Til Sjálfstæðismanna

Ég verð að viðurkenna að það er skrítið að vera í prófkjöri og reyna að ná sæti á lista með vinum sínum, þú ferð út fyrir þægindaramman. Eitt af hlutverkum okkar í pólitík er að upplýsa fólk um stöðuna þó að það sé ekki alltaf vinsælt að segja frá þar sem upplýsingarnar geta leitt til […]

Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti

Ráðhús_nær_IMG_5046

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á síðasta fundi sínum breytingar á skipan í ráðum og nefndum bæjarins samkvæmt 42. grein bæjarmálasamþykktar. Þrír fulltrúar láta af störfum í nefndum bæjarins, en þeir hafa nýverið tilkynnt að þeir hafi gengið til liðs við Miðflokkinn. Sonja Andrésdóttir hættir sem varamaður í fjölskyldu- og tómstundaráði. Í hennar stað kemur Páll Magnússon. […]

Eyjamenn sækja Fram heim

ÍBV sækir Fram heim í Lambhagahöllina í kvöld í 21. umferð Olísdeildar karla í handbolta. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og má búast við hörkuleik þar sem bæði lið berjast um góðar stöður fyrir lokaumferð deildarinnar. ÍBV situr sem stendur í fimmta sæti deildarinnar með 25 stig eftir 20 leiki, jafnt Aftureldingu að stigum. Fram er […]

Á rauðu ljósi í Reykjavík

Einn af uppáhalds útvarpsmönnunum mínum, Ívar Guðmundsson á Bylgjunni, var með athyglisverða pælingu í liðnum Sturluð staðreynd í vetur, en þar kom fram að samkvæmt útreikningum væri meðal biðtími höfuðborgarbúa á rauðu ljósi ca. 6 mánuðir á ári og ég fór að velta þessu fyrir mér í samhengi við ferð okkar hjóna snemma hausts til […]

Draumurinn rættist á 100 ára afmæli – Taflfélag Vestmannaeyja Íslandsmeistari

Taflfélag Vestmannaeyja varð í dag Íslandsmeistari í úrvalsdeild Íslandsmóts skákfélaga eftir sigur á Skákdeild Breiðabliks í lokaumferð mótsins. Titillinn kemur á einstaklega skemmtilegum tíma því félagið fagnar 100 ára afmæli sínu á þessu ári. Eyjamenn fóru inn í lokaumferðina í harðri baráttu um efsta sætið eftir dramatískan sigur kvöldið áður. Í dag tókst liðinu síðan […]

Vestmannaeyjar – Grænt ljós

Íris bæjarstjóri undirritaði í vikunni og staðfesti deiluskipulag fyrir nýtt baðlón og hótel Lava Spring. Senn fer í gang uppbygging stærsta og metnaðarfyllsta ferðaþjónustuverkefni í Vestmannaeyjum frá upphafi. 1500fm baðlón 90 herbergja hótel 50 störf hið minnsta auk afleiddra starfa Sennilega framkvæmd upp á margra milljarða. Áhrif á efnahag og atvinnulíf samkvæmt skýrslu Alta. “Skipulagsáætlanirnar […]

Dramatískur sigur hjá Taflfélagi Vestmannaeyja – úrslitin ráðast í dag

skak_tafl

Taflfélag Vestmannaeyja vann dramatískan sigur með minnsta mögulega mun gegn Taflfélagi Reykjavíkur í úrvalsdeild Íslandsmóts skákfélaga í gærkvöldi og hefur þar með sett sig í sterka stöðu fyrir lokaumferð mótsins sem tefld er í dag. Viðureignin var afar spennandi þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á síðustu skákum kvöldsins. Sveitirnar skiptust á að hafa […]

Fólk en ekki flokka

Hildur Solv Ads

,,Ég vildi að ég gæti kosið fólk en ekki flokka” er setning sem ég hef fengið að heyra óteljandi oft á mínum pólitíska ferli. Margir eiga erfitt með að festa sig við ákveðna stjórnmálaflokka, sér í lagi í sveitarstjórnarmálum þar sem áherslumunurinn er oft ekki jafn áberandi eins og í landsmálunum. Bæjarfulltrúum í Vestmannaeyjum hefur […]

Vonir vakna hjá TV á Íslandsmóti skákfélaga

Mikil spenna ríkir í úrvalsdeild Íslandsmóts skákfélaga þessa dagana og allt í einu eru vonir Taflfélags Vestmannaeyja um Íslandsmeistaratitil orðnar raunverulegar eftir sterka frammistöðu í 6. og 7. umferð mótsins. Eyjamenn unnu mikilvægan sigur gegn Fjölni og náðu þar með dýrmætum stigum í toppbaráttunni. Sigurinn þýðir að liðið er komið í góða stöðu þegar mótið […]

