frönsku sjónvarpi

Fyrir um ári síðan sagði Anna �?lafsdóttir frá því að fjölskylda hennar hefði fengið heimsókn frá þýskum rithöfundi og þau væru komin í þýska barnabók. Nú er annað ævintýri að klárast. Anna segir frá ævintýrinu á facebook síðu sinni sem lesa má hér að neðan Fyrir um mánuði hringdi í mig frönsk sjónvarpskona, spurði reyndar […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.