Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs

Alls ferðuðust 81.579 farþegar með Herjólfi og Baldri í júlí, samanborið við 85.895 í sama mánuði í fyrra. Farþegum fækkaði því um 4.316 milli ára, eða um 5%. Þrátt fyrir fækkunina var þetta fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs. Fækkunina má að hluta rekja til veðurs, en þoka og rigning settu svip sinn á marga […]

Mikið siglt og víða leitað eftir afla

Eyjarnar

Bergey VE landaði um 55 tonnum í Grindavík í gær og Vestmannaey VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í morgun. Þessa dagana er ekki mikil veiði fyrir sunnan land en þokkalegur afli hefur fengist úti fyrir suðausturlandinu. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi stuttlega við skipstjórana og fékk hjá þeim fréttir af gangi mála. Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á […]

Íslendingar eru þjakaðir af launahækkunum

Hin „sjálfsagða“ hugmynd um að lántaki sé laus við íbúðalánið sitt með því að greiða bara upp höfuðstól íbúðalánsins kostaði ríkissjóð um 400 milljarða á núverandi verðlagi, eða um 4-5 milljónir á hverja fjölskyldu í landinu. Tilfinningar góða fólksins um réttlæti fyrir lántakann bar sigur á stærðfræðilegri lógík fýlupúkanna sem vöruðu við þeim skilmálum lána Íbúðalánasjóðs sem heimiluðu lánveitanda að greiða upp 40 ára lánið sitt á föstu vöxtunum án þess að taka tillit til markaðsvaxta á hverjum tíma. Þetta réttlæti kostaði skattgreiðendur 400 […]

Óska eftir tilnefningum frá bæjarbúum

default

Vestmannaeyjabær óskar eftir tilnefningum frá bæjarbúum til umhverfisviðurkenninga fyrir árið 2026. Veittar verða viðurkenningar í fimm flokkum: Snyrtilegasta eignin Snyrtilegasti garðurinn Snyrtilegasta fyrirtækið Endurbætur til fyrirmyndar Framtak á sviði umhverfismála Bæjarbúar eru hvattir til að senda inn tillögur að einstaklingum, eignum eða fyrirtækjum sem þeir telja eiga viðurkenningu skilið. Tilnefningar skulu sendar á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is […]

Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika

Þingmaður Viðreisnar

Þann 29. ágúst næstkomandi mun ég mæta á kjörstað og segja JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Sú ákvörðun er tekin að vel ígrunduðu máli og djúpri sannfæringu um að íslensk heimili, almenningur og komandi kynslóðir eigi skilið meira réttlæti, gagnsæi og efnahagslegan stöðugleika til lengri tíma. Einn stærsti orsakavaldur misskiptingar á Íslandi […]

Nýbyggingin við Tangagötu tekur á sig mynd

Framkvæmdir við nýtt fjölbýlishús Steina og Olla að Tangagötu 10 eru komnar vel á veg. Í húsinu verða 16 íbúðir á fjórum efri hæðum, rúmlega 300 fermetra þjónustu- og skrifstofurými á jarðhæð og bílageymsla í kjallara. Íbúðirnar verða frá 74 upp í 178 fermetra og fylgir hverri þeirra stæði í bílageymslunni. Áætlanir gera ráð fyrir […]

Mikilvæg stig í húfi hjá ÍBV á Hásteinsvelli

ÍBV tekur á móti ÍA á Hásteinsvelli í dag í 19. umferð Bestu deildar karla. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 og eru mikilvæg stig í húfi fyrir Eyjamenn í þéttri baráttu í neðri hluta deildarinnar. ÍBV situr í 9. sæti deildarinnar með 17 stig eftir 18 leiki. FH er sæti neðar með jafnmörg stig […]

Minna á lokanir við Viðlagafjöru

Mynd/Laxey

Aukin umferð hefur verið um starfssvæði Laxey við Viðlagafjöru undanfarin kvöld. Talið er að umferðin tengist pysjutímabilinu sem nú er gengið í garð í Vestmannaeyjum. Í tilkynningu frá fyrirtækinu er minnt á að mikil uppbygging stendur yfir á svæðinu og því sé um framkvæmdasvæði að ræða sem ekki er opið almenningi. Af öryggisástæðum verður hliðinu […]

Landtaka NSL-4 gekk samkvæmt áætlun

Landtöku nýju almannavarnarlagnarinnar NSL-4 í Skansfjöru lauk rétt rúmlega klukkan sex í morgun. Aðgerðin gekk mjög vel og var að fullu í samræmi við fyrirliggjandi skipulag og hönnun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum. Um klukkan hálffjögur í nótt var síðara endastykki lagnarinnar komið frá borði útlagningarskipsins Seven Navica. Skipið var þar með laust […]

Útlagningu NSL-4 lauk í nótt

Lokið var við að leggja nýju vatnslögnina NSL-4 yfir innsiglinguna til Vestmannaeyja í nótt og endi hennar tekinn á land. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, fylgdist með lokakafla framkvæmdarinnar og tók meðfylgjandi myndir. Blíðskaparveður var í Eyjum og góðar aðstæður þegar útlagningarskipið Seven Navica lauk við að leggja síðustu metra lagnarinnar. Að verkinu loknu hélt […]

