Kvennalið ÍBV byrjar Bestu deildina á sigri

Kvennalið ÍBV í fótbolta byrjar Bestu deild kvenna á sigri en þær mættu Fram á Lambhagavellinum, í miklum markaleik í fyrstu umferð deildarinnar, í dag. Leiknum lauk með 3-4 sigri Eyjakvenna. Fram byrjaði leikinn betur en þær komust yfir eftir aðeins tvær mínútur þegar Taylor Marie Hamlett skoraði eftir fyrirgjöf og kom Fram í 1-0. […]

ÍBV getur tryggt sæti í úrslitum með sigri í dag

Kvennalið ÍBV í handbolta mætir Haukum í dag í fjórða leik liðanna í úrslitakeppninni. Leikið verður í Kuehne+Nagel höllinni og hefst leikurinn klukkan 15:00. ÍBV er í lykilstöðu í einvíginu eftir dramatískan sigur í síðasta leik, þar sem Eyjakonur höfðu betur 38–37 eftir tvíframlengdan leik. Með sigrinum náði liðið 2–1 forystu í einvíginu og getur […]

Stelpurnar sækja Fram heim

Kvennalið ÍBV í knattspyrnu hefur leik í dag í Bestu deildinni þegar liðið sækir Fram heim á Lambhagavöllinn. Flautað verður til leiks klukkan 13:00. Leikurinn ereins og áður segir í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna og verður fróðlegt að sjá hvernig Eyjaliðið mætir til leiks í upphafi tímabils. Fram kemur einnig inn í mótið með […]

Fyrirliði ÍBV spennt fyrir komandi tímabili í Bestu deildinni

Bandaríska knattspyrnukonan og fyrirliði kvennaliðs ÍBV í fótbolta, Avery Vander Ven, framlengdi samningi sínum við ÍBV fyrr í vetur og mun leiða liðið áfram en nú í deild þeirra bestu. Avery er 22 ára gömul og var einn af betri leikmönnum liðsins í fyrra, þegar þær unnu Lengjudeildina með yfirburðum. Hún lék í hjarta varnarinnar […]

Þungt tap ÍBV gegn KR

Karlalið ÍBV í fótbolta tók á móti KR í þriðju umferð Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í dag. Eyjamenn máttu þola þungt tap en leiknum lauk með 2-6 sigri KR.  KR setti tóninn í upphafi leiks og komust í 0-1 strax á fimmtu mínútu með marki frá Arnóri Yngva Traustasyni sem skoraði af stuttu færi. […]

Sumarið heilsar með stórleik

ÍBV fær KR í heimsókn á Hásteinsvöll í dag, á sumardaginn fyrsta í leik í Bestu deild karla. Flautað verður til leiks klukkan 13:00 á Hásteinsvelli. KR situr á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir tvo leiki og markatöluna 8:4. Ljóst er því að verðugt verkefni bíður Eyjamanna, sem hafa farið rólegar af stað […]

ÍBV í lykilstöðu eftir sigur gegn Haukum

Kvennalið ÍBV í handbolta er komið yfir í 8-liða úrslita einvíginu gegn Haukum, í úrslitakeppni Olís deildar kvenna, eftir eins marks sigur í tvíframlengdum leik í Eyjum í kvöld. Lokatölur leiksins 38-37 ÍBV í vil. Eyjakonur eru nú komnar í lykilstöðu og leiða 2-1 einvíginu. ÍBV byrjaði leikinn af krafti og voru með fjögurra marka […]

Emil Gautason í lokahóp u-16

Emil Gautason, leikmaður ÍBV í fótbolta, hefur verið valinn af Lúðvíki Gunnarssyni, landsliðsþjálfara u-16 karla hjá KSÍ, í leikmannahóp sem tekur þátt í UEFA Development móti sem fer fram í Finnlandi 1.-8. maí næstkomandi.  Liðið æfir saman á Íslandi fimmtudaginn 30. apríl áður en förinni er heitir til Finnlands þann 1. maí. Liðið keppir þrjá […]

ÍBV – Haukar: Einvígið heldur áfram

ÍBV og Haukar mætast í kvöld í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í handbolta. Staðan í einvíginu er jöfn, 1–1, og því ljóst að mikið er undir þegar flautað verður til leiks í Íþróttamiðstöðinni klukkan 18:30. Eyjakonur fara inn í leikinn fullar sjálfstrausts eftir sterkan sigur í síðasta leik liðanna, þar sem þær […]

Metþátttaka í The Puffin Run í ár

Hið árlega Puffin Run fer fram í níunda sinn laugardaginn 2. maí og stefnir í sögulegan viðburð. Við heyrðum í Magnúsi Bragasyni einum af skipuleggjendum hlaupsins, og segir hann að metþátttaka verði í ár. „Alls eru 1.800 hlauparar skráðir, sem er nýtt met. Hlaupið hefur vaxið jafnt og þétt frá upphafi þess árið 2018 þegar […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.