Sindri Viðarsson – Hleypur fyrir Minningarsjóð Gunnars Karls

Í aðdraganda Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka, sem fram fer laugardaginn 22. ágúst, ræða Eyjafréttir við nokkra hlaupara frá Vestmannaeyjum sem taka þátt í ár. Fyrstur í röðinni er Sindri Viðarsson, sem ætlar að hlaupa 10 km. Hann hleypur fyrir Minningarsjóð Gunnars Karls, sem að þessu sinni styrkir Guðbjörgu Sillu Viðarsdóttur, frænku Sindra. Nafn? Sindri Viðarsson Aldur? Ég […]
Úr handboltanum yfir í málaralist

Sigurbergur Sveinsson byrjaði óvænt að mála þegar vantaði mynd á vegginn heima. Á Goslokahátíð hélt hann sína fyrstu sýningu, sýndi níu verk og seldi þau öll. „Ég fór í málaranám við Tækniskólann sem mér fannst ofboðslega skemmtilegt og útskrifaðist í janúar 2024. Þar voru frábærir kennarar og ég lærði ýmis handtök og aðferðir sem mér […]
„Þúsund þorskar á færibandinu ……………“

þokast nær!“ söng þjóðskáldið í eyru okkar sem ung unnum í „vinnslunni“ og horfðumst í augu við þann gula í flökuninni. En undanfarin ár hefur færibandið snúið í hina áttina og textinn ætti betur við líðandi stund sem: „Þúsund þorskar á færibandinu þokast fjær!“. Ástæðan er ekki minni afli eða færri fiskar, heldur aðstæður okkar […]
ÍBV fær Stjörnuna í heimsókn í kvöld

Kvennalið ÍBV tekur á móti Stjörnunni á Hásteinsvelli í kvöld í 15. umferð Bestu deildar kvenna. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 og geta Eyjakonur með sigri farið upp fyrir Stjörnuna og í þriðja sæti deildarinnar. ÍBV er í fjórða sæti með 21 stig eftir 14 leiki, en Stjarnan er sæti ofar með 23 stig. […]
Dumbungur skyggði á sólmyrkvann í Eyjum

Dumbungur var yfir Vestmannaeyjum klukkan 17.50 í dag þegar sólmyrkvinn náði hámarki. Skýin höfðu þar betur í baráttunni við sólina og ekkert sást til hennar þegar hæst stóð. Þrátt fyrir það fór myrkvinn ekki alveg fram hjá Eyjamönnum. Greinilega dró úr dagsbirtunni þegar tunglið huldi 99,6 prósent sólarskífunnar. Um stund var eins og húmaði að […]
Fyrsta sýning Oddnýjar á heimaslóðum

Fjölbreytt samsýning fjögurra listamanna var meðal þess sem vakti athygli á Goslokahátíðinni í Vestmannaeyjum í sumar. Sýningin var haldin í krónni Cracious og þar komu saman ólík listform og nálganir, allt frá abstraktverkum og akrýlmálverkum yfir í kalk og línóleumprent. Oddný er ein þeirra fjögurra listamanna sem tóku þátt í sýningunni. Eyjafréttir ræddu við hana […]
Nú reynir á hvort birtir til eða ekki

Hellirigning þegar um klukkustund er í sólmyrkvann – Von um bjartara veður þegar myrkvinn nær hámarki klukkan 17.50 – Upplifunin verður sérstök þótt skýin haldi velli Nú styttist í sólmyrkvann í Vestmannaeyjum en veðrið leikur ekki við Eyjamenn þessa stundina. Hellirigning er í Eyjum og þungbúið þegar um klukkustund er þar til myrkvinn hefst. Vonin […]
Ríkið unir niðurstöðunni

Íslenska ríkið höfðaði ekki dómsmál vegna niðurstöðu óbyggðanefndar um eignarrétt að Vestmannaeyjum. Þetta staðfestir Hrefna Rós Matthíasdóttir, upplýsingafulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins, í svari við fyrirspurn Eyjafrétta. Óbyggðanefnd kvað upp úrskurð sinn 22. desember síðastliðinn. Niðurstaðan var sú að Vestmannaeyjar, ásamt skerjum og dröngum, að Surtsey undanskilinni, væru eignarlönd. Kröfum ríkisins um þjóðlendur á svæðinu var […]
Rannsóknarholan komin niður á 180 metra

Borun rannsóknarholunnar EG-02 á Landeyjasandi hefur nú náð 180,5 metra dýpi. Borunin er liður í gagnaöflun Eyjaganga ehf. vegna kortlagningar jarðlaga meginlandsmegin. Frá þessu er greint á vefsíðu Eyjaganga. Þar segir jafnframt að Ræktunarsamband Flóa og Skeiða annist borunina en verkfræðistofan EFLA og jarðfræðistofan Völuberg sjá um eftirlit, faglega umsjón og rannsóknarráðgjöf. Í upphafi var […]
Eyjamenn gera sig klára fyrir Reykjavíkurmaraþonið

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, fjölmennasta götuhlaup landsins, fer fram laugardaginn 22. ágúst. Hlaupið hefur verið haldið árlega í miðborg Reykjavíkur frá árinu 1984 og fer að venju fram sömu helgi og Menningarnótt. Boðið er upp á maraþon, hálfmaraþon, 10 km hlaup og skemmtiskokk. Allar vegalengdir hefjast í Sóleyjargötu og lýkur á Lækjargötu fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík. […]
Almyrkvinn blásinn af á Helgafelli – „Kannski verður blíða árið 2196

