150 milljónum verður varið til að jafna flutningskostnað

Lagðar verða 150 milljónir króna til jöfnunar flutningskostnaðar á landinu samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár. Í svari við fyrirspurn á Alþingi í dag um strandsiglingar fagnaði Kristján L. Möller, samgönguráðherra, því að fjármunir væru ætlaðir til að jafna flutningskostnað. Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins spurði ráðherrann hvort hann hygðist beita sér fyrir auknum strandsiglingum sem hagkvæmum […]
Blása 2+1 veg út af borðinu
„Við höfum unnið kröftuglega að framgangi þessa máls að undanförnu og nú hafa allar hugmyndir um 2+1 veg milli Reykjavíkur og Selfoss verið blásnar út af borðinu. Raunar hefur málið unnist á undraverðum hraða að undanförnu og því bind ég vonir við að fyrstu framkvæmdir við nýjan Suðurlandsveg hefjist eftir örfáa mánuði, segir Björgvin G. […]
Ár síðan skipalyftan eyðilagðist

Í dag er nákvæmlega eitt ár síðan skipalyftan við Vestmannaeyjahöfn eyðilagðist þegar báturinn Gandí Ve endastakkst ofan í lyftuna. Starfsmenn Skipalyftunnar komu saman síðdegis í dag og minntust þess að betur fór en á horfðist. Sex voru á lyftunni þegar hún brotnaði undan þeim og tveir þeirra slösuðust. Annar þeirra hefur ekki getað hafið störf […]
Deilt um skuldasöfnun sjávarútvegsins

Deilt var um skuldsetningu sjávarútvegsins í umræðu á Alþingi í dag. Guðjón Arnar Kristjánsson Frjálslindaflokknum sagði skuldir sjávarútvegsins hafa þrefaldast frá 1997 og að skuldasöfnun í greininni væri að stórum hluta vegna kaupa og sölu á aflaheimildum. Sjávarútvegsráðherra sagði sjávarútveginn standa undir skuldasöfnuninni og að hún væri hlutfallslega minni en í öðrum atvinnuvegum hann […]
Ætlum að vinna þennan leik

slenska landsliðið mæti Liechtenstein í kvöld klukkan 18:00 og verður leikurinn sýndur beint á Sýn. Eftir 4-2 tap gegn Lettum hér heima á laugardaginn eru leikmenn liðsins staðráðnir í að gera betur og sigra þennan leik. Við tókum tal á Gunnar Heiðari Þorvaldssyni og heyrðum hans álit á þessum leik. ,,Það er alveg ljóst að […]
Norska gæslan siglir með Kap Ve til hafnar í Noregi

Norska landhelgisgæslan vísaði Kap Ve til hafnar í Noregi í morgun. Kap var á leið til Íslands með um 300 tonn af síld en var snúið við og siglir nú til Sortland með norska varðskipið Harstad sér við hlið. Gísli Garðarson segir málið algjöran tittlingaskít. „Þetta snýst um það að við lönduðum meiri afla en […]
Styrkveitingar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, haustið 2007.

Atvinnuþróunarfélag Suðurlands hefur veitt styrki til atvinnuþróunar á Suðurlandi, samtals að upphæð 5.140.000 kr. Alls voru 18 aðilar sem fengu styrki að upphæð 100 – 400 þús. krónur. Styrkt voru fjölbreytt verkefni m.a. á sviði vöruþróunar, hönnunar nýsköpunar, markaðssetningar, kynningarmála og til undirbúnings ýmissa spennandi viðskiptatækifæra á Suðurlandi. Auglýst var eftir umsóknum á Suðurlandi, í […]
Hafró og HB-Grandi reyna að aðskilja fiskitegundir

Hafrannsóknastofnun og HB-Grandi vinna nú að rannsóknaverkefni í veiðitækni sem miðar að því að aðskilja fiskitegundir áður en afli er kominn um borð í veiðiskip. Felst tilraunin í því að aðskilja þorsk og ýsu í botnvörpu þannig að tegundirnar hafni í sitt hvorum vörpupokanum. Fjallað er um verkefnið á vef Hafrannsóknarstofnunar og segir þar m.a. […]
Árni Johnsen útvegar 10 flatskjái í Hegningarhúsið
„Þetta er mikill myndarskapur og við kunnum honum bestu þakkir fyrir þetta,” segir Gunnar Valur Jónsson,fangavörður í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Fangelsið fékk heldur óvænta gjöf nýverið.Þingmaður Sunnlendinga, Árni Johnsen,kom færandi hendi og gaf fangelsinu tíu litla flatskjái. Sjónvörp hafa ekki verið sjálfsagður hlutur í vistarverum Hegningarhússins og segir Gunnar að þetta eigi eftir að breyta […]
Ekki hægt annað en að fara fram á sigur

Hermann Hreiðarsson var ekki með í tapinu á móti Lettum á laugardaginn og var sárt saknað í íslensku vörnini. Hann vildi lítið tjá sig um þann leik á blaðamannafundi í gær. „Sá leikur er bara búinn. Við erum hundsvekktir með úrslitin en nú er bara kominn nýr leikur og það er gott að fá tækifæri […]
Mikill samhugur í Eyjaliðinu

