Tæknilegir örðugleikar tefja lagningu NSL-4

Vinna við útlagningu nýju almannavarnarlagnarinnar milli lands og Eyja hefur tafist. Útlagningaraðili vinnur nú að því að yfirfara stöðuna og meta næstu skref. Þetta kemur fram í tilkynningu Vestmannaeyjabæjar sem birt var í dag. Útlagningarskipið Seven Navica hefur verið á svipuðum slóðum undanfarna sólarhringa, þótt það hafi farið ágætan spöl í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum sem […]

Einn besti dagur sumarsins í Eyjum

Vestmannaeyjar skarta sínu allra fegursta í dag, sunnudaginn 9. ágúst, og óhætt að segja að dagurinn sé einn sá besti í sumar. Sól hefur skinið, vindur hægur og hitinn notalegur. Þegar allt þetta fer saman gerast sumardagar í Eyjum vart miklu betri. Eyjamenn kunna vel að meta daga sem þessa. Þegar vindurinn tekur sér frí, sólin […]

„Það sló þögn á allt umhverfið“

Almyrkvi sást síðast á Íslandi 30. júní 1954 og einna best í Vestmannaeyjum. Í skemmtilegu viðtali á Vísi rifja Eyjamennirnir Hávarður Birgir Sigurðsson, Hæi, og Svavar Steingrímsson, Svabbi, upp þennan eftirminnilega dag. Báðum eru viðbrögð dýranna minnisstæðust þegar skyndilega varð myrkur um hábjartan dag. Tilefnið er almyrkvinn miðvikudaginn 12. ágúst þegar Vestmannaeyjar verða enn á […]

Ráðherra heimsótt öll lögregluembætti

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, heimsótti á fimmtudaginn sl. lögreglustjórann á Vestfjörðum ásamt ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins. Á föstudag var ráðherra hjá lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum. Þar með er lokið hringferð þar sem öll lögregluembætti á landinu voru sótt heim. Þetta segir í tilkynningu ráðuneytisins. Farið var í hringferðina til að kynna fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á lögreglunni. Ráðherra hyggst mæla […]

Orkumótið mikið ævintýri fyrir indversku strákana

Það var um langan veg að fara fyrir einn hóp þátttakenda á Orkumótinu í Vestmannaeyjum í sumar. Sjö ungir knattspyrnustrákar komu alla leið frá Mumbaí á Indlandi ásamt foreldrum sínum og þjálfurum. Ferðin var þó miklu meira en þátttaka í mótinu. Strákarnir dvöldu í Eyjum í tíu daga, æfðu með ÍBV í vikuna fyrir mótið […]

Eyjamenn sækja toppliðið heim

ÍBV mætir toppliði Víkings í 18. umferð Bestu deildar karla á Víkingsvelli í dag. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 og eru mikilvæg stig í húfi fyrir Eyjamenn í harðri baráttu í neðri hluta deildarinnar. Víkingar hafa verið í miklum ham í sumar og tróna á toppi deildarinnar með 44 stig eftir 17 leiki. Liðið […]

Hlý orð Sigurjóns glöddu Sigurgeir, hans gamla kennara

  Sigurgeir Jónsson kenndi Sigurjóni í Stýrimannaskólanum – Þar náðí hann góðum árangri sem hann þakkar m.a. Sigurgeiri – „Slíkt gleður hjarta gamals manns“   Það er fátt sem yljar gömlum kennara meira en að heyra frá fyrrverandi nemanda sem minnist skólaáranna með hlýhug. Það fékk Sigurgeir Jónsson, sem kenndi í nær hálfa öld, að […]

Sigtryggur Daði áfram hjá ÍBV

Eyja 3L2A7572

Sigtryggur Daði Rúnarsson hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild ÍBV. Félagið greindi frá tíðindunum í dag. Sigtryggur Daði, eða Siddi eins og hann er jafnan kallaður, hefur leikið með ÍBV frá haustinu 2020 og er einn reynslumesti leikmaður liðsins. Hann hefur verið mikilvægur hlekkur í liðinu undanfarin ár og varð meðal annars Íslandsmeistari með […]

Fyrsta pysja ársins fundin

Screenshot

Pysjutíminn í Vestmannaeyjum er formlega hafinn en fyrsta pysja ársins fannst á palli við heimili á Illugagötu. Það voru systkinin Daníel Andri og Hrafnhildur sem fundu pysjuna á pallinum hjá ömmu sinni og afa. Pysjan reyndist 280 grömm að þyngd. Pysjueftirlitið hvetur alla sem finna pysjur til að skrá þær á lundi.is svo hægt sé […]

Gleraugun nauðsynleg þegar sólmyrkvinn skellur á

Enn til gleraugu úr fjáröflun 3. flokks ÍBV – TM gefur viðskiptavinum sólmyrkvagleraugu Króna sólmyrkvagleraugu – Aldrei má horfa óvarinn í sólina Nú styttist í einn athyglisverðasta viðburð ársins þegar sólmyrkvi verður miðvikudaginn 12. ágúst. Í Vestmannaeyjum verður myrkvinn sérstaklega tilkomumikill og því má búast við að margir horfi til himins. Þá er eins gott […]

