Nostalgíuleikur í kvöld í Eyjum

Í kvöld fara nokkrir leikir fram í Coca Cola bikarkeppni kvenna í handbolta. ÍBV teflir fram tveimur liðumí keppninni, eins og í fyrra en A-lið ÍBV á fyrir höndum erfiðan leik því stelpurnar sækja Stjörnuna heim í Garðabæinn og hefst leikurinn klukkan 18:00. Hálftíma síðar tekur B-lið ÍBV á móti Haukum í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja en […]

�?á þarf að loka póstinum

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað í síðasta mánuði upp úrskurð í máli Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar, STEF gegn fjarskiptafyrirtækjunum Vodafone og Hringdu. Í dómnum er lagt fyrir Sýslumanninn í Reykjavík að leggja lögbann á að umrædd fjarskiptafyrirtæki geti veitt viðskiptamönnum sínum aðgang að vefsíðum eins og Deildu.net og Piratebay og hafa fyrirtækin nú lokað á aðganginn. […]

Íbúatala Eyjanna stendur nánast í stað

Íbúafjöldi Vestmannaeyja á þriðja ársfjórðungi þessa árs er 4.270 talsins. Um síðustu áramót voru þeir 4.280, íbúum hefur því fækkað um 10 það sem af er árinu. �?etta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. �?ar kemur líka fram að karlar eru 2.220 talsins og konur 2.050. Erlendir ríkisborgarar búsettir í Eyjum eru 240. (meira…)

Sektað vegna ólöglegrar lagningar…

Liðin vika var í rólegri kantinum hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar gekk með ágætum og fá útköll á öldurhúsin. Að vanda var eitthvað um kvartanir vegna hávaða frá heimahúsum en það leystist í öllum tilvikum farsællega. Tveir ökumenn fengu sekt vegna brota á umferðarlögum í síðustu viku en um […]

Brynjar Gauti á leið til Silkeborg

Allt stefnir í að Brynjar Gauti Guðjónsson, varnarmaðurinn sterki í ÍBV, sé á leiðinni frá félaginu. Á mbl.is er sagt frá því að Brynjar Gauti sé á leið til Danmerkur þar sem hann mun æfa og spila æfingaleik með danska úrvalsdeildarliðinu Silkeborg. �??Maður hafði heyrt af áhuga víða á norður­lönd­un­um en Sil­ke­borg kom inn í […]

Bæjarstjóri Spanish Fork heimsækir Eyjarnar

Á morgun, þriðjudaginn 11. nóvember verður boðið upp á dagskrárliðinn Saga og súpa í Sagnheimum. Steve Leifson, bæjarstjóri í Spanish Fork ræðir um þessa elstu Íslendinganýlendu í heimi utan Íslands en Leifson er afkomandi Hjálmfríðar Hjálmarsdóttir í Kastala í Vestmannaeyjum. Erindið verður flutt á ensku og hefst klukkan 12:00. (meira…)

Við erum öll börn einhvers

�?g er ein af ábyggilega mjög fáum, sem aldrei hefur séð uppsetningu á Dýrunum í Hálsaskógi eftir hinn þekkta, sænska rithöfund Thorbjorn Egner. �?að er reyndar óskiljanlegt að þetta verk hafi getað farið framhjá nokkrum manni s.l. áratugi þar sem það hefur verið sett upp nánast á tíu ára fresti síðan það var fyrst frumsýnt […]

Engum starfsmanni verið sagt upp en breytingar munu verða hjá einhverjum starfsmönnum

Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands ritar grein á vef Vestmannaeyjaútibúsins, þar sem hún kynnir þau verkefni sem yfirstjórnin vinnur nú að í sameiginlegri stofnun. Hún segir m.a. að Smári skurðlæknir verði framvegis í 25% starfi á sjúkrahúsinu, vinni fjórðu hverja viku. �?á segir hún að á nýju ári muni skýrast hvaða þjónusta verði veitt í […]

Sjöundi sigur ÍBV

Kvennalið ÍBV heldur áfram á sigurbraut í Olísdeildinni en liðið lagði í dag Fylki að velli í Árbænum. Lokatölur urðu 29:33 en staðan í hálfleik var 14:19. ÍBV hefur aðeins tapað einum leik í deildinni, hefur unnið sjö af átta. ÍBV er í þriðja sæti deildarinnar, með jafn mörg stig og Grótta sem er í […]

Gríðarleg mengun í Eyjum í dag

Mengun í Eyjum vegna eldossins í Holuhrauni mældist í dag 3100 µg/m3, en það mun vera hæsta mæling sem mælst hefur í Eyjum síðan gosið hófst. Vindáttin er norðaustan og því leggur gasmengunin yfir mitt Suðurland. Margir hafa haft orði á því að lyktin sé nokkuð sterk og að fólk finni fyrir óþægindum í hálsi. […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.