ÍBV og KA skildu jöfn á Hásteinsvelli

ÍBV tók á móti KA í 15. umferð Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í dag en liðið skildu jöfn 2-2 í miklum baráttuleik.  Eyjamenn komu af krafti inn í leikinn og voru mun öflugri í fyrri hálfleik. Omar Sowe komst nálægt því að koma ÍBV yfir eftir tæplega 20 mínútur þegar hann átti skot í […]

Laxey boðar til samráðs- og upplýsingafundar

Laxey boðar íbúa Vestmannaeyja og aðra áhugasama til samráðs- og upplýsingafundar næstkomandi þriðjudag. Þar verður meðal annars farið yfir stöðu uppbyggingar fyrirtækisins, umhverfis- og sjálfbærnimál, fiskheilbrigði og áhrif starfseminnar á samfélagið. Fundurinn verður haldinn í seiðastöð Laxey að Strandvegi 104 þriðjudaginn 21. júlí klukkan 17.00. Í tilkynningu á vef Laxey kemur fram að íbúum Vestmannaeyja, […]

Djamm Original heldur í hefðirnar  – Frá Bridgerton í aldamótastuð

Það var mikið um dýrðir hjá vinkvennahópnum Djamm Original sem hélt sína árlegu árshátíð í Vestmannaeyjum í gær. Um er að ræða tvo vinahópa, úr árgöngunum 1998 og 1999, sem hafa haldið þennan skemmtilega sið frá árinu 2018. Dagskráin var fjölbreytt og greinilegt að metnaður hafði verið lagður í daginn. Gleðin hófst heima hjá Bylgju […]

Tvöfaldur leikdagur hjá ÍBV

Bæði meistaraflokkslið ÍBV verða í eldlínunni í Bestu deildunum í dag. Karlaliðið tekur á móti KA á Hásteinsvelli klukkan 14.00 en tveimur tímum síðar hefja Eyjakonur leik gegn Þór/KA á VÍS-vellinum á Akureyri. Mikilvæg stig í boði á Hásteinsvelli Það er mikið undir þegar ÍBV og KA mætast á Hásteinsvelli. Eyjamenn eru í áttunda sæti […]

Guðný Geirsdóttir – Íþróttamaður mánaðarins

Eyjakonan og markvörður kvennaliðs ÍBV í fótbolta, Guðný Geirsdóttir, er íþróttamaður mánaðarins. Guðný hefur verið frábær í markinu hjá ÍBV í sumar og þá sérstaklega í síðustu leikjum. Hún hefur tvisvar sinnum verið valin í lið umferðarinnar í tímabilinu, varði vítaspyrnu gegn Stjörnunni, ásamt því að eiga frábæran leik í sigri ÍBV á FH í […]

Vestmannaeyjar í lykilhlutverki á 100 ára afmæli Landhelgisæslunnar

Landhelgisgæsla Íslands fagnaði 100 ára afmæli sínu með fjölbreyttum viðburðum víða um land. Meðal annars hefur verið boðið til opins húss í flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli þar sem almenningur hefur getað kynnt sér starfsemina, þyrlur, flugvél, björgunarbáta, köfunar- og sprengjueyðingarbúnað, sjókort og annan sérhæfðan búnað sem gegnir mikilvægu hlutverki í öryggi þjóðarinnar. Einn af hápunktum […]

Þjónustuþegum í lengdri viðveru fjölgar um helming

Þjónustuþegum í lengdri viðveru fyrir fötluð börn á aldrinum 10 til 16/18 ára í Vestmannaeyjum mun fjölga um helming í haust. Því er þörf á auknu fjármagni til að mæta aukinni þjónustuþörf. Þetta kom fram á síðasta fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs Vestmannaeyja þar sem sviðsstjóri fór yfir stöðu mála. Ráðið samþykkti að þörf væri á […]

Frá gamla hrauninu að framkvæmdum við Íþróttamiðstöðina

Halldór B. Halldórsson var á ferðinni á vestanverðri Heimaey í dag og tók upp meðfylgjandi myndband. Ferðin hefst í gamla hrauninu og þaðan liggur leiðin út á Hamar og um golfvöllinn, þar sem meðal annars glittir í Herjólfsdal. Að lokum er komið við á byggingarsvæðinu við Íþróttamiðstöðina, þar sem unnið er að nýrri viðbyggingu. (meira…)

Stuðningsmaður KFS vinnur 700 þúsund

Stuðningsmaður KFS úr Vestmannaeyjum vann rúmar 700 þúsund krónur á Miðvikudagsseðilinn hjá Íslenskum getraunum. Stuðningsmaðurinn keypti sparnaðarkerfi með fjórum tvítryggðum og fjórum þrítryggðum leikjum sem kostaði 1.872 krónur. KFS, sem leikur núna í 5. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu er samt sem áður næst stærsta félag landsins í sölu getraunaseðla. Sala getrauna er ein stærsta fjáröflun […]

Vestmannaeyja-Þór ruddi brautina fyrir Landhelgisgæslu Íslands

Árið 1918 markaði tímamót í sögu Vestmannaeyja og Íslands. Ísland varð fullvalda ríki, Alþingi samþykkti lög um stofnun Vestmannaeyjakaupstaðar sem tóku gildi 1. janúar 1919 og sama ár var Björgunarfélag Vestmannaeyja stofnað. Með þeirri ákvörðun hófst vegferð sem átti eftir að hafa áhrif langt út fyrir Eyjarnar og leggja grunn að síðarri stofnun Landhelgisgæslu Íslands. […]