Deiliskipulagi breytt vegna World Class við Hástein

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis við Hástein. Breytingin er nauðsynleg vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar líkamsræktaraðstöðu fyrir World Class og niðurrifs elstu búningsklefa íþróttahússins. Samkvæmt afgreiðslu ráðsins felst breytingin meðal annars í stækkun byggingarreits vestan við eldri íþróttasal hússins. Þar er fyrirhugað að byggja upp líkamsræktaraðstöðu samkvæmt útboðsskilmálum […]

Tap hjá ÍBV á útivelli gegn Grindavík/Njarðvík

ÍBV og Grindavík/Njarðvík mættust í 15. umferð Bestu deildar kvenna á JBÓ vellinum í kvöld. Leiknum lauk með 4-2 sigri heimakvenna.  ÍBV byrjaði leikinn vel og náði forystu snemma leiks með frábæru marki frá Allison Patriciu Clark. Guðný Geirsdóttir átti þá langa sendingu fram úr markinu og Allison setti boltann skemmtilega yfir Evu Ýr Helgadóttur, […]

Glódísi Dúnu hlakkar til að hefja nýjan kafla

Útskrift 10. bekkinga markar tímamót í lífi margra ungmenna. Við fengum að heyra í nokkrum útskriftarnemum úr Grunnskóla Vestmannaeyja sem líta til baka á grunnskólaárin og segja frá því sem stendur upp úr, auk þess sem þau segja frá því sem tekur við í haust. Glódís Dúna Óðinsdóttir er ein þeirra nemenda sem kvaddi Grunnskólann […]

Fiskaðist vel yfir nóttina

Vestmannaey TMS 20250923 081501

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði í Eyjum í gærmorgun að loknum fyrsta túr eftir Þjóðhátíð. Túrinn var innan við þrjá sólarhringa og það var einungis verið að veiðum í rúman sólarhring. Egill Guðni Guðnason skipstjóri var ánægður. „Þetta voru um 45 tonn af ýsu sem fengust austur á Höfða. Það fiskaðist vel yfir nóttina en það […]

Eigi veldur sá er varar

Binni Opf

Í grein á vísi.is og fésbókarfærslum hafa forystumenn sjómanna gert athugasemd við það að Vinnslustöðin (VSV) skipti út 3.000 tonnum af makríl fyrir liðlega 1.400 tonn af þorski.  Ástæða skiptanna er einföld.  Nauðsynlegar framkvæmdir upp á 700 – 900 milljónir vegna breytinga á vigtarreglugerð stjórnvalda um uppsjávarfisk hafa tafist og fyrirséð varð að makríl yrði […]

Hvað gæti ESB gert fyrir Vestmannaeyjar?

Vestmannaeyjar eru samfélag sem hefur endurskapað sig oftar en flest önnur á Íslandi. Gosið 1973 breytti öllu, en Eyjamenn byggðu aftur upp. Í dag er sjávarútvegurinn enn lífæð samfélagsins, ferðaþjónustan vex, og Eyjamenn bera sig vel. En áskoranirnar eru raunverulegar: einangrun, samgöngur sem eru háðar veðri og ferjum, hátt húsnæðisverð miðað við tekjur, og stöðug […]

Yfirráð Íslands yfir eigin sjávarauðlind

Í aðdraganda atkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við ESB hafa SFS gefið út nýja greiningu um áhrif aðildar á forræði Íslands yfir fiskveiðiauðlindinni. Þar kemur fram að velgengni íslensks sjávarútvegs byggist á yfirráðum yfir sjávarauðlindinni og markvissri fiskveiðistjórnun sem grundvallast á vísindum. Á þeim grunni hefur orðið til öflug atvinnugrein sem skapar verðmæti og fjölbreytt […]

Eyjakonur sækja Grindavík/Njarðvík heim

Eyjakonur mæta Grindavík/Njarðvík á JBÓ-vellinum í kvöld þegar 14. umferð Bestu deildar kvenna hefst. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 og mikið er undir í baráttunni um efri hluta deildarinnar. ÍBV situr í 4. sæti deildarinnar með 21 stig eftir 13 leiki, en Grindavík/Njarðvík er í 5. sæti með 16 stig. Með sigri geta Eyjakonur […]

Ný almannavarnalögn gjörbreytir öryggi Vestmannaeyja

    Þegar ný vatnslögn milli Landeyjasands og Vestmannaeyja verður tekin í notkun síðar á árinu verða tímamót í öryggi samfélagsins. Þá verða Vestmannaeyjar með tvær sjálfstæðar vatnsleiðslur frá landi og þar með varaleið ef önnur þeirra bilar. Lagning leiðslunnar hófst í vikunni og á miðvikudagskvöld tókst að koma enda hennar í land á Landeyjasandi […]

Makrílvertíðin að hefjast

Makrílvertíðin er að hefjast og hjá Ísfélaginu leggja uppsjávarskipin Heimaey og Sigurður úr höfn í kvöld til veiða. Þótt makrílkvótinn sé ekki stór bíða umfangsmikil verkefni í haust með veiðum á norsk-íslenskri síld, íslenskri síld og vonandi loðnu. Hjá Vinnslustöðinni verður hins vegar ekki farið á makrílveiðar í ár vegna framkvæmda í uppsjávarvinnslunni, en þar […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.