Tekist á við jólakílóin í Hressó

�?að var vel tekið á því á Hressó í morgun og margir sem sáu ástæðu til að takast á við mikið át síðustu daga. Á morgun, laugardag, er opið frá kl. 10.00 til 13.00 og skemmtilegir tímar í boði, M.a. stöðvar og trampólín með Jóhönnu og Báru og Salsahjól með Susönu Loreto og er hægt […]

Er komið að endalokum?

Siglunes SI 70 sem áður hét Danski Pétur VE 423, hefur legið við bryggju á Siglufirði frá því um kvótaáramótin síðustu. Rammi hf var með skipið á leigu til rækjuveiða en endurnýjaði ekki samning um áframhaldandi leigu og því hefur Siglunes SI bæst í hóp bryggjublóma landsins . Margir hafa velt því fyrir sér hver […]

Jólastjarnan yfir Eyjum

Halldór Benedikt hefur sett saman þetta jólalega myndband. Eyjarnar eru í öndvegi og tónlistin eftir Sigurð �?skarsson frá Hvassafelli. �?skar sonur hans og Gunnlaug Sigurðardóttir tengdadóttir hans flytja lagið Jólastjarnan. (meira…)

Kvikmynd um þjóðhátíð, Skátar, Eykyndill og Sagnheimar

�?að hefur verið venja frá árinu 1988 að Sparisjóður Vestmannaeyja veiti styrki úr Minningarsjóði �?orsteins Víglundssonar, fyrrum sparsjóðsstjóra á �?orláksmessu. �?að var eitt fyrsta verk Hafsteins Gunnarssonar sem sparisjóðsstjóra að veita viðurkenningarnar í gær. Styrki hlutu Sighvatur Jónsson og Skapti �?rn �?lafsson sem eru að gera kvikmynd um þjóðahátíðina. Líka Slysavarnadeildin Eykyndill og Skátafélagið Faxi […]

Líf og fjör á þorláksmessu

�?að var líflegt í miðbæ Vestmannaeyja í kvöld, enda veðrið frábært. Helst að hálkan væri til ama. Höfðu margir á orði að fjöldi fólks í bænum hefði verið með mesta móti í kvöld. Góðar óskir um gleðileg jól voru á hvers manns vörum og virklegur jólaandi í bænum. Lúðrasveit Vestmannaeyja lét sig ekki vanta frekar […]

Varnaðarorð til leikmanna B(esta) liðsins

�?að fór án efa ekki framhjá neinum hinn glæsilegi sigur B liðs ÍBV í handknattleik karla á �?rótti í bikarnum. Leikurinn þó afburða vel leikinn af hálfu ÍBV og er óhætt að segja að sigurinn hafi aldrei verið í hættu. Með þessum örugga sigri komst ÍBV B lið í 8 liða úrslit bikarsins ásamt m.a. […]

Hildur Sólveig forseti

Á fundi bæjarstjórnar í gær var kosið í ráð og nefndir vegna brotthvarfs Páleyjar Borgþórsdóttur af vettvangi bæjarmála. Páley tekur við stöðu lögreglustjóra í Vestmannaeyjum frá og með áramótum. Í stað Páleyjar í bæjarráði verður Páll Marvin Jónsson formaður og í stað Páls Marvins sem forseta bæjarstjórnar kemur Hildur Sólveig Sigurðardóttir. Kemur hún inn í […]

Kveðja til Eyjamanna frá Ástralíu

Við, feðginin Védís og Guðmundur organisti sendum öllum Eyjamönnum, vinum okkar bestu jóla og nýjársóskir. Við erum nú stödd í Brisbane í Ástralíu og fjarri því góða gamni að spila í Landakirkju yfir jól og áramót, sem við höfum gert sl. 25 ár. En eitt tekur við af öðru, hér er yndislegt að vera og […]

Sigursteinn nýr viðskiptastjóri fyrirtækja

Sigursteinn Bjarni Leifsson, er nýr viðskiptastjóri fyrirtækja í útibúi Íslandsbanka í Vestmannaeyjum. �?ettur kemur fram í frétt frá bankanum. �?ar segir að Sigursteinn sé með BS í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri. Starfaði nú síðast sem fjármálastjóri hjá Miðstöðinni ehf. Vestmannaeyjum. �?ar á undan við bókhald, skrifstofustörf og sjómennsku. Sigursteinn starfaði hjá SPRON 1995-1998 og […]

Sýning Garðars opin til 8. janúar

Listvinir Safnahúss minna á sýningu Garðars Björgvinssonar í Einarsstofu. Sýningin opnar laugardaginn 27. desember kl. 14 og stendur fram til 8. janúar. Sýningin er opin á virkum dögum kl. 10-18 og á laugardögum kl. 14-18. Sjá nánar um sýninguna í jólablaði Eyjafrétta. (meira…)

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.