Góður sigur ÍBV á Haukum

ÍBV og Haukar mættust í fyrsta leik í 8-liða úrslitum Olísdeildar kvenna í dag þar sem ÍBV hafði betur 30-24. Sigur ÍBV var nokkuð öruggur og voru þær vel að honum komnar. ÍBV byrjaði leikinn af krafti og keyrðu yfir Haukana á fyrstu mínútum leiksins og var staðan orðin 6-1 eftir 5. mínútna leik. Haukarnir […]

�?orsteinn nýr formaður Jötuns

Á aðalfundi Sjómannafélagsins Jötuns á laugardaginn lét Valmundur Valmundusson, nýr formaður Sjómannasambands Íslands, af störfum sem formaður félagsins. Í hans stað var �?orsteinn Ingi Guðmundsson kjörin formaður Jötuns. Ný stjórn var sjálfkjörin á fundinum en í kjöri voru, �?orsteinn Ingi Guðmundsson formaður, varaformaður Sigurður Sveinsson, gjaldkeri �?orkell Árnason. ritari Haukur Hauksson ogvararitari Júlíus V. �?skarsson. […]

�?rslitakeppnin hefst á morgun

Á morgun, annan dag páska hefst úrslitakeppnin í Olísdeild kvenna. ÍBV mætir Haukum í 8-liða úrslitum klukkan 13:30 í Vestmannaeyjum. �?essi lið hafa mæst tvisvar í deildinni í vetur, ÍBV hafði betur á Ásvöllum 28-30 en Haukastúlkur sigruðu í Eyjum 27-28. �?að má því búast við hörkurimmu milli þessara liða en þau enduðu í 4 […]

Er ekki vitlaust gefið?

Allir þurfa þak yfir höfuðið, er stundum sagt. �?að er svo sjálfsagt í okkar kalda landi að það ætti ekki þurfa að taka það fram og svo stendur líka skýrum stöfum í íslensku stjórnarskránni að allir skuli njóta friðhelgi heimilis. En hvernig er þetta hjá okkur? Samkvæmt nýjum upplýsingum sem hagdeild Landsbankans hefur tekið saman […]

Mía Rán kom sá og sigraði

Í síðustu viku var Stóra upplestrarkeppnin haldin á Laugalandi og sendi Grunnskóli Vestmannaeyja þrjá keppendur. Mía Rán Guðmundsdóttir, nemandi GRV, gerði sér lítið fyrir og sigraði í keppninni. Markmið upplestrarkeppni í sjöunda bekk grunnskóla er að vekja athygli og áhuga nemenda á vönduðum upplestri og framburði. Mestu skiptir að kennarar nýti þetta tækifæri til að […]

Yfir 100 ný opinber störf í Skagafjörð á meðan þeim fækkar í Eyjum

Á meðan opinber störf leka frá Vestmannaeyjum stefnir ríkisstjórnin að því að flytja 90 störf á Norðvesturland auk þess sem 40 ný opinber störf verða til í landshlutanum, langflest þeirra í Skagafirði. �?etta eru tillögur landshlutanefndar fyrir Norðurland vestra og nái þær fram að ganga munu nærri eitt hundrað þessara starfa verða í Skagafirði. Frá […]

Auglýst eftir fólki til daggæslu í heimahúsum, en viðbrögð lítil

Fræðsluráð tók fyrir í síðustu viku erindi frá foreldrum barna sem fæddust á síðsta ári, 2014 en erfiðlega hefur gengið að útvega börnunum leikskólapláss. Kemur fram að í vetur var auglýst eftir fleira fólki til að taka að sér daggæslu í heimahúsum, en viðbrögð við þeim voru lítil. Var gripið til þess ráðs að opna […]

Páskaáætlun Herjólfs

Herjólfur siglir samkvæmt reglulegri áætlun til �?orlákshafnar tvær ferðir á dag utan þess að ein ferð er sigld á föstudaginn langa og á páskadag. Regluleg áætlun: Vestmannaeyjar 8:00 og 15:30 �?orlákshöfn 11:45 og 19:15. Áætlun föstudaginn langa og páskadag Vestmannaeyjar 08:00 �?orlákshöfn 11:45 �?á tvo daga er afgreiðslan í Vestmannaeyjum opin fram yfir brottför frá […]

ÍBV sigraði FH

ÍBV og FH áttust við í Kaplakrika í kvöld í síðustu umferð Olísdeildar karla. Fyrir leikinn hafði ÍBV ekki unnið leik síðan 9. mars en þeir bundu enda á það í kvöld og sigruðu 26-28. FH var sterk­ara liðið lengst af fyrri hálfleik og hafði um tíma þriggja marka for­skot. Eyja­menn stigu upp undir lok […]

Eyjamenn hafa drukkið úr 22 milljón dósum og flöskum á 12 árum

Friðrik Már Sigurðsson hefurstaðið vaktina í Endurvinnslunni í tólf ár og skipta dósir og flöskur ,sem hann hefur tekið á móti, milljónum. �??�?g hætti um mánaðamótin og sá 31. verður síðasti dagurinn minn í Endurvinnslunni. Nýr umboðsaðili tekur svo við fljótlega,�?? sagði Friðrik Már þegar Eyjafréttir ræddu við hann fyrir skömmu. �??�?g tók við þegar […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.