Ekkert siglt í dag

Herjólfur_2023_ÓPF_DSC_1763

Tekin hefur verið ákvörðun um að fella niður seinni ferðir Herjólfs í dag vegna veðurs og sjólags. Ferðirnar sem um ræðir voru áætlaðar kl. 16:00 frá Vestmannaeyjum og kl. 19:45 frá Þorlákshöfn. Farþegar sem áttu bókað eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína, segir í tilkynningu. Þar […]

Gular viðvaranir víðast hvar

Gular viðvaranir eru í gangi í mörgum landshlutum, m.a. á Suðurlandi. Þar er hvassviðri eða stormur og éljagangur (Gult ástand) og viðvörunin í gildi til kl. 14:00. Í viðvörunarorðum fyrir landshlutann segir: Suðvestan 15-23 m/s með éljagangi og lélegu skyggni. Slæmt ferðaveður. Líkt og greint var frá í gær hér á Eyjafréttum sigldi Herjólfur ekki […]

Ófært til lands – uppfært

Tekin hefur verið ákvörðun um að fella niður seinni ferðir Herjólfs vegna veðurs og sjólags. Ferðirnar voru áætlaðar kl. 16:00 frá Vestmannaeyjum og kl. 19:45 frá Þorlákshöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipafélaginu. Farþegar sem áttu bókað eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína. Ákvörðun sem […]

Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu

Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu bæði fullfermi í heimahöfn í gær. Uppistaðan í afla beggja skipa var ýsa. Veiðiferðir skipanna voru stuttar eða um þrír sólarhringar. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við skipstjórana og spurði frétta. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að þokkalega hefði gengið að veiða en hálfgert skítaveður hefði verið allan tímann. […]

Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur

Ferðaþjónusta í Vestmannaeyjum hefur á undanförnum árum orðið ein af stoðum atvinnulífsins í eyjunum. Náttúran, sagan, menningin og einstakt mannlíf laða ár hvert þúsundir gesta til eyja. Vestmannaeyjar hafa þannig skapað sér sterka stöðu sem einn áhugaverðasti áfangastaður landsins og eru mikilvægar bæði fyrir samfélagið okkar og íslenska ferðaþjónustu í heild. Ávinningurinn fyrir samfélagið er […]

Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun í dag kl. 12:30 – 18:00 á Suðurlandi. Búist er við þrumuveðri á landinu með tíðum eldingum. Forðast ber vatn, hæðir í landslagi og berangur. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Nánari upplýsingar um viðbrögð við eldingaveðri er á upplýsingasíðu almannavarna. Suðurland Suðaustan […]

Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra

Árlegum vetrarleiðangri sjórannsókna á rannsóknaskipinu Þórunni Þórðardóttur lauk þann 17. febrúar eftir 15 daga á sjó. Aðalmarkmið leiðangursins var vöktun á umhverfisástandi hafsins við Ísland að vetrarlagi, en hann er einn af árstíðabundnum umhverfisvöktunarleiðöngrum stofnunarinnar sem hafa farið fram þrisvar til fjórum sinnum á ári síðan 1970. Slík langtímavöktun er nauðsynleg til að unnt sé að meta og […]

Heilbrigðismál

Á HSU í Vestmannaeyjum starfar mikið af reynslu miklu fólki með hina ýmsu sérþekkingu. Starfsemin er öflug og gríðarlega mikilvæg fyrir okkar frábæra samfélag. Málefni sjúkrahússins og hjúkrunarheimilisins eru ekki á könnu sveitarfélagsins en það þýðir ekki að bæjarstjórn megi sofna á verðinum í hagsmunagæslu. Eftir að almennt flug lagðist af í Vestmannaeyjum hefur sjúkraflug […]

Saman erum við sterkari

Ég elska Vestmannaeyjar. Hér hef ég búið, starfað og tekið þátt í samfélaginu nánast alla mína ævi. Ég veit að hagsmunum okkar er best borgið með því að við eyjamenn stöndum saman. Hið sama á við um Sjálfstæðisflokkinn. Honum vegnar best þegar við sjálfstæðismenn stöndum saman. Ég er ekki einn af þeim sem hef heilaga […]

Frambjóðendur á opnum kynningarfundi í Ásgarði

Opinn kynningarfundur, með frambjóðendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Eyjum, verður haldinn í Ásgarði í morgun, laugardaginn 7. mars. Fundurinn hefst kl. 11 og munu frambjóðendur þar kynna sig og sínar áherslur í prófkjörinu en að framsögum loknum gefst fundarmönnum færi á að beina spurningum til frambjóðenda. Fundurinn er öllum opinn og eru þeir sem áhuga […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.