Styttist í að sundlaugin opni

Endurnýjun á tæknibúnaði sundlaugarinnar í Vestmannaeyjum er á lokametrunum og styttist nú í að nýtt kerfi verði tekið í notkun. Lokafrágangur stendur yfir og stefnt er að því að sundlaugin verði opnuð aftur fyrir almenning þegar prófunum lýkur. Á vef Vestmannaeyjabæjar segir að vinnu við uppsetningu nýs búnaðar miði vel áfram. Gert er ráð fyrir […]
Segjum það sem við getum staðið við

Ég hef einhversstaðar áður sagt eða skrifað þessa sögu sem hér fylgir, en hún á bara svo vel við núna. Einn góður vinur minn að vestan sagði við mig þegar ég var að flytja til Eyja að Vestmannaeyjar minnti hann mikið á Flateyri, þar sem hann ólst upp. Faðir hans sagði við hann þegar hann […]
Framtíðin er í okkar höndum

Það eru tímamót þegar einstaklingur stígur fram og ákveður að leggja sitt af mörkum fyrir samfélagið. Fyrir mér byggist þessi ákvörðun á miklum áhuga og vilja til að efla samstarf og tryggja öfluga framtíð fyrir Vestmannaeyjar. Ég hef tekið þátt í bæjarmálunum síðustu átta ár, stýrt fræðsluráði og unnið náið með stjórnsýslunni. Þessi reynsla hefur […]
Flugútboð til Eyja

Um þessar mundir stendur yfir útboð Vegagerðarinnar á flugleiðinni milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Samningurinn á að ná til flugs næstu þrjá vetur, frá 1. desember 2026 til og með 30. nóvember 2029. Útboðið tekur einungis til þriggja mánaða tímabils, frá 1. desember til 28. febrúar á hverju ári. Samkvæmt útboðinu skal notast við að lágmarki […]
Óásættanlegt ástand í Landeyjahöfn

Ein af mestu framförum sem átt hafa sér stað í samgöngumálum Eyjamanna var tilkoma Landeyjarhafnar. Væntingarnar voru miklar og áhrif hafnarinnar á samgöngur milli lands og Eyja gífurleg. Eins frábær og höfnin er, stóran hluta ársins, þá er tímabilið sem hún er ekki að þjóna okkur sem skildi alveg óbærilegt fyrir íbúa og fyrirtæki sem […]
Mokstur á þjóðveginum til Vestmannaeyja

Upp er komin alvarleg staða í samgöngum til Vestmannaeyja þar sem þjóðvegurinn sjálfur er lokaður vegna sandskafla í og við Landeyjahöfn þannig að höfnin er ófær fyrir Herjólf. Hjáleiðin er löng upp í Þorlákshöfn sem dregur verulega úr greiðfærni samgangna til Vestmannaeyja og mætti tíðni flugs til Vestmanneyja vera meiri. Vetrarþjónusta Landsmenn þekkja það vel […]
ÍBV fær ÍR í heimsókn

ÍBV tekur á móti ÍR í 20. umferð Olísdeildar karla í handbolta í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og er búist við hörkuleik þegar liðin berjast um mikilvæg stig þegar líður að lokum deildarkeppninnar. Eyjamenn sitja í 6. sæti deildarinnar með 23 stig eftir 19 leiki. Liðið hefur unnið 11 leiki, gert […]
Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?

Karl Gauti Hjaltason, alþingismaður hefur lagt fram fyrirspurn til forsætisráðherra þar sem hann kallar eftir svörum um kostnað ríkisins vegna krafna um eignarhald á eyjum, hólmum, skerjum og dröngum utan strandlengju meginlands Íslands. Sérstaklega er spurt um mál sem tengjast Vestmannaeyjum. Vill fá heildarkostnaðinn upp á borðið Í fyrirspurninni er óskað eftir upplýsingum um heildarkostnað […]
Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi

Niðurstöður nýrra stöðu- og framvinduprófa Matsferils í lesskilningi og stærðfræði munu verða birtar opinberlega eftir skólum samkvæmt reglugerð sem mennta- og barnamálaráðherra hefur nú gefið út. Jafnframt hafa niðurstöður lesfimi grunnskólabarna undanfarin fimm ár nú verið birtar í fyrsta sinn og eru þær birtar eftir sveitarfélögum. Frá þessu er greint í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. […]
Versnandi afkoma bæjarins

Eyjafréttir halda áfram að rýna í rekstrarreikning Vestmannaeyjabæjar í þeim tilgangi að stuðla að upplýsandi umræðu um þróun og stöðu fjármála bæjarins. Miklar sveiflur í rekstrarafkomu bæjarins Eins og súluritið sýnir hefur rekstrarafkoma Vestmannaeyjabæjar farið minnkandi á síðustu árum. Á tímabilinu 2008–2013 var rekstrarafgangur að meðaltali um 875 milljónir króna á verðlagi dagsins í dag. […]
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV

