Framboðslisti kjósenda í Eyjum

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar liggur nú fyrir. Raðað var í öll efstu sæti listans með prófkjöri en 12 efstu sæti listans eru byggð niðurstöðu gríðarlega vel heppnaðs prófkjörs, þar sem nærri 1200 kjósendur í Eyjum komu að því að stilla frambjóðendum upp á listann með vali sínu í prófkjörinu. 1178 kjósendur skipuðu eiginlega kjörnefnd […]
ÍBV mætir Þrótti í bikarnum

32-liða úrslit Mjólkurbikars karla eru leikin nú um páskana – allir leikirnir nema einn. ÍBV hefur leik í Mjólkurbikarnum í dag þegar liðið tekur á móti Þrótti Reykjavík á Hásteinsvelli. Leikurinn hefst klukkan 12:00 og markar upphaf fyrsta alvöru keppnisleiks Eyjamanna á tímabilinu. Upphitun hefst klukkustund fyrir leik. Undirbúningur liðsins hefur staðið yfir undanfarna mánuði […]
Hörku skákmót hjá TV á skírdag

Sigurjón Þorkelsson varð hraðskákmeistari Vestmannaeyja 2026 þegar Hraðskákmeistaramót Vestmannaeyja fór fram á skírdag í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja (TV). Alls tóku 10 keppendur þátt, tefldar voru níu umferðir og tímamörk voru 5 mínútur á skák auk 3 sekúndna viðbótar fyrir hvern leik. Á árum áður voru 5 mínútur algeng tímamörk í hraðskák, en þá kom oft […]
Tjaldurinn meðal vorboða í Eyjum

Í Vestmannaeyjum er tjaldurinn einn helsti vorboðinn og lætur sjá sig seint í mars eða í byrjun apríl. Þetta er þó breytilegt milli ára og fer eftir veðurlagi. Á mildum vetrum sést hann jafnvel um miðjan mars en í köldum árum getur koma hans dregist fram í apríl. Nú er hann mættur, eins og sjá […]
Bæta á aðgengi og fjölga bílastæðum við Kirkjugerði

Fræðsluráð Vestmannaeyja tekur jákvætt í tillögur um breytingar á umferð við leikskólann Kirkjugerði. Meðal þess sem lagt er til er að opna fyrir einstefnuakstur frá bílastæði leikskólans og út á Hraunveg. Jafnframt eru uppi hugmyndir um að fjölga bílastæðum á svæðinu til að bæta aðgengi. Ráðið telur mikilvægt að ráðast í slíkar úrbætur til að […]
ÍBV semur við serbneskan framherja

Knattspyrnudeild ÍBV hefur samið við serbneska leikmanninn Filip Stuparevic. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum í gær. Filip er 25 ára framherji og kemur með reynslu víða úr Evrópu. Í tilkynningunni segir ,,Filip hefur meðal annars spilað með FK Vozdovac, FK Metalac, FK Pribram, NK Domzale, Greenock Morton og Motherwell FC. Hann hefur gott orð […]
Metár og hagnaður langt yfir áætlun

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja kynnti á síðasta fundi bæjarstjórnar endurskoðaðan ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2025 sem sýnir eina bestu rekstrarniðurstöðu bæjarins í fimmtán ár. Var þetta seinni umræða. Samkvæmt reikningnum var afkoma samstæðu bæjarins, A og B hluta, jákvæð um 781 milljón króna sem er 345 milljónum króna umfram áætlanir. Engar tölulegar breytingar voru gerðar […]
Jón Óli á sínu þriðja ári með konurnar

Kvennalið ÍBV er mætt aftur í Bestu deildina eftir tveggja ára fjarveru. Þær tryggðu sér sæti meðal þeirra bestu þegar þær rúlluðu yfir Lengjudeildina á síðasta tímabili. Eyjakonur hefja leik í deildinni laugardaginn 25. apríl þegar þær sækja Fram heim á Lambhagavöllinn. Deildin sjálf hefst föstudaginn 24. apríl með leik Íslandsmeistara Breiðabliks og Þróttar R. […]
Elliði Snær og Elmar í eldlínunni í Þýskalandi

Eyjamennirnir Elliði Snær Viðarsson og Elmar Erlingsson voru báðir í eldlínunni með sínum félagsliðum í þýska handboltanum í dag. Elliði Snær og félagar hans í Gummersbach unnu Bergischer á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni, 39-30. Elliði Snær skoraði þrjú mörk. Gummersbach er í fjórða sæti deildarinnar með 39 stig. Bergischer er með 14 stig í fimmtánda […]
Páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins

Árleg páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins í Vestmanneyjum fer fram nk. laugardag 4. apríl. Eins og venjulega fer leitin fram á Skansinum og hefst stundvíslega kl. 15:00. Leitinni verður startað formlega á staðnum kl. 15 en allir eiga að bíða við virkið á Skansinum þar til leitinni verður startað af Eyþóri Harðarsyni, oddvita framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 16. […]