Klara Káradóttir framlengir við ÍBV

Hin unga og efnilega Klara Káradóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild ÍBV. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum í dag. Í tilkynningu ÍBV segir, ,,Klara er efnileg handknattleikskona sem leikur í stöðu línumanns. Hún lék síðasta vetur í liði 3. flokks ÍBV sem varð bikarmeistari ásamt því að vera hluti af […]

Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa

radhustrod_ráðhús_merki_cr

Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja hefur samþykkt tillögu að breyttu hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa sveitarfélagsins. Samkvæmt breytingunum verður starfið skilgreint sem starf tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúa og því fylgir ný starfslýsing. Málið var tekið fyrir á síðasta fundi ráðsins þar sem sviðsstjóri kynnti hugmyndir að breyttu hlutverki. Markmið starfsins verður að bera faglega, rekstrarlega og stjórnunarlega […]

Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu

Björgunarfélag Vestmannaeyja og Landhelgisgæsla Íslands stóðu fyrir sameiginlegri björgunaræfingu við Vestmannaeyjar í gærkvöldi. Að æfingunni komu þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarbáturinn Þór. Fram kemur á samfélagsmiðlum Björgunarfélags Vestmannaeyja að markmið æfingarinnar hafi verið að þjálfa samhæfingu áhafna við björgunaraðgerðir á sjó. Meðal þess sem æft var voru hífingar milli björgunarbátsins og þyrlunnar. Æfingar af þessu tagi […]

Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli

ÍBV og Valur áttust við í 11. umferð Bestu deildar kvenna á Hásteinsvelli í kvöld þar sem ÍBV vann sterkan 2-1 sigur.  Eyjakonur byrjuðu fyrri hálfleikinn mjög vel og uppskáru mark á 12. mínútu leiksins. Boltinn barst þá á Fridrikku Marie Clementsen inn á teig Vals og hún setti boltann örugglega í netið. Markadrottningin Allison […]

Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627

Laugardaginn 18. júlí nk.  kl. 13 stendur Sögusetrið 1627 fyrir Tyrkjaránsgöngu. Í ár eru liðin 399 ár frá Tyrkjaráninu illræmda þegar ránsmenn frá Alsír í Norður- Afríku gengu á land í Vestmannaeyjum, drápu, særðu, rupluðu og tóku til fanga liðlega helming íbúa Vestmannaeyja. Ræningjarnir fluttu hátt á þriðja hundruð Eyjamenn til Alsír og seldu þá […]

Einn túr eftir fyrir sumarstopp

bergey_opf

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í Eyjum á mánudaginn. Rætt er við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra um veiðiferðina á vef Síldarvinnslunnar. „Aflinn var mest ýsa en síðan var þetta einnig ufsi, karfi og þorskur. Veitt var á Pétursey að undanskildum tveimur nóttum þegar leitað var að ufsa á Reynisdýpi og þar fékkst reyndar dálítill ufsi […]

NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð

NovaFest snýr aftur á Vöruhúsið um Þjóðhátíðina og verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá alla hátíðina. Fjölmargir tónlistarmenn, plötusnúðar og skemmtikraftar stíga á svið og er stefnt að líflegri stemningu á svæðinu frá föstudegi til sunnudags. NovaFest er samstarfsverkefni Nova, Icewear og Coppermine og verður sérstakt pop-up svæði á Vöruhúsinu á meðan hátíðinni stendur. Dagskrá […]

ÍBV tekur á móti Val í kvöld

ÍBV tekur á móti Val á Hásteinsvelli í kvöld þegar 11. umferð Bestu deildar kvenna heldur áfram. Flautað verður til leiks klukkan 18:00. Eyjakonur eru í fjórða sæti deildarinnar með 17 stig eftir tíu umferðir og koma til leiks eftir sannfærandi 3:1 útisigur á Víkingi í síðustu umferð. Með sigri geta þær styrkt stöðu sína […]

Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa

Viðgerð á rafmótor Herjólfs IV er nú lokið og stefnir ferjan til Þorlákshafnar aðfaranótt mánudags þar sem mótorinn verður settur í skipið. Samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi ohf. er gert ráð fyrir að uppsetning mótorsins taki allt að fjóra sólarhringa. Á meðan verður Herjólfur úr áætlun en ferjan Baldur sinnir átta ferðum á dag milli Vestmannaeyja […]

Óboðnir gestir undir yfirborðinu

Vestmannaeyjar harbor

Sindri Gíslason, forstöðumaður Náttúrustofu Suðvesturlands, hefur undanfarin tíu ár stýrt rannsóknum á framandi sjávarlífverum við Ísland. Á þeim tíma hefur þekktum framandi sjávartegundum fjölgað úr 15 í 37 og Vestmannaeyjahöfn orðið einn mikilvægasti vöktunarstaður landsins.  Það sem vakti hvað mesta athygli á kynningarfundi um nýja stjórnunar- og verndaráætlun Surtseyjar í Eldheimum var ekki aðeins umræða […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.