Rafmagn fór af allri eyjunni: „Greitt fyrir öryggi sem hélt ekki“

Rafmagnslaust varð í Vestmannaeyjum að kvöldi 6. apríl síðastliðinn þegar yfirspennuvörn í dreifikerfi sló út og tók þar með rafmagn af allri eyjunni. Þetta gerðist þrátt fyrir að flutningskerfi Landsnets héldi, samkvæmt upplýsingum þaðan. Sjá einnig: Rafmagnslaust: Stór truflun í kerfinu – uppfært Truflun vegna eldinga en afhending hélt Samkvæmt svörum Landsnets varð truflun í […]

Börn í Eyjum mega þola löng ferðalög, lítinn svefn og óvissu

Núna eru liðnir 9 dagar síðan ég sendi hugleiðingar mínar frá Eyjum á Eyjólf innviðaráðherra og Kristrúnu forsætisráðherra. Síðan bættist Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, við um helgina. Pabbi spurði mig í gær hver væri að hjálpa mér að skrifa þessa pistla? Ég var nú smá hissa á þessari spurningu. Ég hef nú gefið út […]

Álfsnes, kjarnaborun og höfnin

Halldór B. Halldórsson fer í vettvangsferð í nýju myndbandi á Eyjafréttum. Hann heimsækir m.a. áhöfnina á sanddæluskipinu Álfsnesi, skoðar aðstæður við kjarnaboranir og rannsóknir á berglögum á Eiðinu og tekur að lokum stöðuna á höfninni og þeim framkvæmdum sem þar standa yfir. Sjónum er fyrst beint að vinnunni í og við Landeyjahöfn, þar sem áhöfn […]

Sex hópar frá FÍV tóku þátt í vörumessu í Smáralind

Á föstudag og laugardag fór fram svokölluð vörumessa ungra frumkvöðla í Smáralind. Þar kynntu og seldu nemendur úr framhaldsskólum víðs vegar af landinu hugmyndir sínar og verkefni. En alls tóku um 620 nemendur frá 18 framhaldsskólum þátt í messunni.  Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum átti þar sex hópa sem kynntu sína nýsköpun. Nemendur lögðu mikla vinnu í […]

Milljarðaverkefni í Eyjum: Lægsta tilboð 1,42 milljarðar

Opnun tilboða í viðbyggingu við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja fór fram 14. apríl síðastliðinn og bárust alls fjögur tilboð í verkið. Um er að ræða eitt stærsta framkvæmdaverkefni bæjarins á næstu árum. Lægsta tilboðið barst frá fyrirtækinu Steini og Olli ehf. og hljóðar það upp á 1.421.818.336 krónur. Tilboðið er um 51,7 milljónum króna undir kostnaðaráætlun verksins […]

Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör með þjóðhátíðarlagið

Tilkynning barst frá þjóðhátíðarnefnd í morgun um flytendur þjóðhátíðarlagsins 2026. Í ár eru það engin önnur en Birgitta Haukdag og Herra Hnetusmjör. Bæði hafa þau komið fram á þjóðhátíð áður, en þetta er þeirra fyrsta samstarf. Búast má við áhugaverðu og skemmtilegu samstarfi þeirra tveggja og verður gaman að hvað kemur frá þessu frábæra listafólki. […]

Kjarnaboranir hefjast í Eyjum: „Stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa“

Í dag kom kjarnaborinn til Vestmannaeyja og um helgina hefjast mikilvægar kjarnaboranir sem marka fyrsta skref í umfangsmiklum rannsóknum á mögulegri vegtengingu milli eyja og lands. Verkefnið er á vegum Eyjaganga ehf. og felur í sér boranir á tveimur lykilstöðum – annars vegar á Eiðinu hér í Eyjum og hins vegar í Landeyjasandi við Kross. […]

Boltinn farinn að rúlla – og kosningabaráttan líka

Nýjasta tölublað Eyjafrétta endurspeglar vel það sem brennur helst á Vestmannaeyingum um þessar mundir: pólitík í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, samgöngur og innviðir, sterkt mannlíf og öflugt íþrótta- og menningarlíf. Blaðið er fjölbreytt að vanda, en þó er ljóst að kosningarnar setja sterkan svip á efnistökin. Strax í upphafi er dregin upp alvarleg mynd af samgöngustöðunni. Fjallað […]

Eyjafréttir standa við „samsuðuna“

Ráðhús_nær_IMG_5046

Vestmannaeyjabær birti nýlega ársreikning bæjarins fyrir árið 2025 og birti blaðið fréttatilkynningu bæjarins af því tilefni. Áður hafði Eyjafréttir fjallað um drög að ársreikningi og fór sú umfjöllun illa í Pál Magnússon sem gagnrýndi fréttamiðilinn með eftirfarandi orðum: Um „fréttaskýringuna“ sjálfa er það að segja að hún er sérkennileg samsuða af misvísandi upplýsingum, samanburði á ósambærilegum tölum og einkennist af vanþekkingu höfundarins á reikningsskilavenjum og mislestri á ársreikningi. Efnislega verður þessum […]

Ung eyjamær sigraði upplestrarkeppnina

Lokakeppni Raddarinnar fór fram í Vík í Mýrdal í gær í einstaklega góðu veðri. Grunnskóli Vestmannaeyja átti þrjá fulltrúa í keppninni sem stóðu sig afar vel, að því er segir í frétt á vefsíðu Grunnskólans í Vestmannaeyjum. Það var þó Caritas Rós Tinnudóttir, nemandi við GRV, sem bar sigur úr býtum með frábærri frammistöðu. Í […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.