Tveir menn af erlendu bergi brotnir hafa verið dæmdir í Héraðsdómi Suðurlands fyrir þjófnað og peningaþvætti eftir að hafa ítrekað stolið endurvinnanlegum drykkjarumbúðum úr söfnunargámi ÍBV-íþróttafélags og innleyst skilagjaldið sjálfir. Dómur í málinu féll í gær og játuðu mennirnir báðir brot sín fyrir dómi. Samkvæmt dómi stal annar mannanna ítrekað endurvinnanlegum drykkjarumbúðum úr gámi félagsins […]
Aglow samvera í kvöld

Aglow samvera verður í kvöld, miðvikudaginn 4. mars kl. 19.30 í safnaðarheimili Landakirkju. Við munum fá góðan gest sem talar til okkar. Tryggvi Hjaltason ætlar að koma og vera með okkur. Hann hefur fengist við margt og hann er þekktur fyrir að hafa margar og góðar skoðanir. En undanfarin misseri hefur hann verið að skoða […]
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum

Loðnuveiðar ganga vel hjá Ísfélaginu þessa dagana og hefur stærstur hluti úthlutaðs kvóta þegar verið veiddur. Í samtali við Eyjafréttir segir Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins, að skip félagsins hafi nú veitt um 20.000 tonn af tæplega 30.000 tonna kvóta. „Þannig að við eigum um 10.000 tonn eftir að veiða,“ segir Eyþór. Hrognavinnsla hafin Hafin var […]
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”

Ísfisktogararnir í Síldarvinnslusamstæðunni hafa landað góðum afla síðustu dagana. Frá þessu er greint á fréttasíðu fyrirtækisins. Jóhanna Gísladóttir GK landaði í Grindavík á sunnudagsmorgun og þá lönduðu einnig Vestmannaey VE og Bergey VE í Vestmannaeyjum. Gullver landar síðan í Hafnarfirði í dag. Einar Ólafur Ágústsson, skipstjóri á Jóhönnu Gísladóttur, sagði að landað hefði verið fullfermi […]
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV

Nemendur í 5. bekk Grunnskóla Vestmannaeyja heimsóttu uppsjávarvinnslu Vinnslustöðvarinnar í lok síðustu viku þar sem þau kynntu sér loðnuna, fisk árgangsins. Alls tóku 55 nemendur þátt í heimsókninni sem er árlegur liður í samstarfi skólans og fyrirtækisins. Fjallað er um heimsóknina á vefsíðu Vinnslustöðvarinnar. Að sögn Lilju Bjargar Arngrímsdóttur, mannauðsstjóra Vinnslustöðvarinnar, voru þetta alls 55 […]
Kallar eftir tafarlausum úrbótum

Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins flutti í dag ræðu undir liðnum störf þingsins á Alþingi þar sem hann gagnrýndi ástand samgangna til Vestmannaeyja og lokun Landeyjahafnar. Í ræðu sinni benti Karl Gauti á að loðnuvertíðin stæði nú sem hæst. Frystingu væri víðast hvar að ljúka og verksmiðjur að hefja hrognavinnslu. Verðmætasköpunin væri því í fullum […]
Álfsnes úr leik vegna bilunar

Bilun kom upp í vél fyrir bógskrúfu á dýpkunarskipinu Álfsnesinu í nótt, þar sem unnið var að dýpkun Landeyjahafnar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Vegagerðarinnar. Þar segir jafnframt að af þeim sökum sé ekki unnt að halda dýpkunarframkvæmdum áfram fyrr en búið er að gera við bilunina og skipta um viðkomandi búnað. Unnið […]
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn

Skiptar skoðanir komu fram á síðasta fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja þegar tímabundið samkomulag um rekstur heilsuræktar var til umræðu. Umræðan snerist að nýju útboði sveitarfélagsins um uppbyggingu og rekstur heilsuræktar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Eins og Eyjafréttir hafa fjallað um felur útboðið í sér 15 ára sérleyfissamning um rekstur stöðvarinnar, sölu byggingaréttar og byggingu nýrrar viðbyggingar. Bæði […]
Dýpið mælt í Landeyjahöfn

Dýpi var mælt í Landeyjahöfn fyrr í dag, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Eins og sést á myndinni hér að neðan er dýpi ekki nægilegt fyrir ferjuna til þess að sigla til og frá höfninni. Aðstæður eru sambærilegar og þegar dýpi var mælt síðast. Af þessum sökum verður áfram siglt til og frá Þorlákshöfn […]
Loðnuvertíðin líflína fyrir japanskan markað

Yukiko Ono, sem stýrir sölu og innkaupum á loðnuafurðum fyrir japanska stórfyrirtækið Maruha Nichiro, er stödd í Vestmannaeyjum í fyrsta sinn. Hún kom hingað gagngert til að fylgjast með hráefninu og tryggja gæði loðnu sem fer á japanskan markað. „Ég dvel hér í eina viku og skoða hráefnið daglega,“ segir Ono, sem hefur starfað við loðnu frá árinu 2023 […]