Fjölskyldustemning á Hásteinsvelli þegar topplið ÍBV fær Þór/KA í heimsókn

Kvennalið ÍBV tekur á móti Þór/KA á Hásteinsvelli í dag í 4. umferð Bestu deildar kvenna. Flautað verður til leiks klukkan 14:00. Eyjakonur hafa farið frábærlega af stað í sumar og unnið alla þrjá fyrstu leiki sína í deildinni. ÍBV er því í 2. sæti deildarinnar með níu stig, jafnmörg og topplið Breiðabliks, en með […]
ÍBV sækir KA heim

Karlalið ÍBV sækir KA heim á Greifavöllinn á Akureyri í dag í lokaleik 6. umferðar Bestu deildar karla. Flautað verður til leiks klukkan 16:30. Eyjamenn hafa átt erfiða byrjun á mótinu og eru í neðsta sæti deildarinnar með eitt stig eftir fyrstu fimm leikina. Liðið gerði jafntefli í einum leik en hefur tapað fjórum og […]
ÍBV stelpurnar tryggðu sér annan leik með frábærum sigri

Kvennalið ÍBV í handbolta vann stórsigur gegn Val í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitillinn á Hlíðarenda í dag. Eyjakonur áttu frábæran leik og unnu leikinn með átta mörkum, 27-35. Staðan er nú 2-1 í einvíginu og tryggðu Eyjakonur sér annan leik, sem fer fram í Eyjum á þriðjudaginn. Eyjakonur byrjuðu leikinn gríðarlega vel […]
Að vera öryrki

Í þessari grein ætla ég að gera grein fyrir persónulegri upplifun minni á að vera öryrki í Vestmannaeyjum. Það getur reynst erfitt fyrir heilbrigðan einstakling að finna sér atvinnu í Eyjum en að leita sér að vinnu þegar maður er öryrki er mjög erfitt. Ég er öryrki og ég má bara vinna hálfan daginn, ég […]
Díana Dögg og Andrea munu leika til úrslita um þýska meistaratitilinn

Eyjakonan Díana Dögg Magnúsdóttir og Andrea Jacobsen, tilvonandi leikmaður ÍBV, munu leika til úrslita um þýska meistaratitilinn með félagsliði sínu Blomberg-Lippe. Blomberg-Lippe tryggði sér sæti í úrslitaeinvíginu, gegn Borussia Dortmund, þegar liðið vann stórsigur á Thüringer HC, 35-24, í oddaleik í undanúrslitum þýsku deildarinnar í dag. Blomberg-Lippe var sterkara liðið í leiknum og var staðan […]
Könnunarveiðar á humri fara vel af stað

Könnunarveiðar á humri hafa farið afar vel af stað hjá Drangavík VE, skipi Vinnslustöðvarinnar, en aflinn síðustu daga hefur verið langt umfram væntingar, að því er segir í frétt á vef Vinnslustöðvarinnar. Verkefnið er unnið í samstarfi við Skinney – Þinganes og Hafrannsóknastofnun með það markmið að afla betri upplýsinga um stöðu humarstofnsins eftir erfið […]
Bókunarkerfið enn niðri – Herjólfur birtir nýja áætlun

Bókunarkerfi Herjólfs er enn niðri en félagið hefur birt siglingaáætlun morgundagsins svo farþegar geti skipulagt ferðir sínar. Siglt verður frá Vestmannaeyjum kl. 09:30, 12:00, 14:30, 17:00 og 19:30. Frá Landeyjahöfn verður siglt kl. 10:45, 13:15, 15:45, 18:15 og 20:45. Fram kemur í tilkynningu frá Herjólfi að ekki sé hægt að bóka farartæki í ferðirnar kl. […]
Áform um fjögurra hæða byggingu við Strandveg

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að kynna á vinnslustigi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vegna fasteignarinnar við Strandveg 63. Það er Jóhann Halldórsson fyrir hönd félagsins Island rent KJT ehf. sem sækir um breytinguna. Samkvæmt erindinu felst hún meðal annars í því að heimilt verði að hækka bygginguna úr tveimur hæðum í fjórar. Jafnframt […]
Vopnaður maður handtekinn í aðgerð sérsveitar

Lögregla og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru í aðgerðir við íbúðarhúsnæði á Fífilgötu í Vestmannaeyjum í gærkvöld þar sem maður vopnaður hnífi var handtekinn. Maðurinn var í kjölfarið fluttur til Reykjavíkur. Stefán Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni í Vestmannaeyjum, staðfesti þetta í skriflegu svari við fyrirspurn Eyjafrétta í morgun. Haft er eftir Arndísi Báru Ingimarsdóttur, lögreglustjóra í Vestmannaeyjum, […]
Bilun í Álfsnesinu tefur dýpkun

Bilun kom upp í dýpkunarskipinu Álfsnesinu í morgun sem hefur áhrif á áframhaldandi vinnu við Landeyjahöfn. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar. „Tjakkur í Álfsnesinu sem stýrir einum af átta losunarhlerum skipsins brotnaði í morgun,“ segir Pétur. Til að hægt sé að gera við bilunina þarf aðstoð kafara. „Það […]