Gunnar Friðfinnsson hættir við Helgafell vegna veðurs – Haugrigning, hávaðarok og jafnvel þoka í kortunum – Eyjamenn taka tíðindunum með húmor og velta fyrir sér snakki, grilli og nýjum gönguskóm Það verður ekkert stjörnuskoðunarpartí á Helgafelli hjá Gunnari Friðfinnssyni, kennara við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum og áhugamanni um stjörnufræði, þegar sólmyrkvinn gengur yfir í dag. Veðurspáin […]
Vonast eftir glennu þegar sólmyrkvinn verður í hámarki

Veðurspáin ekki hagstæð – Hætt við hitting á Helgafelli – Áhugafólk um stjörnufræði verður við Breiðabakka – Myrkvinn nær hámarki klukkan 17.50 Nú er bara að treysta á Eyjaveðrið og vonast eftir einni góðri glennu síðdegis í dag þegar 99,6 prósent sólarskífunnar hverfa á bak við tunglið. Deildarmyrkvinn nær hámarki í Vestmannaeyjum um klukkan 17.50 […]
Tjón á nýju vatnslögninni

Skemmdir urðu á nýju almannavarnarlögninni NSL-4 við útlagningu aðfaranótt sunnudagsins 9. ágúst. Vinna við lagningu hennar var stöðvuð í kjölfarið og er nú beðið eftir skýrslu um orsakir og umfang tjónsins. Vestmannaeyjabær greindi frá þessu í tilkynningu í dag. Þar kemur fram að atvik hafi orðið hjá Subsea 7, sem annast útlagningu lagnarinnar, með þeim […]
Kristján myndaði einn í Hellisey í heila viku

Kristján Egilsson, pípulagningameistari, safnstjóri Fiska- og náttúrugripasafns Vestmannaeyja og uppstoppari, er einnig afbragðs ljósmyndari, eins og sjá má reglulega á Facebook-síðu hans. Þar eru það ekki síst fuglamyndirnar sem vekja athygli og þar sem fuglalíf og náttúra Vestmannaeyja fá að njóta sín. Kristján byrjaði ungur að taka myndir en segir að ljósmyndaáhuginn hafi fyrst tekið […]
Íbúum í Eyjum fjölgar á ný

Íbúum í Vestmannaeyjum hefur fjölgað nokkuð frá síðustu talningu Eyjafrétta. Samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ voru 4.776 íbúar skráðir í sveitarfélaginu í dag, 11. ágúst. Þegar Eyjafréttir fjölluðu síðast um íbúaþróunina þann 23. desember 2025 voru íbúarnir 4.757 talsins. Íbúum hefur því fjölgað um 19 frá því í lok síðasta árs, eða um 0,4 prósent. Þróunin […]
Óska eftir vitnum að líkamsárás

Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað á Brekastíg um klukkan 19.30 laugardaginn 1. ágúst. Þar var einstaklingur sleginn hnefahöggi í höfuðið af óþekktum aðila sem yfirgaf vettvang í kjölfarið. Brotaþoli var fluttur á brott með sjúkrabifreið. Þau sem urðu vitni að árásinni eða búa yfir upplýsingum um hana eru […]
Endurraðað í nefndir skömmu eftir sveitarstjórnarkosningar

Aðeins rúmum tveimur mánuðum eftir sveitarstjórnarkosningarnar í maí hefur verið endurraðað í nokkrar nefndir, stjórnir og fulltrúasæti Vestmannaeyjabæjar. Bæjarráð samþykkti breytingarnar samhljóða á fundi sínum. Þær snúa meðal annars að fulltrúum á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga, aðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og í stjórn Eyglóar ehf. Arndís María Kjartansdóttir tekur við sem aðalfulltrúi á landsþingi Sambands […]
Sjö sinnum orðið aldimmt um hábjartan dag í Eyjum

Vestmannaeyjar eiga einstaka sögu þegar kemur að sólmyrkvum – Enginn af 41 viðmiðunarstað Almanaks Háskólans hefur fengið fleiri almyrkva – Á morgun hverfur um 99,6% sólarskífunnar en örmjó sólrönd ræður úrslitum. Vestmannaeyingar hafa í gegnum aldirnar verið óvenju heppnir – eða óheppnir, eftir því hvernig á það er litið – þegar tunglið hefur lagt leið […]
Mikilvæg verkefni og fjölbreytt starfsemi hjá HSU

Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur gefið út sjötta tölublað fréttapóstsins Hjartað í HSU. Í inngangspistli blaðsins fer Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU, yfir fjölbreytta starfsemi stofnunarinnar undanfarna mánuði, áskoranir í rekstrinum og þau mikilvægu verkefni sem unnið er að víðs vegar um heilbrigðisumdæmið. Pistil Díönu má lesa hér að neðan. Sumarið er tími þar sem mörg okkar staldra […]
Nei og aftur nei

Valdaframsal til Evrópusambandsins er eitt stærsta pólitíska álitaefni sem Íslendingar kunna að standa frammi fyrir á komandi árum. Ég hef meiri trú á Íslandi og íslensku samfélagi en svo að okkur sé betur borgið innan sambands sem glímir sjálft við margvíslegar áskoranir. Eflaust voru mörg og góð rök fyrir stofnun Evrópusambandsins og forvera þess. Ísland […]