Landsbankinn vinnur að samruna bankans og Sparisjóðs Norðurlands

Landsbankinn hf. hefur þann, 19. júní 2015, skrifað undir samkomulag við Sparisjóð Norðurlands ses. um að hafinn verði undirbúningur að samruna félaganna. Stjórn sparisjóðsins leitaði til Landsbankans þann 9. júní 2015, til að kanna áhuga á samruna, vegna óvissu um framtíð sjóðsins og hafa viðræður staðið frá þeim tíma. Samruni lýtur lögbundnu ferli sem tekur […]

�?t af með aðkomumenn!

�?g hætti seint að undrast stórkarlalegar yfirlýsingar bæjarstjórans í Vestmannaeyjum í tilefni af því að nauð rak mig til að selja eignarhlut minn í útgerðarfélaginu Bergur-Huginn ehf. �?g hef starfað við þessa útgerð í yfir 40 ár. �?að var því ekki með glöðu geði að ég seldi hlut minn í félaginu þegar gamli Landsbankinn knúði […]

Sanngjarnt jafntefli gegn Val

Valur og ÍBV áttust við í Pepsi deild karla núna í dag þar sem liðin skildu jöfn 1-1, eftir að staðan hafði verið 0-1 í hálfleik, ÍBV í vil. Leikurinn fór rólega af stað fyrstu tíu mínúturnar en þá fóru liðin aðeins að þreifa fyrir sér. Valsmenn voru betri framan af hálfleiknum en upp úr […]

Góður sigur KFS

Í gær áttust við Víðir og KFS í 3. deild karla, 1-3 en staðan í hálfleik var 0-2. Strax á 1. mínútu leiksins kom Sigurður Benónýsson KFS yfir. Sautján mínútum síðar kom Kjartan Guðjónsson KFS í 2-0 og þannig var staðan í hálfleik. KFS menn voru á skotskónum og á 54. mínútu kom Egill Jóhannsson […]

ÍBV heimsækir Val í dag

Í dag sækir ÍBV Val heim að Hlíðarenda og hefst leikurinn klukkan 17:00. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport en þetta er fyrsti sjónvarpsleikur ÍBV í ár. ÍBV er í neðsta sæti deildarinnar með fjögur stig en Valur er í því fjórða með fjórtán stig. (meira…)

Hönnuðir Eldheima verðlaunaðir

Um síðustu helgi hlaut fyrirtækið, Gagarin heiðursverðlaun hönnunarsamtakanna SEGD við hátíðlega athöfn í Chicago. Verðlaunin fékk fyrirtækið fyrir gagnvirk sýningaratriði í Eldheimum í Vestmannaeyjum þar sem fólk getur næstum upplifað eldgosið í Heimaey árið 1973. Eldheimasýningin er staðsett í nýju húsnæði í hlíðum Eldfells í Eyjum. Markmið sýningarinnar er að fræða gesti með því að […]

Fyrsti makrílfarmurinn komin í land

Í morgun kom Kap VE 4 með fyrsta makrílfarminn til vinnslu til Vestmannaeyja, en aflinn var um 200 tonn og fékk Kapin það í einu togi. Makríllinn veiddist sunnan við Vestmannaeyjar eða um 80 sjómílur frá. Vinnsla hófst klukkan hálf tvö í dag og verða vaktir í nótt. Sighvatur Bjarnason og Ísleifur II eru farnir […]

Ráðningar yfirmanna á ný uppsjávarskip Vinnslustöðvarinnar

Eins og áður hefur verið greint frá hefur Vinnslustöðin hf. nýlega fest kaup á uppsjávarskipunum Ingunni AK og Faxa RE. Ákveðið hefur verið að Ingunn fái nafnið Ísleifur VE og Faxi verður Kap VE. Vinnslustöðin hefur nú gengið frá ráðningu yfirmanna á skipin en um er að ræða menn með áratuga reynslu af sjó og […]

Kvenréttindadeginum fagnað

Í dag eru 100 ár síðan konur fengu kosningarétt á Íslandi. Stórgóð mæting var í jafnréttisgönguna þar sem hjúkrunarfræðingar leiddu gönguna ásamt Jóhönnu Ýr Jónsdóttur sem stiklaði á stóru í sögu jafnréttis baráttu kvenna í tímaröð á leiðinni í Sagnheima og þannig gekk gangan jafnréttissögu kvenna á Íslandi jafnt og í Vestmannaeyjum. Jóhanna Ýr talaði […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.