Við vorum að koma af Íslandsmóti skákfélaga nú í kvöld. Síðastliðið vor var það stefna Taflfélags Vestmannaeyja að hætta að kaupa erlenda stórmeistara til félagsins til þess að freista þess að vinna titilinn. Eins og allir vita tókst það ekki þó við hefðum náð silfrinu tvö ár í röð. (meira…)
Flugfélag Íslands og Vegagerðin skrifa undir samning um flug til Vestmannaeyja

Flugfélag Íslands hefur skrifað undir samning við Vegagerðina um flug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Nýr samningur tekur gildi þann 01. nóvember 2007 og gildir til loka ársins 2009 en möguleiki er að framlengja samninginn um tvö ár til viðbótar eða til loka ársins 2011.Flugfélag Íslands tók aftur upp flug til Eyja fyrir réttu ári og […]
Samningar um Eyjaflug undirritaðir

Flugfélag Íslands hefur skrifað undir samning við Vegagerðina um flug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Nýr samningur tekur gildi þann 01. nóvember 2007 og gildir til loka ársins 2009 en möguleiki er að framlengja samninginn um tvö ár til viðbótar eða til loka ársins 2011. (meira…)
40.000.000 kr fyrir hvað?
Nú eru svokallaðir stofnfjáreigendur Sparisjóðs okkar Vestmannaeyinga búnir að koma málum þannig fyrir að þau geta selt hlut sinn. Þetta gerðu þau með því að breyta reglum um Sparisjóð okkar Vestmannaeyinga. Nú getur hver einstaklingur selt sinn hlut fyrir 40.000.000 kr. Ég hef verið að hugsa um það hvernig þessu fólki líði þegar […]
Íslenska vörnin er best með Hermann innanborðs
Eyjólfur Sverrisson hefur notað níu varnarmenn í undankeppni EM og gengur misvel eftir því hverjir spila. Íslenska landsliðið þarf að endurskipuleggja varnarleikinn eftir útreiðina gegn Lettum á laugardag. Landsliðsþjálfarinn Eyjólfur Sverrisson á ás upp í erminni fyrir leikinn á móti Liechtenstein annað kvöld. Vörn íslenska landsliðsins í knattspyrnu er nefnilega sterkust með Hermann Hreiðarsson. Þetta […]
Ályktun kvenna í Frjálslynda flokknum vegna Margrétar Sverrisdóttur

Stjórn Landsambands kvenna í Frjálslynda flokknum, harmar að sundrung skyldi verða í Frjálslynda flokknum s.l. vetur þegar Margrét Sverrisdóttir og nokkrir stuðningsmenn hennar kusu að segja sig úr Frjálslynda flokknum eftir að hafa tapað í varaformannskjöri fyrir Magnúsi Þór Hafsteinssyni. Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknum bendir á að Margrét Sverrisdóttir benti réttilega á hversu óeðlilegt […]
Hannes ábyrgist vatnalögin

Bæjarstjóri Vestmannaeyja brást skjótt við, eins og hans er von og vísa, í kjölfar skrifa um vatnslögnina í gær. Sendi hann frá sér tilkynningu um að Hannes Smárason, fyrir hönd Geysir Green Energy, hafi lýst því yfir að félagið muni styðja ákvörðun HS (hitaveitunnar, ekki Hannesar) um að leggja nýja vatnslögn til Eyja. Jafnframt upplýsir bæjarstjórinn að samningar […]
Hannes ábyrgist vatnslögn
Bæjarstjóri Vestmannaeyja brást skjótt við, eins og hans er von og vísa, í kjölfar skrifa um vatnslögnina í gær. Sendi hann frá sér tilkynningu um að Hannes Smárason, fyrir hönd Geysir Green Energy, hafi lýst því yfir að félagið muni styðja ákvörðun HS (hitaveitunnar, ekki Hannesar) um að leggja nýja vatnslögn til Eyja. (meira…)
Ný neðansjávarleiðsla fyrir þjóðhátíð næsta sumar

Hitaveita Suðurnesja hefur samið við NKT um framleiðslu á nýrri átta tommu neðansjávarvatnsleiðslu og við JD Contractor ApS um lagningu hennar milli lands og Eyja. Fyrir eru tvær vatnsleiðslur sem komnar eru til ára sinna enda 40 ára gamlar. (meira…)
Er meistarakokkur á þínu heimili?

www.eyjar.net mun birta neðst á síðunni fyrir neðan eyjabloggarana uppskriftir sem lesendur geta sent inn á tölvupóstinn eyjar@eyjar.net . Flest elskum við að borða og öllum eigum við okkar uppáhaldsmat eða uppskrift og því ekki að deila henni með öðrum. Fyrsta uppskrift er frá vefsíðunni www.cafesigrun.com og ritstjóri www.eyjar.net prufaði að elda þessa uppskriftir en þó með […]