Síðustu metrarnir lagðir í nótt

Stefnt er að því að leggja síðustu metra nýju vatnslagnarinnar NSL-4 í sjó í nótt. Lögnin verður lögð yfir innsiglinguna til Vestmannaeyja og í kjölfarið verður endi hennar tekinn á land. Blíðskaparveður er í Vestmannaeyjum og kjöraðstæður til framkvæmda. Útlagningarskipið Seven Navica var komið inn í Klettsvík síðdegis í dag, þar sem undirbúningur fyrir lokakafla […]

„Eins og eitthvað væri að pikka í mig…“

Það voru tveir vinningshafar sem skiptu með sér einföldum 1. vinningi í Lottó síðastliðinn laugardag og fær hvor um sig rúmar 5,9 skattfrjálsar milljónir króna í vinning. Þau heppnu eru bæði rétt rúmlega fimmtug og búsett á höfuðborgar-svæðinu. Og þótt þau hafi haft sömu tölurnar réttar var leiðin að vinningnum ólík, segir í tilkynningu frá […]

Framkvæmdir setja svip sinn á bæinn

Ýmsar framkvæmdir setja nú svip sinn á Vestmannaeyjabæ. Halldór B. Halldórsson fór á stjá og tók saman tveggja mínútna myndband þar sem flogið er yfir nokkra af helstu framkvæmdastöðum bæjarins. Ferðin hefst við Sólhlíð, þar sem unnið er að gatnagerð. Þaðan liggur leiðin suður á Eyju, þar sem borað er eftir bergi sem nýta á […]

SFS vara við erlendum yfirráðum yfir aflaheimildum við inngöngu í ESB

sjomenn

Núverandi varnir gegn erlendu eignarhaldi í íslenskum sjávarútvegi myndu veikjast við inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS. Í greiningunni, sem birt var í dag er fjallað um hvaða áhrif hugsanleg ESB-aðild gæti haft á eignarhald og yfirráð í íslenskum sjávarútvegi. SFS benda á að erlent eignarhald […]

Strandveiðar 2026

Strandveiðum lauk í gær, 12. ágúst, er almenn ánægja hjá strandveiðisjómönnum með það að tímabilið hafi verið ca. mánuði lengra heldur en síðustu ár. Mér telst til að 15 bátar hafi farið á strandveiðar frá Vestmannaeyjum, eitthvað var um að aðkomubátar komu hingað um mitt sumar og sömuleiðis fór einn bátur héðan og réri frá […]

Breytt áskriftarverð hjá Eyjafréttum frá 1. september

Ný verðskrá Eyjafrétta tekur gildi 1. september 2026. Samhliða verður áskriftarfyrirkomulagið einfaldað og framvegis verða tvær áskriftarleiðir í boði: stafræn áskrift og full áskrift. Breytingin nær einnig til núverandi áskrifenda. Þeir sem nú eru með netáskrift munu greiða 1.290 krónur á mánuði frá og með 1. september. Aðrar núverandi áskriftir færast yfir í fulla áskrift […]

Rölti um græna vin í hjarta bæjarins

Skógurinn í Löngulág, fyrir ofan Malarvöllinn, er sannkölluð græn vin í hjarta Vestmannaeyjabæjar. Þar hefur trjágróður fengið að dafna og myndað skjólgott og notalegt svæði sem margir bæjarbúar þekkja vel. Í skipulagsgögnum Vestmannaeyjabæjar kemur fram að Löngulág sé einn gróðursælasti reitur Vestmannaeyja hvað trjágróður varðar. Svæðið hefur verið nýtt til útivistar og gróðurræktar og þar […]

Ný stafræn læknisþjónusta fyrst í boði í Eyjum

Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Fjarlækningar hafa hafið samstarf um nýja stafræna læknisþjónustu. Um er að ræða tilraunaverkefni sem verður fyrst um sinn eingöngu í boði fyrir skjólstæðinga HSU í Vestmannaeyjum. Markmið verkefnisins er að einfalda afgreiðslu algengra og afmarkaðra erinda, stytta biðtíma og skapa heilsugæslunni meira svigrúm til að sinna flóknari verkefnum. Þetta kemur fram í […]

Gummi hennar Sædísar

MyndGJÁ

Vinur minn sagði við mig um daginn, alvarlegur í bragði en með gamansömum tón að ég yrði alltaf Gummi hennar Sædísar, sama hvað ég myndi gera, a.m.k. hér í Vestmannaeyjum. Mér fannst þetta skemmtileg pæling. Ekki vegna þess að það sé neitt slæmt við að vera maðurinn hennar Sædísar, þvert á móti. Ég fattaði það […]

Skipstjórarnir sáttir við veiðina

DSC 2373

Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE landa bæði góðum afla í dag. Vestmannaey landar 65 tonnum af karfa í Grindavík en Bergey landar fullfermi í Vestmannaeyjum, aðallega ýsu, að því er segir í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir túrinn hafa gengið vel. „Þetta er mest gullkarfi sem við erum […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.